Erlent

Allt hjálparstarf verði samræmt

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sem kom til Pakistan í morgun segir að allur heimurinn standi við bakið á Pakistan og krefst þess að allt hjálparstarf handa þeim sem illa hafa orðið úti úr flóðunum í landinu verði samræmt.

Framkvæmdastjórinn kom til Pakistan með flugvél flughers Pakistan. Síðar í dag mun hann síðan heimsækja flóðasvæðin og eiga fundi með Asif Ali Zardari forseta Pakistans og forsætisráðherranum Yousuf Raza Gilani.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×