Lindex lokað á Íslandi Lovísa Arnardóttir skrifar 8. janúar 2026 12:54 Myndin er tekin árið 2011 þegar Lindex opnaði á Íslandi. Vísir Öllum verslunum Lindex verður lokað í síðasta lagi 28. febrúar. Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, eigandi Lindex, segir engan missa vinnuna við þessi tímamót og að það séu í gangi viðræður um þau verslunarrými sem Lindex hefur verið rekið í.
Fyrsta Lindex-verslunin var opnuð á Íslandi árið 2011. Alls eru reknar tíu verslanir um land allt og eru starfsmenn um hundrað. Eigendur Lindex á Íslandi eru þau Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir og eiginmaður hennar Albert Þór Magnússon. Þau eiga og reka einnig Ginu Tricot, Mango í Smáralind og barnafataverslanirnar Emil og Línu og Mayoral. Hún segir þau Albert hafa verið í viðræðum við Lindex um nýjan umboðssamning og að þau hafi ekki náð að semja um það. Hún viti ekki hvort vörumerkið verði áfram til sölu á Íslandi eða hvað Lindex í Svíþjóð ætli sér fyrir. Viðskiptavinir sem eiga inneign eða gjafakort eru því hvattir til að nýta það áður en verslunin lokar við lok næsta mánaðar. „LDX19 hefur með farsælum hætti rekið Lindex á Íslandi í yfir 15 ár, á þeim tíma hefur vörumerkið byggt upp sterkan viðskiptavinahóp og náð frábærum árangri í rekstri fyrirtækisins. Allar Lindex-verslanir á Íslandi munu halda áfram hefðbundnum rekstri fram til um loka janúar 2026. Frekari upplýsingar um tímasetningu lokunar einstakra verslana verða kynntar síðar,“ segir í tilkynningu um lokun. Hún segir leiðinlegt að kveðja Lindex-vörumerkið en lofar að annað spennandi taki við. „Maður er með stórt Lindex-hjarta og hefur gert þetta af heilum hug. Það hefur gengið ótrúlega vel. Lindex hefur verið vel tekið. Þetta eru ákveðin þáttaskil,“ segir hún. Hún segir viðskiptavini ekki þurfa að örvænta, það taki annað við. Hún vilji þó ekki strax greina frá því hvað taki við. „Við ætlum að halda áfram og munum tilkynna á næstu dögum hvað tekur við,“ segir Lóa Dagbjört og að þau séu í góðu samtali um verslunarrýmin. „Við erum rosalega spennt fyrir þeim breytingum og ég er viss um að viðskiptavinir okkar muni ekki grípa í tómt.“ Lindex rekur verslanir í Smáralind í Kópavogi, Kringlunni í Reykjavík, Glerártorgi á Akureyri, Firðinum í Hafnarfirði, Holtagörðum í Reykjavík, Reykjanesbæ, Selfossi, Akranesi og á Egilsstöðum.
Verslun Svíþjóð Kringlan Smáralind Reykjavík Kópavogur Reykjanesbær Akranes Hafnarfjörður UMF Selfoss Múlaþing Tengdar fréttir Mayoral til Íslands Spænska barnafatakeðjan Mayoral opnar tvær nýjar verslanir á Íslandi í vor í gegnum umboðssamning. Annars vegar er um að ræða verslun í Smáralind, sem áðu hýst verslun Vodafone, og hins vegar netverslun. 6. febrúar 2025 12:29 „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ „Við erum bæði Sálaraðdáendur og fengum tækifæri til að þakka Stefáni Hilmarssyni persónulega fyrir framlag Sálarinnar til okkar sambands,“ segir Albert Magnússon og brosir. 22. september 2024 08:01 Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira
Mayoral til Íslands Spænska barnafatakeðjan Mayoral opnar tvær nýjar verslanir á Íslandi í vor í gegnum umboðssamning. Annars vegar er um að ræða verslun í Smáralind, sem áðu hýst verslun Vodafone, og hins vegar netverslun. 6. febrúar 2025 12:29
„Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ „Við erum bæði Sálaraðdáendur og fengum tækifæri til að þakka Stefáni Hilmarssyni persónulega fyrir framlag Sálarinnar til okkar sambands,“ segir Albert Magnússon og brosir. 22. september 2024 08:01