Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Taívan og mannréttindi marka rauðar línur fyrir ráðamenn í Kína, hvað varðar viðræður Donalds Trump og Xi Jinping í Washington DC í dag. Sendiherra Kína í Bandaríkjunum segir að Bandaríkjamenn eigi að hætta að reyna að skapa átyllur eins og þjóðaröryggismál, efnahagslegt ójafnvægi og þrælkunarvinnu til að reyna að halda aftur af framrás Kína. Erlent 23.9.2026 09:15
Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Xi Jinpin, forseti Kína, er talinn ætla að fara fram á það við Donald Trump að Bandaríkin hætti að selja vopn til Taívan. Xi hefur nokkuð öflugt vopn í formi sjaldgæfra málma til að beita Trump þrýstingi. Á móti hefur Trump getu til að skaða efnahag Kína töluvert. Erlent 22.9.2026 23:30
Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Ríkisstjórn Taívan lagði í gær fram fjárlagafrumvarp sem felur í sér gífurlega aukningu í útlátum til varnarmála. Aukningin samsvarar átján prósentum á milli ára og verði frumvarpið samþykkt mun eyríkið verja 3,1 prósenti af landsframleiðslu til varnarmála. Til stendur að hækka hlutfallið enn frekar vegna hernaðarógnana frá Kína. Erlent 21.8.2026 15:18
Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ekki búinn að ákveða hvort hann ætli að ganga frá samningi um umfangsmikla vopnasölu til Taívan. Það er eftir að Xi Jinping, forseti Kína, lýsti yfir mótmælum gegn sölunni og hótaði því að til átaka gæti komið milli Bandaríkjanna og Kína vegna Tavían. Erlent 15. maí 2026 14:19
Varaði Trump við átökum vegna Taívan Xi Jinpin, forseti Kína, varaði Donald Trump, kollega sinn frá Bandaríkjunum, við átökum milli ríkjanna við upphaf fundar þeirra í morgun. Þá mun Xi hafa sagt Trump að ef hann heldi rangt á spöðunum varðandi Taívan, eyríkið sem Kínverjar gera tilkall til, gæti það leitt til „gífurlega hættulegs ástands“ og „átaka“. Erlent 14. maí 2026 09:30
Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 13. maí 2026 10:56
Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Nýr forseti Taívan hóf opinbera heimsókn sína í Esvatíní í Afríku í morgun með því að segja að Taívan hefði rétt á því að eiga í opinberum samskiptum við önnur ríki. Enginn hefði rétt á að koma í veg fyrir það. Ráðamenn í Taívan segja að Kínverjar hafi reynt að koma í veg fyrir ferðina en Kínverjar hafa fordæmt forsetann taívanska sem „rottu“. Erlent 4. maí 2026 12:51
Sendi Trump tóninn vegna Taívan Xi Jinping og Donald Trump, forsetar Kína og Bandaríkjanna, áttu langt símtal í gær þar sem þeir eru sagðir hafa rætt hin ýmsu málefni sem snúa að samskiptum ríkjanna. Meðal annars ræddu þeir stöðuna í Íran og í Úkraínu og væntanlega heimsókn Trumps til Kína í vor en forsetarnir virðast ósammála um helsta málefni viðræðnanna og tón þeirra. Erlent 5. febrúar 2026 10:06
Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Kínversk stjórnvöld hafa beitt Evrópuríki þrýstingi og krafist þess að þau hleypi ekki embættismönnum frá Taívan inn í lönd sín. Þetta hefur Guardian eftir fjölda heimildarmanna, sem segja Kína hafa varað ríkin við því að „traðka ekki á rauðum línum Kína“. Erlent 13. janúar 2026 06:59
Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Kínverjar standa nú í umfangsmiklum heræfingum umhverfis Taívan, þar sem þeir líkja eftir lokunum helstu hafna, árásum á skotmörk á sjó og vörnum gegn inngripum þriðju aðila. Yfirvöld í Kína segja um að ræða viðvörun til „aðskilnaðarsinna“ í Taívan. Erlent 29. desember 2025 07:48
Bað forsætisráðherra Japan að ögra ekki Kínverjum Nokkrum dögum eftir að Sanae Takaichi, nýr forsætisráðherra Japan, reitti ráðamenn í Kína til reiði með því að segja að innrás Kínverja í Taívan gæti leitt til hernaðarviðbragðs frá Japönum, ræddi Xi Jinping, forseti Kína, við Donald Trump, kollega sinn í Bandaríkjunum. Xi er sagður hafa verið bálreiður og varði hálftíma af klukkutímalöngu símtalinu í að útskýra fyrir Trump að Kína ætti í raun Taívan. Erlent 27. nóvember 2025 10:12
„Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Ráðamenn í Kína eru enn fjúkandi reiðir í garð Japana vegna ummæla nýs forsætisráðherra Japans um Taívan frá síðustu viku. Meðal annars hafa Kínverjar hótað því að „rústa“ Japan og krefjast þeir þess að Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, dragi ummæli sín um að Japanir myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar, geri Kínverjar innrás í eyríkið, til baka. Erlent 14. nóvember 2025 11:10
Lagði til að forsætisráðherrann yrði afhöfðaður Embættismenn í Kína hafa brugðist reiðir við ummælum nýs forsætisráðherra Japans um að Japanar myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar geri Kínverjar innrás í eyríkið í framtíðinni. Háttsettur kínverskur erindreki í Japan skrifaði til að mynda færslu þar sem hann gaf til kynna að hausinn yrði höggvinn af Sanae Takaichi, forsætisráðherra. Erlent 10. nóvember 2025 14:40
Taívanir vilja reisa varnarhjúp gegn Kína Stjórnvöld í Taívan hyggjast reisa loftvarnahjúp til að vernda landið gegn utanaðkomandi ógnum. Þetta tilkynnti William Lai, forseti Taívan, degi eftir að stjórnvöld vöruðu við því að Kínverjar ynnu að því að auka getu sína til að ráðast á landið. Erlent 10. október 2025 07:47
Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Xi Jinping, forseti Kína, er sagður reyna að nota ákafa Donalds Trump, kollega síns í Bandaríkjunum, til að gera viðskiptasamning ríkjanna á milli til að ná fram sínu helsta baráttumáli. Xi vonast til þess að fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn og standa gegn sjálfstæði eyríkisins. Erlent 28. september 2025 11:04
Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta Taívan og þrír aðrir sem störfuðu fyrir stjórnarflokk landsins hafa verið dæmdir fyrir njósnir. Mennirnir eru sagðir hafa njósnað fyrir Kína og voru þeir dæmdir í fjögurra til tíu ára fangelsi. Erlent 26. september 2025 16:12
Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa neitað að samþykkja umfangsmikla hergagnasendingu til Tavían í sumar, á sama tíma og hann reynir að semja við Xi Jinping um viðskiptasamband ríkjanna og mögulegan fund þeirra á milli. Erlent 19. september 2025 14:20
Drekinn beraði vígtennurnar Kínverjar héldu í morgun stærðarinnar hersýningu í Peking þar sem nýjustu hergögn ríkisins voru opinberuð og mörg þeirra í fyrsta sinn. Þar sýndu ráðamenn í Kína aukinn hernaðarmátt ríkisins. Erlent 3. september 2025 14:22
Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Báðum flugmóðurskipum Kína hefur verið siglt um Kyrrahafið undanfarna daga og er það í fyrsta sinn sem skipin eru notuð þar saman. Ráðamenn í Japan hafa áhyggjur af auknum hernaðarumsvifum Kínverja á Kyrrahafinu og víðar. Svipaða sögu er að segja frá Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til. Erlent 12. júní 2025 10:32
Lækkanir halda áfram Markaðir heims hafa ekki tekið tollaálögum Donald Trump Bandaríkjaforseta vel og héldu lækkanir síðustu daga áfram við opnun í nótt markaða í Asíu, um leið og enn meiri tollahækkanir tóku gildi. Viðskipti innlent 9. apríl 2025 08:04
Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Yfirvöld í Kína ætla sér að „berjast til endaloka“ ætli Bandaríkin að halda áfram að stigmagna tollastríðið. Í yfirlýsingu frá viðskiptaráðuneyti Kína eru Bandaríkin sökuð um kúgun. Þar segir einnig að hótanir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að hækka enn frekar tolla gegn Kína séu mistök. Hærri tollar taka gildi á morgun víða um heim. Erlent 8. apríl 2025 06:34
Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Forsvarsmenn sjóhers Bandaríkjanna vinna að því að koma Patriot-loftvarnarkerfum fyrir á herskipum. Er það vegna ótta um að Kínverjar gætu notað ofurhljóðfráar eldflaugar til að sökkva herskipum á Kyrrahafi. Erlent 26. október 2024 16:36
Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar. Erlent 14. október 2024 15:29
Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Nýjasti kjarnorkuknúni kafbátur Kína sökk við bryggju í vor. Um er að ræða nýja gerð kafbáta og er þetta fyrsti báturinn af þeirri gerð. Hann sökk við skipasmíðastöð nærri Wuhan í Kína. Ráðamenn í Kína hafa lagt mikla áherslu á uppbyggingu kínverska kafbátaflotans og var reynt að hylma yfir atvikið. Erlent 27. september 2024 11:07