ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Valur Páll Eiríksson skrifar 22. apríl 2026 20:55 ÍA Vísir/Guðmundur Það er með hreinum ólíkindum að KA fari heim með stig í farteskinu eftir 1-1 jafntefli við ÍA í Akraneshöllinni í þriðju umferð Bestu deildar karla. Skagamenn nýttu færi sín hrein agalega og var refsað fyrir það. Mikil eftirvænting var á Akranesi fyrir fyrsta heimaleik ÍA-liðs sem ætlað eru mikil afrek í sumar. Skagamenn voru óverðskuldað með eitt stig fyrir leik dagsins við KA-menn sem voru einnig fúlir yfir dræmri uppskeru í upphafi móts. Þeir mættu stigalausir til leiks eftir töp fyrir Stjörnunni og Víkingi heima fyrir til að byrja með. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, bjóst við frábrugðnu verkefni í dag, að KA-menn gætu haldið betur í boltann og sótt meira. Ef til vill voru þeir meira með boltann í byrjun en verið hafði í fyrstu tveimur leikjunum en þá gerðu þeir ekkert svakalega mikið við hann. Skagamenn voru töluvert beittari og uppskáru mark frá Markúsi Páli Ellertssyni eftir rúmlega hálftíma leik. Það kom eftir misheppnað innkast KA á miðjum velli. ÍA vann boltann, geystist af stað og Gísli Eyjólfsson fann Markús sem afgreiddi vel. Flott skyndisókn heimamanna en agalegt mark fyrir gestina að fá á sig. Alltof einfalt. ÍA leiddi 1-0 í hálfleik en sá munur hefði átt að vera meiri. Áfram óðu Skagamenn í færum eftir hlé og oftar en einu sinni þurfti Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, í marki KA að taka á honum stóra sínum. KA náði einhverjum rispum en allt leit út fyrir að Skaginn myndi vinna þægilegan sigur, enda yfirspilandi Norðanmenn stærstan part. Þegar stundarfjórðungur var eftir jafnaði hins vegar varamaðurinn Diego Montiel með hnitmiðuðu skoti eftir fyrirgjöf Valdimars Sævarssonar frá hægri. Glæsileg afgreiðsla og á meðan KA-menn fögnuðu sat öll stúkan í áfalli yfir því að staðan væri jöfn. Bæði lið sóttust eftir sigurmarki síðasta korterið en færin létu á sér standa. Leiknum lauk 1-1 og þriðja leikinn í röð sitja Skagamenn eftir án sigurs í leik sem þeir hefðu átt að vinna. Uppskera beggja liða er dræm í upphafi móts. KA er með eitt stig en ÍA tvö eftir þrjá leiki. Atvik leiksins Steinþór Már Auðunsson, markvörður KA, varði í tvígang frá Gísla Laxdal Unnarssyni sem slapp í gegn á 67. mínútu. Viktor Jónsson skaut í kjölfarið yfir gegn nánast auðu marki. Þremur mínútum síðar jafnaði KA. Þar var vendipunktur. En færi ÍA voru nánast óteljandi fyrir það klúður. Stjörnur og skúrkar Margar öflugar frammistöður en Steinþór Már Auðunsson er stjarna leiksins fyrir vörslur sínar úr dauðafærum. Hann bjargaði stigi fyrir KA. Margir sem spiluðu vel í Skagaliðinu sem var gaman að horfa á í kvöld. Sundurspiluðu KA á köflum. Last á framherja ÍA. Nánast allir með tölu fengu gott færi, eða tvö, sem fóru í súginn. Dómararnir Helgi Mikael Jónasson og hans teymi lét leikinn fljóta vel og engir vafadómar. Flott! Stemningin og umgjörð Sérkennilegt að vera hér innanhúss og fimm sinnum kom það fyrir að boltanum var sparkað upp í loft, eða öllu heldur upp undir þakið, og til þurfti dómarakast. Rúmlega 700 manns létu sjá sig, sem verður að teljast býsna gott. Stemningin með ágætum. Besta deild karla ÍA KA Íslenski boltinn
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti