Erlent

Kynnir ráðherralista í dag

Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, mun á blaðamannafundi í Chicago í dag tilkynna hverja hann hyggst skipa í nokkur helstu embættin í væntanlegri ríkisstjórn. Fyrir liggur að þar á meðal verða fyrrverandi keppinautar á borð við Hillary Clinton sem ætlað er að taka við utanríkisráðuneytinu.

Erlent

Indverjar reiðir yfirvöldum öryggismála

Innanríkisráðherra Indlands sagði af sér í gær í kjölfar þeirrar gagnrýni sem á öryggisyfirvöldum ríkisins hefur dunið vegna hinna blóðugu árása hryðjuverkamanna í Mumbai sem hófust síðastliðinn miðvikudag en ekki tókst að binda enda á fyrr en á laugardag. 174 létu lífið í árásunum, sem tíu manna hópur herskárra múslima frá Pakistan framdi að því er lögregluyfirvöld í Mumbai fullyrða.

Erlent

Jómfrúarflug farþegaþotu

ARJ-21, fyrsta farþegaþotan sem Kínverjar hanna sjálfir og áforma fjöldaframleiðslu á, fór í sitt fyrsta tilraunaflug á föstu-daginn. Það tókst að óskum.

Erlent

Endeavour lögð af stað inn í gufuhvolfið

Geimflaugin Endeavour hóf fyrir stundu ferð sína aftur inn í gufukvölf jarðar nú undir kvöld. Hún hefur dvalið við alþjóða geimstöðina undafarið þar sem áhöfn hennar hefur unnið að viðgerðum.

Erlent

Tveir hryðjuverkamannanna gætu verið Bretar

Tveir hryðjuverkamannanna í Mumbai eru Bretar, er marka má orð þess eina sem eftir lifir. Þetta hefur breska blaðið The Sun eftir heimildamanni innan indversku lögreglunnar, sem segir þetta hafa komið fram við yfirheyrslur á eina vígamanninum sem náðist á lífi.

Erlent

Lendingu Endeavour frestað

Nasa hefur frestað lendingu geimflaugarinnar Endeavour vegna veðurs. Flaugin er a leið heim úr ferð í alþjóða geimstöðina þar sem áhöfn hennar hefur sinnt viðgerðum. Vélin átti að lenda á Kennedy Space Center í Flórída upp úr sex í dag. Næsti möguleiki fyrir hana til að lenda er klukkan að verða átta, en gangi það ekki eftir gæti hún verið send á varaflugvöll í Kaliforníu.

Erlent

Glæsivillur lækka í verði

Efnahagskreppan er farin að teygja arma sína til Dubai, þar sem peningaaustur til glæsi framkvæmda hefur verið meiri en nokkurnsstaðar annarsstaðar í heiminum síðustu misseri. Verð á meðal stórri tveggja hæða íbúðarvillu með öllu í Pálma byggðinni svonefndu, hefur lækkað úr 550 milljónum króna í september niður í rösklega 300 milljónir núna, sem er liðlega 30 prósenta lækkun. Þá hafa stjórnvöld ákveðið að draga úr ýmsum stórframkvæmdum i viðskiptahverfi borgarinnar, nema hvað haldið verður áfram að hækka skýjakljúfinn, sem þegar er orðinn lang hæsta hús í heimi. Endanleg hæð er enn leyndarmál.

Erlent

Sjóræningjar semja við eigendur flutningaskips

Sómalskir skæruliðar hafa náð samkomulagi við eigendur úkraínsks flutningaskips sem þeir hafa haldið um að láta það af hendi. Sjóræningjarnir hafa haldið skipinu frá því í september, en um borð í því eru 33 skriðdrekar og annar herbúnaður.

Erlent

Stirt milli Indlands og Pakistans

Mikil spenna er milli Indlands og Pakistans eftir fjöldamorð hryðjuverkamanna í indversku borginni Mumbai. Indverjar segjast hafa sannanir fyrir pakistönskum tengslum. Pakistanar harðneita því. Þeir hafa fordæmt árásina og heitið að veita alla þá aðstoð sem þeir geti. Pakistan og Indland hafa háð þrjú stríð. Menn hafa sérstakar áhyggjur af átökum þeirra á milli í dag, þar sem löndin eru nú bæði kjarnorkuveldi. Innanríkisráðherra Indlangs hefur sagt af sér vegna árásarinnar.

Erlent

Grindhvalir drápust í Tasmaníu

Að minnsta kosti 150 grindhvalir drápust eftir að hafa synt á land á vesturströnd Tasmaníu. Áströlsk yfirvöld segja að tekist hafi að stýra 30 hvölum til viðbótar frá landi. Algengt er að hvalavöður syndi á land í Ástralíu, en ekki er vitað gerla hvers vegna. Grindhvalir verða allt að átta metra langir og vega mest um fimm tonn. Færeyingar veiða mikið af þessari tegund og hafa hlotið bágt fyrir.

Erlent

Óeirðalögregla í Taílandi flýr mótmælendur

Um 150 óeirðalögreglalögreglumenn flúðu bækistöðvar sínar nærri alþjóðflugvellinum í Bangkok þegar mótmælendur réðust að þeim. Mótmælendurnir, sem vilja að ríkisstjórn landsins fari frá, hentu flugeldum og járnbútum að lögreglunni.

