Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, óttast morðtilræði gegn sér og ætlar að láta sig hverfa. Enski boltinn 2.10.2026 18:57
Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Uppljóstarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, mun ekki njóta verndar í heimalandi sínu mikið lengur. Hann óttast um öryggi sitt og er staða hans sögð grafalvarleg. Enski boltinn 2.10.2026 17:06
City-menn búnir að áfrýja Forráðamenn Manchester City greindu frá því í dag að búið væri að áfrýja úrskurði óháðrar nefndar ensku úrvalsdeildarinnar um að félagið hefði brotið af sér í öllum ákæruliðum tengdum brotum á fjármálareglum deildarinnar. Enski boltinn 2.10.2026 11:14
Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn 1.10.2026 09:02
Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Pep Guardiola, einn þeirra sem nutu góðs af umfangsmiklu svindli Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, hvetur City-fólk til að standa saman í þeim stormi sem félagið er nú í. Enski boltinn 30.9.2026 13:17
Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Micah Richards, fyrrverandi leikmaður Manchester City, segist niðurbrotinn eftir að hafa lesið fordæmandi sektardóm ensku úrvalsdeildarinnar yfir uppeldisfélagi hans. Enski boltinn 30.9.2026 12:01
„Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Framkvæmdastjóri Manchester City, Ferran Soriano, hefur haldið því fram að sektardómurinn yfir félaginu sé afleiðing „samsæri ensku úrvalsdeildarinnar“ og að félagið muni áfrýja úrskurðinum. Enski boltinn 30.9.2026 08:44
Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Nick Harris, fréttamaður hjá Sky News í Bretlandi, reyndi að taka Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, tali á fundi stjórnarmanna Evrópufélaga í Kaupmannahöfn. Úr urðu heldur vandræðaleg samskipti. Enski boltinn 29.9.2026 18:00
Harðorð yfirlýsing Manchester City Forráðamenn Manchester City hafa gefið út yfirlýsingu þar sem að þeir lýsa vonbrigðum sínum og undrun á yfirlýsingu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að sekt félagsins í umfangsmiklu máli var í dag staðfest. Enski boltinn 29.9.2026 16:55
Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og fyrrverandi þjálfari Southampton, Tottenham og Chelsea á Englandi, segir dóm Manchester City í 114 kæruliðum fyrir fjárlagabrot sjokkerandi. Ómögulegt sé að segja til um hvernig eigi að refsa félaginu. Enski boltinn 29.9.2026 16:45
City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enska úrvalsdeildin sendi síðdegis frá sér yfirlýsingu þar sem sekt Manchester City í máli sem viðkemur brotum á fjármálareglum er staðfest. Málið hafði lekið út á föstudaginn var. Yfirlýsingin er harðorð í garð félagsins. Enski boltinn 29.9.2026 16:19
Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane Patrick Vieira, fyrrverandi miðjumaður Arsenal, átti fund með Sir Alex Ferguson um möguleg skipti frá Arsenal til Manchester United snemma á þessari öld. Gríðarmikill rígur var milli liðanna. Enski boltinn 29.9.2026 15:30
City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Forráðamenn Manchester City voru upplýstir um það í júlí af óháðri nefnd ensku úrvalsdeildarinnar að félagið yrði dæmt sekt í 114 af 115 kæruliðum gegn félaginu vegna fjárhagsbrota. Enski boltinn 29.9.2026 14:00
Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Fyrstu opinberu viðbrögðum Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, við sekt félagsins í máli ensku úrvalsdeildarinnar á hendur félaginu, var lekið til BBC en Soriano er sagður hafa tjáð sig um málið á lokuðum fundi í Kaupmannahöfn í dag. Enski boltinn 28.9.2026 22:15
Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Djibril Cisse, fyrrverandi sóknarmaður Queens Park Rangers, lætur fyrrverandi knattspyrnudómarann Mike Dean og leikmanninn Wayne Rooney heyra það í færslu á samfélagsmiðlinum X fyrir ummæli sem þeir létu falla fyrir tæpu ári síðan í þættinum Overlap. Enski boltinn 28.9.2026 18:55
Isak og Gakpo sendir meiddir heim Liverpool-mennirnir Alexander Isak og Cody Gakpo hafa báðir verið sendir heim til Englands eftir að hafa meiðst í törn með sínu landsliði. Enski boltinn 28.9.2026 13:46
Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Roberto Mancini, þjálfari Ítalíu og fyrrverandi þjálfari Manchester City, vildi fátt segja um fjármálabrot síns gamla félags meðan hann var knattspyrnustjóri þess. Enski boltinn 28.9.2026 11:32
Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, hefur tjáð sig í fyrsta sinn opinberlega eftir að fréttir bárust af því í gær að Manchester City hafði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í máli sem enska úrvalsdeildin höfðaði gegn félaginu fyrir brot á fjármálareglum deildarinnar. Enski boltinn 26.9.2026 19:01
Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Manchester City verður dæmt sekt í öllum nema einum af 115 ákæruliðum, fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 25.9.2026 14:17
Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Foreldrar Billy Vigar, knattspyrnumanns sem lét lífið eftir að hafa lent á steinsteyptum vegg umhverfis völl sem hann spilaði á með liði sínu, telja að hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða hans og skella sökinni á enska knattspyrnusamabndið. Enski boltinn 25.9.2026 07:30
Rooney tekur fyrir kjaftasögur Wayne Rooney hefur tekið miklum breytingum á undanförnum mánuðum og ræddi hann þær þegar hann mætti í breska þáttin This Morning á ITV í gær. Enski boltinn 25.9.2026 07:00
Braut kynferðislega á Andy Carroll Fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Andy Carroll, var beittur kynferðislegu ofbeldi árið 2021 þegar hann var leikmaður Newcastle United. Enski boltinn 24.9.2026 11:51
Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, langar að leyfa stuðningsmönnum að drekka bjór í stúkunni á fótboltaleikjum. Árið 1985 komu út lög sem bönnuðu bjórdrykkju á fótboltaleikjum til að sporna gegn óeirðum á fótboltavöllum. Enski boltinn 24.9.2026 10:01
George Gillett látinn George Gillett, fyrrverandi eigandi Liverpool, er látinn 87 ára að aldri. Enski boltinn 24.9.2026 09:31
Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Manchester United er enn með skuldir upp á meira en einn milljarð punda þrátt fyrir umfangsmikinn niðurskurð hjá félaginu undanfarin misseri. Enski boltinn 23.9.2026 23:16