Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Eiður Þór Árnason skrifar 29. apríl 2026 15:56 Hótelin voru áður rekin af Icelandair Hotels áður en Berjaya keypti reksturinn. Vísir/samsett Íslandshótel munu hefja hótelrekstur í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group árið 2019. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks. „
Það er engin óvissa. Það er alveg klárt mál að við ætlum að endurráða fólkið til okkar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við fréttastofu. Þetta eigi við um allt starfsfólk sem vinni á hótelunum tveimur í dag. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sumir starfsmenn hafi verið uggandi eftir fund með stjórnendum í dag og óttast um atvinnuöryggi sitt eftir yfirtökuna þann 1. september. Þá kom tilkynning stjórnenda Berjaya í dag um væntanlega yfirtöku sumum starfsmönnum á óvart. Enn ríkir óvissa um nöfn hótelanna eftir yfirtöku Íslandshótela þar sem Berjaya á vörumerkin Nordica og Natura, að sögn Davíðs. Hann telur þó líkur á því að hótelið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum alþjóðlegu Hilton-keðjunnar. Berjaya hætti við Í fyrra var greint frá því að leigusamningur fasteignafélagsins Reita sem á húsnæðið við Berjaya væri að renna út. Íslandshótel vildu þá taka við en Berjaya gat enn nýtt sér forleigurétt. Berjaya gaf út í maí 2025 að það ætlaði að nýta réttinn og leigja húsnæðið áfram en hætti síðar við. Þá komu Íslandshótel aftur að samningaborðinu með Reitum, að sögn Davíðs. Berjaya Hotels Iceland hf. tapaði tæplega milljarði króna árið 2025 og tapaði rúmlega 1,6 milljarði árið á undan. Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar hjá Reitum, Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita og Svana Huld Linnet, framkvæmdarstjóri viðskiptavina.Reitir „Þetta er búið að taka svolítið langan tíma, það verður að viðurkennast, en þetta hafðist,“ segir Davíð. „Íslandshótel munu vinna með hlutaðeigandi aðilum að tryggja eins góða samfellu og kostur er fyrir gesti sem eiga bókanir eftir 1. september 2026,“ segir í tilkynningu Íslandshótela. Reitir gera ráð fyrir góðri tekjuaukningu Reitir hafa gert samkomulag við Íslandshótel um að nýr leigusamningur taki gildi 1. september. „Nýr leigusamningur var undirritaður 10. apríl 2025 og nær til 17 ára. Með samkomulagi hefur núverandi leigutaki fallið frá forleigurétti sínum og leigutími hans verið framlengdur til 31. ágúst 2026,“ segir í tilkynningu frá Reitum til Kauphallar. Fasteignirnar séu samtals 26.500 fermetrar að stærð og ráðist verði í endurbætur á þeim sem feli meðal annars í sér endurnýjun á stórum hluta gistirýma sem séu samtals um 470 talsins. Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar vegna leigusamninganna verði um 620 milljónir króna á fyrstu tveimur og hálfa ári leigutímans en um 720 milljónir króna eftir það. Davíð hjá Íslandshótelum vildi ekki tjá sig um innihald nýja samningsins og hvort hann fæli í sér kostnaðarhækkun miðað við samning Berjaya. Íslandshótel eru stærsta hótelkeðja landsins og munu reka nítján hótel eftir yfirtökuna. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ferðaþjónusta Íslandshótel Reitir fasteignafélag Hótel á Íslandi Tengdar fréttir Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Berjaya Hotels Iceland hefur tilkynnt að þau ætli að nýta forleigurétt sinn við Reiti fasteignafélag hf. að Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura hótel er staðsett. Íslandshótel gerðu samning við Reiti í síðasta mánuði um rekstur og leigu til sautján mánaða með þeim fyrirvara að Berjaya hefði forleigurétt. 6. maí 2025 21:40 Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Reitir og Íslandshótel undirrituðu í gær leigusamninga til sautján ára um fasteignirnar að Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsvegi 52, sem hýsa hótelin Hilton Reykjavik Nordica og Reykjavík Natura. Núverandi leigutaki Berjaya hotels Iceland nýtur þó forleiguréttar og getur gengið inn í samningana. 11. apríl 2025 09:10 Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Berjaya Hotels Iceland hefur tilkynnt að þau ætli að nýta forleigurétt sinn við Reiti fasteignafélag hf. að Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura hótel er staðsett. Íslandshótel gerðu samning við Reiti í síðasta mánuði um rekstur og leigu til sautján mánaða með þeim fyrirvara að Berjaya hefði forleigurétt. 6. maí 2025 21:40
Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Reitir og Íslandshótel undirrituðu í gær leigusamninga til sautján ára um fasteignirnar að Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsvegi 52, sem hýsa hótelin Hilton Reykjavik Nordica og Reykjavík Natura. Núverandi leigutaki Berjaya hotels Iceland nýtur þó forleiguréttar og getur gengið inn í samningana. 11. apríl 2025 09:10