Erlent

Mun aldrei gleyma eyðileggingunni

„Ég mun aldrei gleyma eyðileggingunni og þeirri þjáningu sem ég hef orðið vitni að í dag,“ sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, við fréttamenn eftir að hafa farið um flóðasvæðin í Pakistan í dag. Hrikaleg flóð hafa valdið gríðarlegu tjóni í landinu undanfarna daga. Yfirvöld í Pakistan telja að 20 milljónir íbúa hafi misst heimili sín.

Erlent

Sprengjuhótun á kaþólskri hátíð

Franska lögreglan rýmdi fyrr í dag svæði í kringum fjölfarinn ferðamannastað í bænum Lourdes í Frakklandi í kjölfar sprengjuhótunar. Lögreglu barst tilkynning um að fjórar sprengjur myndu springa klukkan eitt eftir hádegi í grennd við helli í bænum sem er helgur staður í augum margra kaþólikka.

Erlent

Átta létust þegar kappakstursbifreið ók á hóp áhorfenda

Mikill harmleikur átti sér stað í Kaliforníu þegar að minnsta kosti 8 létust og 12 slösuðust þegar kappakstursbifreið var ekið inn í hóp áhorfenda á vinsælum kappakstri, California 200, í Mojave eyðimörkinni í Suður-Kaliforníu í nótt, að því er fram kemur á vef BBC. Margir hinna slösuðu voru fluttir með sjúkraþyrlum á spítala.

Erlent

Allt hjálparstarf verði samræmt

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sem kom til Pakistan í morgun segir að allur heimurinn standi við bakið á Pakistan og krefst þess að allt hjálparstarf handa þeim sem illa hafa orðið úti úr flóðunum í landinu verði samræmt.

Erlent

Málglaðir á dollunni

Sex af hverjum tíu aðspurðum hafa talað í GSM síma á meðan þeir sátu á klósettinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem danska markaðsfyrirtækið Wilke gerði þar í landi. Í sömu könnun var þriðjungi aðspurðra sama þótt sá sem þeir töluðu við sæti á dollunni.

Erlent

Heimsækir flóðasvæðin í Pakistan

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsækir Pakistan um helgina en hrikaleg flóð hafa valdið gríðarlegu tjóni í landinu að undanförnu. Raza Gilani, forsætisráðherra landsins, sagði í ávarpi í tilefni þjóðhátíðardags Pakistans fyrr í dag að 20 milljónir manna hafi misst heimili sín í flóðunum en áður höfðu Sameinuðu þjóðirnar sagt að 14 milljónir íbúa landsins væru heimilislausir.

Erlent

Milljónir hafa misst heimili sín

Forsætisráðherra Pakistans segir að um 20 milljón manna hafi misst heimili sín í flóðunum. Búist er við að flóðin muni færast í aukana í suðurhluta landsins nú um helgina. Mjög er óttast að farsóttir breiðist út með menguðu vatni, þar sem fólk hefur leitað sér skjóls í tjaldbúðum. Búið er að staðfesta að minnsta kosti eitt kólerutilfelli.

Erlent

Meira rignir ofan í flóðin

Ár flæddu enn yfir bakka sína og nýjar aurskriður ollu tjóni á hamfarasvæðunum í Kína, þar sem enn meiri rigningu er spáð næstu daga. Ástandið er verst í Gansu-héraði í norðvestanverðu Kína, þar sem á annað þúsund manns hafa farist og tugir þúsunda þurft að yfirgefa heimili sín.

Erlent

Eldsneytið sent í næstu viku

Rússar ætla í næstu viku að útvega eldsneyti í fyrsta kjarnorkuver Írans þrátt fyrir harða andstöðu Bandaríkjamanna, sem vilja koma í veg fyrir að Íranar geti framleitt kjarnorku nema þeir hafi fyrst fært sönnur á að þeir ætli ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum.

Erlent

Dómari leyfir hjónaböndin

Vaughn R. Walker, yfirhéraðsdómari í Kaliforníu, sá hinn sami og fyrir skemmstu kvað upp þann dóm að bann við hjónaböndum samkynhneigðra brjóti í bága við stjórnarskrá ríkisins, hafnaði í gær beiðni um að gildistöku dómsins verði frestað þangað til áfrýjunardómstóll ríkisins hefur tekið á málinu.

Erlent

Íbúarnir allir sendir úr landi

Meira en 40 búðir sígauna hafa verið rýmdar í Frakklandi á síðustu tveimur vikum. Um 700 íbúar þeirra verða sendir úr landi til Búlgaríu eða Rúmeníu með flugi.

Erlent

Neituðu sér um úrvalsviský

Þegar Ernest Shackleton fór í könnunarleiðangur á Suðurheimsskautið árið 1907 hafði hann meðferðis 11 flöskur af skosku viský. Hann náði hins vegar aldrei að smakka á guðaveigunum. Viskýflöskurnar, sem eru merktar McKinley & Co, fundust í kössum í ísnum á Suðurheimsskautinu þegar fornleifafræðingar frá Nýja-Sjálandi rannsökuðu vegsummerki eftir Shackleton og félaga fyrir fjórum árum síðan.

Erlent

Blaðamenn fordæma WikiLeaks

Samtökin Blaðamenn án landamæra hafa skrifað WikiLeaks opið bréf þar sem þau gagnrýna harðlega birtingu á 70 þúsund leyniskjölum bandaríska hersins um stríðið í Afganistan.

Erlent

Miklir skógareldar geysa í Portúgal

Um eitt þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við 30 skógareldar sem geysa í nágrenni bæjarins Sao Pedro í norðurhluta Portúgal. Innanríkisráðherra landsins líkir stöðunni á svæðinu við stríðsástand.

Erlent

Veiðiferð endaði hörmulega

Fyrrum öldungadeildarþingmaður á bandaríska þinginu, repúblikaninn Ted Stevens, var á meðal þeirra sem létust í flugslysi í Alaska á mánudag.

Erlent

Leita að elstu öldungunum

Japanar státa sig af meira langlífi en aðrar þjóðir. Strik var þó sett í þann reikning í síðasta mánuði þegar í ljós kom að hundruð manna, sem hafa verið á skrá yfir elsta fólk Japans, eru ýmist löngu látnir eða ekkert hefur til þeirra spurst svo árum eða jafnvel áratugum skiptir.

Erlent

Hún SKAL grýtt í hel

Sakine Ashtiani er 43 ára gömul ekkja og tveggja barna móðir. Hún var árið 2006 dæmd til að vera húðstrýkt fyrir að hafa stundað kynlíf utan hjónabands með tveim karlmönnum.

Erlent

Neyða börn til herþjónustu

Úgönsku skæruliðasamtökin, Frelsisher drottins, eru sögð hafi rænt börnum og fullorðnum til að afla sér nýrra liðsmanna. Markmiðið er að ráða yfir afskekktum svæðum í Mið-Afríku.

Erlent

Ein fyrir útrásarvíkinga

Þakíbúð í Lundúnum hefur verið seld fyrir metfé. Hún er ein af fjórum þakíbúðum sem eru í fjórum samliggjandi turnum sem verið er að reisa við heimilisfangið One Hyde Park.

Erlent

Leit hætt að Norðmönnum á Grænlandi

Leit hefur verið hætt að Norðmönnunum tveimur sem enn eru ófundnir á Grænlandi. Líkið af félaga þeirra fannst í á í Paradísardalnum þar sem þeir höfðu ætlað að vera við laxveiðar.

Erlent