Erlent

Viðbúnaður vegna árása ETA

Mikill viðbúnaður er á Spáni vegna hálfrar aldar afmælis ETA, aðskilnaðarhreyfingar Baska. Tvær sprengjuárásir í vikunni hafa minnt þjóðina illilega á harðsvíraða baráttu hreyfingarinnar undanfarna áratugi.

Erlent

Mikill olíuleki við suðurströnd Noregs

Verulegt magn af olíu hefur lekið úr kínverska flutningaskipinu Full City, sem strandaði við suðurströnd Noregs snemma í fyrrinótt. Síðar um nóttina sökk norskt flutningaskip við suðvesturströnd Svíþjóðar og er sex manna úr áhöfn þess saknað.

Erlent

Vilja nýja hraðaskynjara

Airbus-flugvélaverksmiðjurnar gáfu það út í gær að þær þrýstu nú á fjölda flugfélaga að skipta um hraðaskynjara á allt að 200 Airbus-farþegavélum og nota skynjara frá bandarískum framleiðanda en ekki frá franska framleiðandanum Thales sem fram að þessu hefur annast gerð skynjaranna.

Erlent

Tónleikagestir gerast æ hagsýnni

Aðstandendur hvers kyns tónleika í Los Angeles segjast taka eftir því hve fólk leggur sig nú í líma við að næla sér í síðustu aðgöngumiða á tónleika en þeir eru oft seldir með verulegum afslætti frekar en að hafa auð sæti á tónleikunum.

Erlent

Ruddust vopnaðir inn á heimili

Lögregla í Sakskøbing á Lálandi leitar tveggja manna sem ruddust inn á heimili rúmlega sextugrar konu snemma í morgun, vopnaðir skammbyssu, og heimtuðu peninga ásamt bíllyklum konunnar.

Erlent

Flutningaskip strand við Noreg

Norðmenn eru mjög uggandi um að umhverfisslys vofi yfir eftir að flutningaskip frá Panama strandaði við Langesund í Þelamörk í nótt.

Erlent

Almættið í spilarann

Ekki ómerkari maður en Benedikt sextándi páfi gæti blandað sér í slaginn um vinsælustu jólatónlistina í ár, en plata með páfanum er væntanleg í verslanir fyrir jólin.

Erlent

Gjald á starfsmannastæði 2012

Yfirvöld í Nottingham í Bretlandi munu í dag kynna nýja gjaldtöku sem tekur gildi árið 2012 og hefur þegar vakið úlfúð hjá vinnuveitendum og samtökum bíleigenda.

Erlent

Framkvæmdastjóri NATO kveður

Á mánudaginn tekur Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, við af Jaap de Hoop Scheffer sem framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, NATO.

Erlent

Tveir látnir eftir sprengingu á Mallorca

Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir að sprengja sprakk fyrir utan lögregluskýli á Mallorca. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum létu tveir borgaralegir lögreglumenn lífið í sprengingunni og fjöldi fólks særðist.

Erlent

Konur, heilbrigðisstarfsmenn og börn verða í forgangi

Barnshafandi konur, heilbrigðisstarfsmenn og börn eldri en sex mánaða verða í forgangi þegar bólusetning hefst gegn svínaflensunni í Bandaríkjunum í haust. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu þetta í gær. Ekki er enn búið að skilgreina áhættuhópana hérlendis

Erlent

Lýsa yfir ábyrgð á hótelsprengingum

Hópur, sem segist vera indónesískur armur al Qaeda-hryðjuverkasamtakanna, hefur lýst yfir ábyrgð á hótelsprengingunum sem urðu níu manns að bana í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, um miðjan mánuðinn.

Erlent

Fimm í haldi eftir skotárás

Fimm menn eru í haldi lögreglu í Kaupmannahöfn eftir að sjö skotum var hleypt af á Nørrebro í nótt. Enginn er þó slasaður en lögregla telur að hópur manna hafi veitt manni eftirför og skotið á hann.

Erlent

Fundu bíl í eldhúsinu

Hjón í bæ einum í Suður-Wales urðu heldur betur undrandi þegar þau vöknuðu í gærmorgun og fundu bíl í eldhúsinu hjá sér, eða öllu heldur framenda á bíl.

Erlent

Sex handteknir í Mexíkó

Sex félagar í einum stærsta fíkniefnahring Mexíkó, þar á meðal maður sem talinn er sjá um bókhald hringsins, voru handteknir í vikunni þegar mexíkóskir sérsveitarmenn létu til skarar skríða gegn þeim.

Erlent

Nígería: Þúsundir flýja að heiman

Hörð átök geisa nú í norðanverðri Nígeríu milli íslamskra uppreisnarmanna og stjórnarhersins. Átökin hafa kostað tugi manna lífið og þúsundir almennra borgara á svæðinu hafa flúið heimili sín.

Erlent