Fyrsti sigur Chelsea á tímabilinu | Sjáðu mörkin og rauða spjaldið hjá Terry Anton Ingi Leifsson skrifar 23. ágúst 2015 14:15
Chelsea vann sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið þegar Chelsea vann 3-2 sigur á WBA í frábærum knattspyrnuleik. Fimm mörk litu dagsins ljós sem og eitt rautt spjald. Veislan hófst strax á fjórtándu mínútu. Nemanja Matic gerðist þá brotlegur innan teigs og Mark Clattenburg, góður dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu. James Morrison steig á punktinn, en lét Thibaut Courtois verja frá sér. Það var nýjasti leikmaður Chelsea sem kom þeim á bragðið, en Pedro kom þeim yfir eftir gott samspil á 20. mínútu. Hann lagði upp næsta mark fyrir Diego Costa tíu mínútum síðar og staðan orðin 2-0. James Morrison náði að bæta upp fyrir vítaspyrnuklúðrið þegar hann minnkaði muninn með þrumuskoti, en Cesar Azpilicueta kom muninum aftur í tvö mörk þegar hann skoraði eftir frábæra skyndisókn. Staðan 3-1 í hálfleik, en á tíundu mínútu síðari hálfleiks dró til tíðinda. John Terry braut þá á Jose Salomon Rondon sem var að sleppa í gegn og fékk að líta rauða spjaldið, en atvikið má sjá neðar í greininni. Á 59. mínútu var James Morrison aftur á ferðinni, en hann skoraði þá frábært skallamark eftir fyrirgjöf Callum McManaman. 3-2, en mörkin urðu ekki fleiri og fyrsti sigur Chelsea á leiktíðinni staðreynd. Chelsea því með fjögur stig eftir leikina þrjá sem búnir eru, en WBA er einungis með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar.WBA klikkar víti: Diego Costa kemur Chelsea í 2-0: James Morrison minnkar muninn í 2-1: Azpilicueta 3-1: Terry fær rautt: Morrison minnkar muninn í 3-2:
Enski boltinn Mest lesið Vill fá frí milli leikja eins og frönsku liðin Fótbolti Botnlanginn fjarlægður úr Embiid Körfubolti Formleg kvörtun á borði UEFA: Átti Barcelona að fá víti gegn Atlético? Fótbolti „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Handbolti Svartfellingar gerðu stelpunum okkar góðan greiða Handbolti Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Körfubolti Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport KA - Valur 30-33 | Svöruðu fyrir sig en tókst ekki að landa sigri Handbolti Besta-spáin 2026: Óþreyja í Garðabænum Íslenski boltinn „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Golf Fleiri fréttir Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Sjá meira