Erlent

Málglaðir á dollunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sex af hverjum tíu Dönum hafa talað í GSM síma á meðan þeir sátu á klósettinu.
Sex af hverjum tíu Dönum hafa talað í GSM síma á meðan þeir sátu á klósettinu.
Sex af hverjum tíu aðspurðum hafa talað í GSM síma á meðan þeir sátu á klósettinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem danska markaðsfyrirtækið Wilke gerði þar í landi. Í sömu könnun sagðist þriðjungur aðspurðra vera sama þótt sá sem þeir töluðu við sæti á dollunni.

Klaus Æ. Mogensen, sérfræðingur í framtíðarrannsóknum, telur að niðurstöðurnar bendi til þess að nýtt hegðunarmynstur hjá fólki sé að festa sig í sessi.

„Fólk vill helst ekki missa af neinu. Utangáttarfælni er mjög útbreidd. Fólk vill ekki að tíminn fari til spillis eða að það sitji eitt og hugsi," segir Klaus í samtali við Newspaq fréttastofuna, sem Danmarks Radio vísar til.

En þrátt fyrir þessar niðurstöður sýndu niðurstöður sömu könnunar einnig að yfir helmingur telur að það sé ósmekklegt að tala við einhvern sem situr á klósettinu.

Vísir hefur ekki upplýsingar um að könnun af þessu tagi hafi verið gerð á Íslandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×