Eng­land - Ís­land 2-0 | Tveggja marka tap gegn Evrópumeisturunum

Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar
Lucy Bronze skoraði fyrsta markið og lagði annað markið upp.
Lucy Bronze skoraði fyrsta markið og lagði annað markið upp. Molly Darlington/Getty Images

England vann 2-0 sigur gegn Íslandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta þökk sé marki og stoðsendingu frá Lucy Bronze.

Stelpurnar okkar eyddu mestum tíma í að verjast í dag og gerðu það nokkuð vel, en tvær fyrirgjafir frá Englendingum rötuðu á réttan stað.

Lucy Bronze skallaði boltann í netið í fyrra skiptið eftir fyrirgjöf Laureen James. Georgia Stanway skoraði svo seinna markið eftir fyrirgjöf frá hægri bakverðinum Bronze.

England tyllir sér þar með í efsta sæti riðilsins með fullt hús stiga en Ísland er enn án stiga eftir fyrstu leikina, gegn Englandi og Spáni. Úkraína og Spánn mætast svo síðar í dag.

Nánari umfjöllun væntanleg á Vísi von bráðar…

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira