Erlent
332 333 334 ›
Fjöldi látinna kominn í tæplega 6000 Fjöldi látinna eftir að jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter reið yfir indónesísku eyjuna Jövu er nú kominn í tæplega sex þúsund. Þá eru tæplega 650 þúsund manns heimilislausir samkvæmt yfirvöldum í landinu Erlent 31.5.2006 07:32
Leyniskyttumorðinginn fundinn sekur um 6 morð til viðbótar Hinn fjörutíu og fimm ára gamli John Allen Muhammad var í gær fundinn sekur um að hafa skotið til bana sex manns eftir réttarhöld þar sem hann sá sjálfur um málsvörn sína. Alls féllu tíu manns og þrír særðust þegar Muhammad skaut fólk til bana af handahófi úr launsátri í Viginíuríki og í Maryland í Washington árið 2002. Erlent 31.5.2006 07:20
Bætist við heraflann í Austur-Tímor Hermenn frá Nýja-Sjálandi komu til Austur-Tímor í morgun til að reyna að stemma stigu við þeim átökum sem verið hafa í landinu undanfarið og hafa kostað tuttugu og sjö manns lífið. Erlent 31.5.2006 06:51
46 drepnir í Írak í gær Að minnsta kosti 25 manns féllu og um sjötíu eru særðir eftir að sprengja sprakk í grennd við vinsælan grænmetismarkað í norðurhluta Bagdad, höfuðborgar Íraks, í gærkvöld. Alls féllu því 46 manns í landinu í sprengjuárásum í gær. Erlent 31.5.2006 06:40
41 maður handtekinn Lögreglumenn víða um Evrópu handtóku á sunnudag 41 mann, eftir að ítalska lögreglan kom upp um glæpahring þar sem börn níu ára og eldri voru keypt eða leigð af fátækum fjölskyldum í Búlgaríu. Lögregla telur að vel yfir 100 börnum hafi verið smyglað til ýmissa Evrópulanda. Erlent 30.5.2006 21:58
Ráðherraskipti í Bandaríkjunum Henry Paulson, stjórnarformaður og forstjóri bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs, hefur verið tilnefndur sem næsti fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Hann tekur við embætti af John Snow, sem gegnt hefur embætti fjármálaráðherra vestra síðastliðin þrjú ár. Viðskipti erlent 30.5.2006 13:31
Ekki búist við breytingum á olíuframleiðslu Ekki er búist við breytingum á olíuframleiðslu á fundi Opec-ríkjanna, samtökum olíuframleiðsluríkja, sem haldinn verður í Caracas í Venesúela á fimmtudag. Þetta er þvert á óskir olíumálaráðherra Venesúela, sem hefur óskað eftir því að olíuframleiðsla verði minnkuð. Viðskipti erlent 30.5.2006 12:59
ESB braut lög Evrópusambandið braut lög þegar það ákvað að leyfa evrópskum flugfélögum að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um flugfarþega á leið til Bandaríkjanna. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins sem segir persónuvernd evrópskra farþega ekki tryggða nægilega vel í Bandaríkjunum. Dómstóllinn gefur fjögurra mánaða frest til að endurskoða samning um upplýsingagjöfina. Erlent 30.5.2006 12:17
Lítil von um að nokkur finnist á lífi Björgunarmenn segja litla sem enga von á að nokkur finnist á lífi í rústum húsa á indónesísku eyjunni Jövu en öflugur jarðskjálfti reið þar yfir á laugardaginn. Rúmlega fimm þúsund og fjögur hundruð manns fórust í hamförunum en skjálftinn mældist 6,3 á Richter. Erlent 30.5.2006 12:12
200 fangar í Abu Ghraib látnir lausir Bandaríkjaher hefur látið um það bil tvö hundruð írakska fanga lausa úr Abu Ghraib fangelsinu þar í landi. Þetta var gert þegar staðfest var að fangarnir hefðu ekki átt þátt í aðgerðum andspyrnumanna gegn hersveitum í Írak. Erlent 30.5.2006 10:51
Upplýsingagjöf ólögleg Evrópusambandið braut gegn lögum þegar það samþykkti að skylda evrópsk flugfélög til að láta Bandaríkjamönnum í té upplýsingar um flugfarþega þeirra. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins. Erlent 30.5.2006 09:18
Útgöngubann í Kabúl Útgöngubann hefur verið sett á í Kabúl, höfuðborg Afganistans, vegna átakanna sem þar hafa geisað síðasta sólarhring. Átökin hófust eftir að bandarískur herbíll keyrði á fjölda farartækja á götum borgarinnar og varð fimm manns að bana. Erlent 30.5.2006 06:50
Róstur gegn útlendingum í Kabúl Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í uppþotum í Kabúl, höfuðborg Afganistans, sem beinast gegn útlendingum í borginni. Tíu Íslendingar eru í Kabúl en ekkert amar að þeim, að sögn utanríkisráðuneytisins. Erlent 29.5.2006 20:02
Laun forstjóra Tesco hækka um 25 prósent Laun Terry Leahys, forstjóra bresku verslunarkeðjunnar Tesco, hafa hækkað um 25 prósent á milli ára. Árslaun forstjórans nema nú fjórum milljónum punda, jafnvirði rúmlega 524 milljóna íslenskra króna. Innifalin í launum hans eru hlunnindagreiðslur upp á 2,8 milljón pund, jafnvirði tæpra 380 milljóna íslenskra króna. Viðskipti erlent 29.5.2006 16:50
