Fordæma innbrot í Reykjabú Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma harðlega innbrot hjá Reykjabúi aðfaranótt mánudags. Í tilkynningu segja samtökin mikilvægt að háttsemi af þessu tagi sé skýrt fordæmd og stjórnvöld undirstriki að ólögmæt innkoma í landbúnaðarfyrirtæki verði ekki liðin. Innlent 2.6.2026 15:44
„Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Bóndi á Reykjabúi í Mosfellsbæ segir einn mann hafa verið að verki í innbroti á býlið aðfaranótt mánudags, maðurinn hafi borið fugla út sem síðar hafi þurft að aflífa. Hann hafi skilið eftir bréf þar sem hann hafi afsakað gjörðir sínar. Bóndinn segir um mikið áfall að ræða. Innlent 2.6.2026 11:00
Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. Innlent 2.6.2026 10:08
Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið fái að njóta vafans. Þá verða óháðir sérfræðingar fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hefur verið veitt í ána og Varmárósa. Innlent 27. maí 2026 13:17
Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Landvernd og heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar hafa miklar áhyggjur af mengun í Varmá. Veitur eru nú við leit að heitu vatni í Skammadal í Mosfellsbæ og hefur leitin valdið litabreytingum á vatninu. Alls verða boraðar fjórar vinnsluholur á svæðinu fram á haust og eru tvær vikur eftir af vinnu í þeirri holu sem nú er verið að bora. Innlent 27. maí 2026 06:30
Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Viðræður eru hafnar í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði er einnig rætt við Samfylkinguna. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti oddvita Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokks á Kjarvalsstöðum í dag. Innlent 22. maí 2026 19:08
Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur boðið Viðreisn til formlegra meirihlutaviðræðna í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna um liðna helgi. Innlent 22. maí 2026 13:25
Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Von er á tíðindum frá Mosfellsbæ í dag varðandi meirihlutaviðræður í næstu bæjarstjórn samkvæmt oddvita Sjálfstæðisflokksins sem vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni hittir oddvita Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í dag. Innlent 22. maí 2026 13:05
Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Erlendir aðilar réðust á starfsmann á skoðunarstöð ökutækja í Reykjavík. Starfsmaðurinn mat bíl þeirra ekki í ökuhæfu ástandi. Innlent 19. maí 2026 19:12
Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Rapparinn Aron Can og flugfreyjan Erna María eru sannkallað ofurpar en þau færðu sig nýverið í nýtt póstnúmer, úr Grafarvogi í Mosfellsbæ. Hjúin keyptu tæplega 200 milljón króna einbýlishús sem er enn óklárað en þau eru bæði framkvæmdaglöð og sýna frá ferlinu á samfélagsmiðlum. Lífið 19. maí 2026 09:41
Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum manni í Mosfellsbæ og er stærstur flokka með fimm menn. Meirihlutinn er kolfallinn með aðeins fjóra menn. Innlent 17. maí 2026 03:20
„Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var himinlifandi þegar fréttamaður Sýnar bar honum tíðindi af fylgisaukningu flokksins í beinni útsendingu. Flokkurinn er með 42,5 prósent fylgi og meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur. Innlent 17. maí 2026 01:02
Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 15. maí 2026 18:02
Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Skjálfti af stærðinni 3,6 mældist á Mosfellsheiði rétt eftir hálf eitt í nótt. Innlent 13. maí 2026 01:09
Blóðug barátta á gryfjuboltamóti Þrumurnar úr Mosfellsbæ tóku bikarinn heim af glæsilegu gryfjuboltamóti sem fram fór í Egilshöllinni laugardaginn 9. maí. Fjórtán lið mættu til leiks, eða um 140 keppendur, og vonast skipuleggjendur til að mótið verði árlegt. Lífið 12. maí 2026 15:57
Guðmundur Ingi svarar fyrir umdeilt myndband Gervigreindarmyndband sem birt var á TikTok-aðgangi oddvita Flokks fólksins í Reykjavík, Guðmundar Inga Þóroddssonar, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Þar mátti meðal annars sjá Guðmund veitast að Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar, og Ingu Sæland dansandi káta. Myndbandið hefur nú verið tekið niður og segir Guðmundur að um dómgreindarleysi sé að ræða. Innlent 11. maí 2026 16:23
Oddvitaáskorunin: Þekktur sem Iceman í Noregi Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 9. maí 2026 09:02
Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ Ungliðar Miðflokksins í Mosfellsbæ koma myndbandi flokksins til varnar en þar mátti sjá ungan miðflokksmann veita pólitískum andstæðingi sínum kjaftshögg. Þeir segja myndbandið vísun í þekkt „meme“ og tölvuleikjamenningu. Þeir taka fram að oddvitar meirihlutans, sem fordæmdu myndskeiðið, séu ótengdir við unga fólkið í bæjarfélaginu. Innlent 8. maí 2026 21:10
Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma harðlega kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ. Þar má sjá ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og kýla mann sem kallaður er „libbi“ áður en hann sest upp í bíl. Oddviti Miðflokksins sakar andstæðinga sína um ritskoðun en myndbandið er horfið af síðu flokksins. Innlent 8. maí 2026 15:25
Ungmennafélagsandinn í útrýmingarhættu Nú hefur frjálsum íþróttum verið úthýst úr Laugardalnum, einnig hefur fullur löglegur frjálsíþróttavöllur verið fjarlægður að Varmá í Mosfellsbæ. Með þessum ákvörðunum hefur þrengst að frjálsum Íþróttum á höfuðborgarsvæðinu. Skoðun 8. maí 2026 12:17
Hugleiðing um barnamenningu í Mosfellsbæ í aðdraganda kosninga Mér hefur lengi verið barnamenning hugleikin og þá sérstaklega í Mosfellsbæ. Hér ólst ég upp og hér er ég að ala börnin mín upp. Á uppvaxtarárum mínum stundaði ég fjölda íþrótta og var í tónlistarskólanum, Barnakór Varmárskóla og Skólahljómsveitinni. Skoðun 8. maí 2026 11:32
Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur gefið út tilkynningu um að Hlíðavöllur verði opnaður 11. maí. Mosfellingar eru fyrstir á höfuðborgarsvæðinu til að hleypa kylfingum á grasið. Innlent 7. maí 2026 15:46
Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 7. maí 2026 09:01
Gerum betur í Mosfellsbæ Það er gott að búa í Mosfellsbæ. Við erum umlukin einstakri náttúru og er aðgengi að henni með því besta sem gerist. Tækifærin til íþrótta- og tómstundaiðkunar í bænum eru mýmörg og fjölbreytt, hvort sem litið er til Aftureldingar, golfklúbbsins, hestamannafélagsins eða annarra félaga. Skoðun 6. maí 2026 16:03