Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, verður á ferðinni um um Suðurland í dag ásamt maka sínum Birni Skúlasyni. Innlent 21.5.2026 08:53
Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál Vegagerðin hefur boðið út eftirlit og ráðgjöf með smíði nýrrar Þjórsárbrúar og gerð Búðafossvegar. Samningur um eftirlitið sem og fyrirhugað verkútboð eru þó háð því að búið verði að útkljá kærumál, sem árum saman hafa tafið bæði Hvammsvirkjun og Þjórsárbrúna. Innlent 19.5.2026 12:37
Fjölbreytt skólastarf í litlum skóla Nú þegar stutt er í annan enda skólaásins er venjan að líta um öxl og rifja upp það sem áorkast hefur í vetur. Skoðun 18.5.2026 11:32
Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi aflar nú gagna um erlenda ferðamanninn sem leitað var að árangurslaust í byrjun vikunnar í nágrenni við Háafoss í Þjórsárdal. Innlent 24. apríl 2026 14:57
Fresta leit að ferðamanninum Leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað í gær, eftir að hann fór að Háafossi í Þjórsárdal, hefur ekki borið árangur. Lögreglan á Suðurlandi segir að leitinni verði frestað þar til nýjar vísbendingar koma fram. Innlent 22. apríl 2026 22:06
Leita enn að ferðamanninum Lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir hafa hægt og rólega útvíkkað svæðið þar sem leitað er að erlendum ferðamanni, sem skilaði sér ekki á gististað í gær, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Leitað verður fram á kvöld, að þar til að maðurinn finnst. Innlent 22. apríl 2026 16:18
Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað í gær heldur áfram í námunda við Háafoss í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar og drónar voru notaðir þegar lögreglu- og björgunarsveitarmenn leituðu að honum í gær. Innlent 22. apríl 2026 09:53
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélags en er fjölskipað stjórnvald. Sumir oddvitar virðast þó ekki skilja hlutverk sitt og umboð. Skoðun 13. apríl 2026 08:01
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. Innlent 26. mars 2026 21:21
Bændurnir í Gunnbjarnarholti hlutu landbúnaðarverðlaunin Bændurnir í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þau Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir, tóku við landbúnaðarverðlaununum fyrir árið 2026 úr hendi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra á Búnaðarþingi fyrr í dag. Innlent 23. mars 2026 13:38
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Ágæta sveitarstjórnarfólk, nú er mér öllum nóg boðið eftir að ég las fundargerð sveitastjórnar Skeiða og Gnúpverjahrepps frá 18.mars 2026. Bókun oddvita sem fyrsta mál sveitastjórnarfundar. Sjá bókun.“ Skoðun 20. mars 2026 14:45
Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Leifur Jónsson er einn fjölmargra sjálfboðaliða sem hafa sinnt sporðamælingum jökla á Íslandi. Leifur segist sjálfur hafa álpast inn í þetta verkefni og svo haldið áfram að sinna því samhliða því að starfa sem læknir og eignast fjölskyldu. Katla Gunnlaugsdóttir, barnabarn hans, vinnur nú að heimildarmynd um mælingar afa síns. Innlent 13. mars 2026 06:02
Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Kýrin Plóma er engin venjuleg kýr því hún mjólkar svo mikið að sjaldan eða aldrei hefur annað sést hér á landi, enda sló Plóma Íslandsmet í afurðum á síðasta ári. Plóma er líka alltaf í góðu skapi og finnst fátt skemmtilegra en að hoppa og skoppa í fjósinu sínu. Innlent 5. mars 2026 20:06
Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Ferðamálastofa telur að Háifoss í Þjórsárdal gæti orðið einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á komandi árum. Það sé meðal annars vegna þess að fossinn birtist í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things. Innlent 26. febrúar 2026 10:22
Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Þau eru menntuð og hafa byggt upp umfangsmikinn landbúnaðarrekstur með níu starfsmönnum. Samt teljast Oddrún Ýr Sigurðardóttir og eiginmaður hennar, Þorleifur Þorri Ingvarsson, ekki nýliðar í augum ríkisins. Ástæðan er einföld og ófrávíkjanleg: þau voru bæði komin yfir fertugt þegar þau keyptu garðyrkjustöðina Reykás. Innlent 8. febrúar 2026 14:02
Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Lokaþáttur Stranger Things datt inn á Netflix eftir miðnætti á gamlársdag og vakti það athygli áhorfenda að lokaatriðið er tekið upp á Íslandi. Þar má sjá persónuna Eleven, leikna af Millie Bobby Brown, standa fyrir framan Háafoss og Granna í Þjórsárdal. Bíó og sjónvarp 2. janúar 2026 11:25
Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Umhverfis- og orkustofnun hefur endurútgefið virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfi var fellt úr gildi með dómi Hæstaréttar í júlí. Formaður Náttúrugriða segir nokkuð öruggt að náttúruverndarsamtök og landeigendur reyni að fá leyfinu hnekkt. Innlent 13. desember 2025 14:43
Gefa út litlausa viðvörun Veðurstofan varar við snörpum vindhviðum á morgun undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum. Í tilkynningu á vef stofnunarinnar kemur fram að varasamt sé að aka um svæðið á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Innlent 6. desember 2025 15:39
Þungaflutningar og vegakerfið okkar Þann 1. nóvember sl., birtist grein eftir Aldísi Sigfúsdóttur, verkfræðing og íbúa á Selfossi, þar sem hún varaði við vikurflutningum Steypustöðvarinnar materials ehf. um Selfoss. Steypustöðin varð fyrir þremur árum hlutskörpust í útboði Skeiða- og Gnúpverjahrepps um efnisnám í Búrfellshólma. Útboðið snérist um nýtingu á því takmarkaða efni sem eftir er í námunni. Skoðun 25. nóvember 2025 17:02
Virkjanir í byggð – er farið að lögum? Þrátt fyrir dóm Hæstaréttar þann 9. júlí 2025 um ólögmæti Hvammsvirkjunar veittuð þið þann 11. ágúst 2025, Landsvirkjun bráðabirgðaleyfi til undirbúnings Hvammsvirkjunar. Virkjunarleyfi til bráðbirgða, sem sérfræðingarnir í úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála telja tóma lögleysu og vildu ógilda í úrskurði fyrir tveimur vikum. Skoðun 16. nóvember 2025 21:32
Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Mest starfsánægja er í Bláskógarbyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þetta eru niðurstöður árlegrar könnunar Gallups. Verðlaunin Sveitarfélag ársins voru veitt í gær. Sagt er frá á heimasíðu stéttarfélagsins Kjalar. Innlent 31. október 2025 12:32
Úrskurðarnefnd klofin en framkvæmdaleyfi stendur Tveir af fimm nefndarmönnum í úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála skiluðu séráliti í máli þriggja náttúruverndarsamtaka, sem krefjast að framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar verði fellt úr gildi. Kröfu samtakanna var hafnað af meirihluta nefndarinnar. Innlent 30. október 2025 08:01
Eru vegir fyrir ferðamenn mikilvægari en vegir fyrir fólk sem býr hér? Ég bý við veg númer 329. Í hann hefur ekki verið borið í fjöldamörg ár. Holurnar eru orðnar að varanlegum kennileitum – eins konar kort af vanrækslu. Þetta er vegur sem ég, fjölskyldan mín og nágrannar mínir notum daglega. Til vinnu, skóla, búðarferða og til að flytja afurðirnar okkar – kjöt, korn og mjólk. Skoðun 5. október 2025 16:01
Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu þriggja náttúruverndarsamtaka um að undibúningsframkvæmdir við Hvammsvirkjun yrðu stöðvaðar á meðan á kæruferli vegna framkvæmdaleyfis stendur yfir. Innlent 16. september 2025 10:24