Samgönguáætlun – skuldbinding, ekki kosningaloforð Samgönguáætlun er lögbundin langtímaáætlun ríkisins um samgöngur og fjarskipti og er samþykkt af Alþingi. Hún skiptist í annars vegar tólf ára stefnumarkandi áætlun, þar sem sett eru fram markmið og áherslur stjórnvalda, og hins vegar fjögurra ára framkvæmdaáætlun. Skoðun 1. september 2025 08:45
Kjördæmapot og pólitískar sveiflur megi ekki ráða för Það væru svik við gefin loforð og setur hættulegt fordæmi ef bygging Fjarðarheiðaganga færi aftar í röðina en fyrirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir. Þetta segja leiðtogar sveitarstjórnar í Múlaþingi sem hafa kallað eftir fundi með forsætisráðherra vegna málsins. Þær fagna áformum stjórnvalda um átak í uppbyggingu innviða en vara við því að kjördæmapot og pólitískar sveiflur bitni á mikilvægum framkvæmdum. Innlent 28. ágúst 2025 21:02
Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Seyðfirðingar supu margir hveljur á opnum fundi með innviðaráðherra á Egilsstöðum í gærkvöldi. Fullhönnuð Fjarðarheiðargöng virðast orðin völt í sessi og málin myndu ekki skýrast fyrr en í október eða nóvember. Innlent 27. ágúst 2025 15:10
Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Allt bendir til þess að hitamet aldarinnar hafi verið slegið á Íslandi í dag þegar hitinn mældist 29,8 gráður á Egilsstaðaflugvelli. Veður 16. ágúst 2025 20:40
Hitamet aldarinnar slegið Hitamet þessarar aldar var líklega slegið á flugvellinum á Egilsstaðaflugvelli fyrr í dag þar sem hiti mældist 29,8 gráður. Það mun vera hæsti hiti sem mælst hefur í ágústmánuði á Íslandi. Veður 16. ágúst 2025 17:22
Er einhver hissa á fúskinu? Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur lagði upp með breyttar kraftmiklar áherslur í landspólitíkinni eftir kosningar í desember. Ljóst er að verkin hafa verið látin tala í mörgum málum, sem endurspeglast í skoðanakönnunum þar sem meiri hluti er ánægður með ríkisstjórnina. Skoðun 12. ágúst 2025 11:32
Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Björgunarsveitarfólk af Austurlandi aðstoðuðu ferðamenn sem lentu í sjálfheldu á Búlandstindi til aðstoðar í gærkvöldi. Töluverður viðbúnaður var í fyrstu þegar þörf var talin á sérhæfðu fjallabjörgunarfólki en ekki reyndist þörf á því á endanum. Innlent 11. ágúst 2025 14:11
Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Nítján árum eftir að Jökulsá á Dal var stífluð við Kárahnjúka hefur tekist að byggja upp í ánni einn stærsta laxastofn landsins. Lax sem veiddist í gær á Efri-Jökuldal ofan Stuðlagils gæti verið sá lax sem veiðst hefur lengst frá sjó á Íslandi. Innlent 5. ágúst 2025 22:44
Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Á ferðum sínum um landið þegar RAX vann fyrir Morgunblaðið, hittu hann og blaðamaðurinn Guðni Einarsson margar merkilegar og áhugaverðar týpur. Þeirra á meðal var hinn tækisinnaði Jóhann Þorsteinsson á Sandaseli. Hann hafði frá unga aldri sýnt mikinn áhuga á tækjum og tækni. Lífið 31. júlí 2025 07:02
Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Talið er að um fimm þúsund manns hafi verið staddir á Borgarfirði eystra liðna helgi þar sem Bræðslan var haldin. Hátíðin fagnaði tuttugu ára afmæli í ár og komust færri að en vildu. Lífið 29. júlí 2025 16:25
Sóttu veikan ferðamann í Loðmundarfjörð Í morgun voru áhafnir björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað og björgunarbátsins Árna Vilhjálmssonar á Seyðisfirði kallaðar út til að sækja veikan ferðamann í Loðmundarfjörð. Innlent 28. júlí 2025 11:17
„Við viljum alls ekki fá of marga“ Bræðslan fagnar 20 ára afmæli í dag en forvígismaður hátíðarinnar útilokar ekki tuttugu ár til viðbótar. Dagskráin sé veglegri í ár en vanalega og búið að ráða lúðrasveit og bæta við auka kvöldi vegna tilefnisins. Uppselt er á hátíðina og er biðlað til fólks að leggja ekki leið sína á hátíðarsvæðið án miða. Lífið 25. júlí 2025 12:16
Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina, dagana 31. júlí til 3. ágúst. Þetta árlega íþrótta- og fjölskylduhátíðarmót sem er ætlað börnum og ungmennum á aldrinum 11–18 ára, sameinar íþróttir, sköpun, útivist og menningu í einstöku umhverfi hér á Austurlandi. Mótið er ekki aðeins keppni heldur einnig vettvangur til að mynda vináttu, efla sjálfstraust og skapa ógleymanlegar minningar fyrir utan forvarnagildi þess. Skoðun 17. júlí 2025 10:03
Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Eldur kviknaði fyrir helgi í salernis- og sturtuaðstöðu við Snæfellsskála í Vatnajökulsþjóðgarði. Alls voru 30 í skálanum sem stendur við norðanvert Snæfell þegar eldurinn kviknaði aðfaranótt föstudags. Innlent 14. júlí 2025 10:40
Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Úr ræðustól Alþingis heyrast oft og iðulega þessa dagana upphrópanir um 26 sveitarfélög. Gjarnan í þeim stíl að talað er í hástöfum um þessi TUTTUGU OG SEX SVEITARFÉLÖG. Þessu er svo gjarnan fylgt eftir með upptalning á téðum sveitarfélögum. Skoðun 8. júlí 2025 17:03
Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Þrír karlmenn, á sextugs- og sjötugsaldri, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að smygla rétt rúmum þremur kílóum af kókaíni til landsins frá Spáni í apríl á þessu ári. Þeim er gefið að sök að smygla efnunum, hvers styrkleiki hafi verið á bilinu 78 til 80 prósent, í þremur pottum frá Spáni til Íslands. Innlent 8. júlí 2025 13:41
„Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Veðrið lék við landsmenn um allt land í dag og á Egilsstöðum var engin undantekning á því, þar sem hefur verið rjómablíða í dag og síðustu daga. Gestir í Höfðavík böðuðu sig í sólinni meðan gestir í Vök böðuðu sig í laugunum. Veður 7. júlí 2025 22:13
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Eigendur veitingastaðarins Asks Pizzeria á Egilsstöðum töldu það vera gabb þegar þrír kínverskir fjárfestar sögðust vilja opna með þeim útibú staðarins í Kína. Samstarfið raungerðist, þau eru nú stödd í Kína og segjast enn vera að meðtaka atburðarásina. Viðskipti innlent 7. júlí 2025 16:01
„Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Ása Hlín Benediktsdóttir fagnaði útgáfu barnabókar sinnar, Hallormsstaðaskógur – söguljóð fyrri börn, á Egilsstöðum síðustu helgi. Bókin er prentuð í prentsmiðju á Egilsstöðum og fjallar um Lagarfljótsorminn og Hallormsstaðaskóg. Lífið 4. júlí 2025 13:01
Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Stærðarinnar hvalshræ lenti á stefni Norrænu og losa þurfti hræið af skipinu við höfnina á Seyðisfirði. Hvalurinn var hífður af stefninu og er bundinn við bryggjuna. Innlent 19. júní 2025 11:21
Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og dagskrárgerðarkona hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri. Menning 13. júní 2025 13:55
VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir víða um land rætt um mögulegt samstarf í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram næsta vor. Hún vill ekki segja til um hvaða flokka sé að ræða en nefnir í þessu samhengi Kópavog, Árborg og Ísafjörð. Innlent 10. júní 2025 13:48
Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel. Innlent 3. júní 2025 21:03
Kaldvík fær stjórnvaldssekt vegna brota á lögum um dýravelferð Lögð hefur verið stjórnvaldssekt á Kaldvík að upphæð 500.000 króna vegna brota á lögum um dýravelferð. Innlent 26. maí 2025 13:28
Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Eik fasteignafélag undirritaði í dag kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Festingu hf. Fasteignir Festingar hér á landi eru tólf talsins, um 43 þúsund fermetrar að stærð, og hýsa starfsemi Samskipa hf. á Íslandi. Viðskipti innlent 23. maí 2025 14:47
Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Síðan á miðnætti hafa verið fimm útköll á sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu segir að það sé óvenju mikið miðað við árstíma. Fyrsta útkallið var frá fólki sem var á siglingu á miðjum Seyðisfirði og hin fjögur vegna strandveiðibáta í vandræðum. Innlent 19. maí 2025 12:48
Leiðréttum kerfisbundið misrétti Í dag eru rafveitur undanþegnar fasteignamati. Það þýðir að stærstur hluti mannvirkja til orkuframleiðslu – svo sem stíflur, lón og önnur tilheyrandi mannvirki – bera ekki fasteignaskatt. Eingöngu er greiddur fasteignaskattur af stöðvarhúsum, og það eitt. Skoðun 15. maí 2025 15:02
Nýtt hitamet slegið á Egilsstöðum Nýtt landshitamet í maímánuði var slegið á Egilsstaðaflugvelli í dag þar sem hiti mældist 25,8°C fyrr í dag. Hitametið var áður 25,6°C og var sett á Vopnafirði þann 26.maí 1992. Veður 15. maí 2025 13:46
Hreindýr í sjónum við Djúpavog Hreindýr skellti sér í tuttugu mínútna sundsprett við Djúpavog fyrr í vikunni. Innlent 26. apríl 2025 17:34
Hvalreki í Njarðvík við Borgarfjörð eystri „Nágranni minn var að smala kindum og ég ætlaði að kíkja hvort ég gæti eitthvað hjálpað honum þegar við gengum fram á þetta í fjörunni,“ segir Sigurður Jakobsson um hval sem rak nýlega á land í Njarðvík við Borgarfjörð eystri. Innlent 21. apríl 2025 20:47