Erlent

Umsátinu um Taj Mahal loks lokið

Umsátrið um hið fornfræga hótel Taj Mahal í Múmbai á Indlandi er loks á enda. Víkingasveit indverska hersins sem kallast Svörtu kettirnir fóru herbergi úr herbergi á hótelinu til þess að ráða niðurlögum síðustu hryðjuverkamannanna sem réðust til atlögu síðasliðinn föstudag.

Erlent

Umsátrinu í Mumbai lokið

Umsátrinu um hið fornfræga hótel Taj Mahal í Múmbai á Indlandi er loks á enda. Víkingasveit indverska hersins sem kallast Svörtu kettirnir fóru herbergi úr herbergi á hótelinu til þess að ráða niðurlögum síðustu hryðjuverkamannanna sem réðust til atlögu síðasliðinn föstudag. Að minnsta kosti 195 létu lífið í árásinni. Líklegt er talið að al-Kaida hafi átt einhvern þátt í árásinni þar sem hryðjuverkamennirnir sóttust sérstaklega eftir að myrða Bandaríkjamenn og Breta.

Erlent

Selja má Sarkozy-vúdúbrúðu

Franskur áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað að vúdú-brúður af Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, megi selja, með því skilyrði að með fylgi áminning um að það særi virðingu persónu forsetans að stinga nálum í brúðuna.

Erlent

Hitti báða Castro-bræður

Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, eyddi megninu af gærdeginum með Raúl Castro Kúbuforseta, átti við hann viðræður um samstarf Kúbu og Rússlands og naut leiðsagnar hans í skoðunarferðum. Medvedev hitti líka bróður Raúls, byltingarforingjann Fídel, á sjúkrabeði hans í Havana.

Erlent

Bújarðasvipting dæmd ólögleg

Dómstóll sem settur var á fót af samtökum ríkja í sunnanverðri Afríku og hefur aðsetur í Namibíu hefur úrskurðað að 77 hvítir Simbabvemenn geti haldið bújörðum sínum; þeir hafi verið sviptir þeim með ólögmætum hætti þar sem landtökustefna stjórnvalda byggði á kynþáttamisrétti.

Erlent

Dæmdur til að fá sýru í augun

Sharía dómstóll í Íran hefur komist að þeirri niðurstöðu að maður, sem skvetti sýru framan í konu árið 2004, skuli hljóta sömu örlög. Maðurinn greip til ódæðisins á sínum tíma eftir að konan hafði margsinnis hafnað bónorðum hans. Að lokum ákvað hann að skvetta sýrunni framan í hana að eigin sögn til þess að koma í veg fyrir að nokkur annar maður myndi vilja líta við henni.

Erlent

Einn ódæðismaður verst enn á Taj Mahal hótelinu

Indverskar öryggissveitir telja að einn hryðjuverkamaður leiki enn lausum hala á Taj Mahal hótelinu í Mumbai. Hann er sagður hafa komið sér vel fyrir þannig að ómögulegt hefur verið að vinna á honum. Hann virðist vera vel vopnum búinn og kastar hann handsprengjum í átt að hermönnum sem reyna að nálgast hann. Dánartalan eftir árásirnar sem hófust í fyrradag er nú 160 og eru fjölmargir slasaðir.

Erlent

Vatíkanið segir nútímatækni spilla sálinni

Vatíkanið varar við því að nútímatækni á borð við farsíma og Netið geti verið beinlínis heilsuspillandi fyrir sálina. Öll þessi nýja tækni ræni fólk hreinlega þeim tíma sem það þurfi til að sinna andlegum málefnum.

Erlent

Öryggissveitir að ná tökum á ástandinu

Öryggissveitir indverska hersins virðast vera að ná tökum á ástandinu á hótelunum tveimur sem ráðist var á í gær í Mumbai. Fréttastofa SKY greinir frá því að 39 gíslar hafi verið frelsaðir á Taj hótelinu í borginni og virðist umsátursástand þar vera yfirstaðið.Enn er í gangi umsátur um miðstöð Gyðinga í borginni að því er fulltrúi ísraelska utanríkisráðuneytisins segir fréttastofu CNN. Indverskir miðlar segja ljóst að árásarmennirnir hafi skipulagt ódæðin, sem leiddu til dauða rúmlega 120 manna, gríðarlega vel.

Erlent

Þota hrapaði í miðjarðarhafið

Farþegavél að gerð Airbus A320 hrapaði í Miðjarðarhafið út af suð-vesturströnd Frakklands í dag. Fimm manns voru um borð í vélinni sem var í æfingarflugi. Ekki er vitað nánar um slysið að svö stöddu.

Erlent

Svíar senda flugvél til að sækja særða í Mumbai

Svíar undirbúa nú að senda sérútbúna flugvél til Mumbai til að ferja evrópska borgara sem slösuðust í árásum í borginni til síns heima. Utanríkisráðherra Svíþjóðar sagði í samtali við AP fréttastofuna að Boeing 737-800 vél hefði að upplagi Evrópusambandsins verið útbúin fyrir sjúkraflutninga. Í vélinni er hægt að meðhöndla sex alvarlega slasaða sjúklinga, og 23 mikið, en ekki lífshættulega, slasaða.

Erlent