Erlent

Guantanamo réttarhöld mögulega dæmd ómerk

Fyrstu réttarhöldin í sérstökum bandarískum hérdómsstól í Guantanamo-fangabúðunum gætu verið dæmd ómerk vegna óskýrleika á skilgreiningu á því hvað sé glæpur og hvað sé stríðsglæpur.

Erlent

Of feitur til að deyja

Maður einn á dauðadeild í Ohio í Bandaríkjunum hefur tekið til nýstárlegra varna í áfrýjun sinni. Lögfræðingar hans segja að ekki sé hægt að taka hann af lífi vegna þess að hann sé of feitur.

Erlent

Mbeki þvertekur fyrir að hafa tekið við mútum

Tabo Mbeki, forseti Suður Afríku, þvertekur fyrir að hann hafi þegið mútur frá þýsku vopnaframleiðslufyrirtæki. Ásakanir um mútuþægni forsetans eru settar fram í Suður Afríska blaðinu Sunday Times en blaðið segir að Mbeki hafi greitt forsetanum fyrir að tryggja að sala á þremur kafbátum gengi í gegn. Forsetinn og talsmenn hans segja ekkert hæft í fréttinni og í sama streng tekur þýska fyrirtækið.

Erlent

Edouard stefnir á Texas

Óveðrið Edouard stefnir nú hraðbyri að Texas ríki í Bandaríkjunum og sækir í sig veðrið með hverri klukkustundinni. Stormurinn færist nú Norð-vestur eftir Mexíkóflóa og er búist við því að hann nái styrk fellibyls um miðjan dag. Íbúar Texas búa sig nú undir að óveðrið gangi á land en um fimm og hálf milljón manna búa á svæðinu þar sem búist er við að stormurinn fari yfir.

Erlent

Obama vill ganga á varaforðann

Barack Obama, forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, vill láta veita 70 milljónum olíutunna úr varaforða landsins til þess að stemma stigu við hækkandi olíuverði í heiminum.

Erlent

Rignir á Dani

Miklar rigningar eru nú í Danmörku en í gær var úrkoman á nokkrum stöðum álíka mikil og venja er í öllum ágústmánuði. Á Norður-Jótlandi var úrkoman um 60 millimetrar í gær og á Skagen var hún 70 millimetrar.

Erlent

Clinton vill meira fé í baráttuna við HIV

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kallar eftir auknum fjárframlögum í baráttunni við alnæmi í heiminum. Alþjóðleg ráðstefna um sjúkdóminn stendur nú yfir í Mexíkó og þar sagði Clinton að auka þurfi framlög um fimmtíu prósent á næstu tveimur árum til þess að unnt sé að standa straum af lyfjagjöf til þeirra sem smitast hafa.

Erlent

Lét klóna hundinn sinn

Vísindamenn í Suður Kóreu segjast hafa klónað gæludýr bandarísks manns sem gat ekki hugsað sér að sjá á bak hundinum sínum.

Erlent

Ellefu létust á K2

Ellefu fjallgöngumenn fórust á næst-hæsta fjalli heimsins, K2, í Pakistan um helgina. Fólkið var á leið niður af fjallinu eftir að hafa náð á toppinn þegar snjófljóð skall á hópnum, en í honum voru tuttugu og fimm manns.

Erlent

Öryggið tryggt á Ólympíuleikunum

Kínversk yfirvöld reyna nú að fullvissa fólk um að áhorfendur og þáttakendur á ólympíuleikunum sem hefjast eftir nokkra daga séu óhulltir. Aðskilnaðarsinnar í Sínjang héraði eru sakaðir um árás á landamærastöð í gær, en forsvarsmenn leikanna segja að ítrustu öryggiskröfur séu uppfylltar í Peking og því sé gestum engin hætta búin.

Erlent

Zuma hylltur við réttarhöld

Stuðningsmenn Jacob Zuma, leiðtoga Þjóðarflokksins (ANC) í Suður-Afríku, hafa safnast saman á götum úti í dag, til þess að hylla hann. Zuma mætti fyrir rétt í dag til þess að freista þess að fá ákærur gegn sér felldar niður.

Erlent

Fritzl lík­lega á­kærður fyrir þræla­hald

Hinn austurríski Josef Fritzl, sem hélt dóttur sinni fanginni í kjallara í meira en 24 ár og misnotaði hana kynferðislega gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir þrælahald. Þetta hefur fréttastofa Breska ríkisúvarpsins, BBC, eftir saksóknurum í Austurríki.

Erlent

Bretar myrtir í Karíbahafinu

Þrjátíu og eins árs gamall Breti, Ben Mullany, lést á sjúkrahúsi í Bretlandi um helgina af skotsárum sem hann fékk þegar ráðist var á hann og konu hans á eynni Antigua í Karíbahafi í síðustu viku.

Erlent

Leita leiða til að koma Mugabe frá

Í Suður-Afríku eru hafnar á ný samingaviðræður á milli stjórnmálafylkinga í Zimbabwe. Markmið viðræðnanna er að komast að samkomulagi um framtíðarstjórn landsins af hálfu stjórnarandstæðinga,

Erlent

Afmæli Mandela enn fagnað

Suður-Afríka hefur helgað þetta ár Nelson Mandela, vegna níræðisafmælis hans. Eiginkonur hans núverandi og fyrrverandi voru viðstaddar mikla afmælisveislu í gær.

Erlent

Hátt í 60 þúsund Bandaríkjamenn smitast árlega af HIV

Mun fleiri Bandaríkjamenn sýkjast árlega af HIV veirunni en opinberar tölur þar í landi gefa til kynna. Þetta kemur fram í skýrslu sem Miðstöð smitsjúkdómavarna þar í landi gaf út. Þar segir að 56 þúsund manns hafi smitast af veirunni árið 2006.

Erlent

Palestínumenn flýja til Ísraels

Tæplega 200 palestínumenn flúðu til Ísraels í gær þegar harðir bardagar brutust út á milli Hamas og Fatah hreyfinganna á Gaza ströndinni. Níu palestínumenn féllu og níutíu og fimm særðust í bardögunum.

Erlent