Erlent

Ný leitarvél hjá Google

Fyrirtækið sem rekur vinsælustu leitarvélina á Netinu, Google, hefur svo lítið ber á sett á laggirnar nýja leitarvél í því skyni að aðstoða bókaútgefendur að selja bækur á Netinu, en Netverslunin Amazon.com hefur haft markaðsyfirburði á því sviði. Stjórnendur Google, Larry Page og Sergey Brin, efna til fundar með fréttamönnum á Bókamessunni í Frankfurt í dag og ætla að sýna hvernig leitarvélin vinnur. Frá því hlutabréf í Google komu í almenna sölu í kauphöllum hefur gengi þeirra hækkað um rúmlega 60%.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×