Erlent

Sleppt frá Guantanamo

Fjórum frönskum föngum hefur verið sleppt úr haldi Bandaríkjamanna á Guantanamo-flóa á Kúbu eftir að hafa setið inni, án ákæru, í tvö ár. Í yfirlýsingu frá franska utanríkisráðuneytinu segir að eftir viðræður franskra og bandarískra stjórnvalda hafi Bandaríkjamenn fallist á að sleppa fjórum af þeim Frökkum sem eru í haldi. Frönsk útvarpsstöð greindi frá því fyrr í morgun að sjö Frakkar hefðu verið látnir lausir. Von er á mönnunum fjórum til Frakklands í dag. Bandaríkjamenn hafa verið gagnrýndir fyrir að halda stríðsföngum við Guantanamo-flóa án dóms og laga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×