Einn blóðugasti dagurinn í Bagdad frá upphafi stríðsins Senn er að kveldi kominn einn blóðugasti dagurinn í Bagdad í Írak frá upphafi stríðs í landinu fyrir rúmum þremur árum. Minnst þrjátíu og þrír hafa fallið og fjölmargir særst í röð sprenginga. Erlent 29.5.2006 16:10
Dómkirkja brennur í Finnlandi Dómkirkjan í Porvoo í Suður-Finnlandi, ein elsta kirkja landsins, skemmdist töluvert í bruna í nótt. Ekki er vitað um eldsupptök en samkvæmt upplýsingum yfirvalda kviknaði eldurinn utan við kirkjuna og grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. Erlent 29.5.2006 15:50
Ekkert amar að Íslendingunum í Kabúl Ekkert amar að tíu Íslendingum sem eru að störfum í Kabúl, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu, en minnst átta manns hafa fallið og rúmlega hundrað slasast í átökum í borginni í dag. Innlent 29.5.2006 15:16
Eldvirkni í Merapi meiri eftir jarðskjálftann Yfirmaður hjálparstarfs hjá Sameinuðu þjóðunum segir björgunarsveitir og lækna í kapphlaupi við tímann að bjarga þeim sem slösuðust í jarðskjálfta sem skall á indónesísku eyjunni Jövu um helgina og varð minnst 5.000 manns að bana. Eldvirkni í eldfjallinu Merapi á Jövu hefur aukist. Erlent 29.5.2006 12:19
Verkamenn myrtir í Bagdad Tíu féllu og tólf særðust þegar vegsprengja sprakk nálægt rútu um áttatíu kílómetra norður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Allir þeir sem féllu voru verkamenn. Erlent 29.5.2006 11:21
Blóðugur morgunn í Kabúl Til blóðugra átaka kom í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun eftir að bandarískur herbíll lenti í hörðum árekstri við leigubíl og ók síðan á brott. Rúmlega fimmtíu skæruliðar talíbana munu hafa fallið í loftárás Bandaríkjamanna á mosku í suðurhluta landsins í morgun. Erlent 29.5.2006 10:44
Ríkisstjórn Austur-Tímor á neyðarfundi Ríkisstjórnin á Austur-Tímor kom saman til neyðarfundar í morgun eftir að uppreisnarmenn sögðust reiðubúnir að mæta til friðarviðræðna. Á sama tíma fara vígasveitir um höfuðborgina og leggja eld að húsum þrátt fyrir að ástralskir friðargæslumenn sjái um eftirlit á svæðinu. Erlent 29.5.2006 09:38
Barr býður hærra í Pliva Breska viðskiptablaðið Financial Times segir bandaríska lyfjafyrirtækið Barr hafa boðið 2,1 milljarð Bandaríkjadal, jafnvirði 152 milljarða íslenskra króna, í króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva. Tilboðið er 250 milljónum dölum hærra en tilboðið sem Actavis gerði í Pliva í apríl. Viðskipti erlent 29.5.2006 09:16
Loach fékk Gullpálmann Kvikmyndin „The Wind That Shakes the Barley", í leikstjórn breska leikstjórans Ken Loach, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gærkvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Loach fær þessi virtu verðlaun en hann hefur sjö sinnum áður átt mynd á hátíðinni. Lífið 29.5.2006 08:02
Páfi í Auschwitz-útrýmingarbúðunum Hinn þýskættaði Benedikt páfi sextándi skoðaði Auschwitz-útrýmingabúðirnar í Póllandi í gær, en um ein og hálf milljón manna, meirihlutinn gyðingar, voru drepnir í búðunum í helför Nazista í síðari heimsstyrjöld. Erlent 29.5.2006 06:55
Uribe endurkjörinn forseti Kólumbíu Hægrimaðurinn Alvaro Uribe var endurkjörinn forseti Kólumbíu í gær með miklum yfirburðum, eða 62% greiddra atkvæða. Næsti maður var einungis með rúmlega tuttugu prósenta fylgi, en úrslitin þykja ekki síst merkileg í ljósi þess að sitjandi forseti landsins hefur ekki náð endurkjöri í meira en öld. Erlent 29.5.2006 06:51
Tölur yfir fjölda látinna nokkuð á reiki Tala þeirra sem týndu lífi í jarðskjálftanum sem reið yfir á eyjunni Jövu í Indónesíu-eyjaklasanum aðfararnótt laugardags er nokkuð á reiki. Sumir fjölmiðlar segja hana nú allt að fimm þúsund og eitt hundrað á meðan aðrir segja hana nær fjögur þúsund, en talsmaður yfirvalda í Indónesíu sagði í morgun að ljóst sé að að minnsta kosti fjögur þúsund níu hundruð og áttatíu manns hafi beðið bana. Erlent 29.5.2006 06:46
Herréttur mun dæma Hill Bandaríski flugherinn hefur ákveðið að herréttur skeri úr um örlög Calvin Hills, fyrrverandi þyrluflugliða hjá Varnarliðinu, sem ákærður er fyrir morðið samstarfsmanni sínum, Ashley Turner. Erlent 28.5.2006 18:19
Liðhlaup færast í vöxt Yfir eitt þúsund breskir hermenn hafa gerst liðhlaupar síðan ófriðurinn í Írak braust út vorið 2003, að því er könnun breska ríkisútvarpsins leiðir í ljós. Erlent 28.5.2006 18:15
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon Ísraelskar herþotur skutu í morgun eldflaugum að búðum lítilla en herskárra palestínskra samtaka í Líbanon. Erlent 28.5.2006 12:04
Líðan Sharons óbreytt Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, var í morgun fluttur af Hadassah-sjúkrahúsinu í Jerúsalem á dvalarheimili í Tel Aviv fyrir fólk í dauðadái. Erlent 28.5.2006 12:06