Erlent

Frakkar kjósa um nýja stjórnarskrá

Frakkar munu kjósa um nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins að því er Jacques Chirac, forseti landsins, lýsti yfir í gær. Chirac sagði kjósenda fremur en þingsins að taka ákvörðun um stjórnarskrána. "Í framtíðinni verða allar þjóðir að staðfesta stjórnarskrána. Hún hefur bein áhrif á Frakka og því verða Frakkar spurðir beint. Það verður þjóðaratkvæðagreiðsla," segir Chirac. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin á síðari helmingi ársins 2005 að sögn Chirac. Ekki er talið að hann sé að taka mikla áhættu með ákvörðuninni þar sem skoðanakannanir hafa bent til þess að Frakkar séu fremur hliðhollir nýju stjórnarskránni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×