Mikil flóð í Nýja Suður-Wales Um átján þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Ástralíu vegna mikilla flóða í Nýja Suður-Wales en gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu síðustu daga. Erlent 22. mars 2021 08:39
Bjargar erfðafræðin dæmdum raðmorðingja?: Fékk 30 ára dóm fyrir að myrða börnin sín en vísindamenn segja hana saklausa Níutíu virtir vísindamenn og læknar hafa skrifað undir áskorun til ríkisstjóra Nýju Suður-Wales og skorað á hann að náða Kathleen Folbigg og láta hana umsvifalaust lausa. Erlent 12. mars 2021 12:10
Ítalir stöðvuðu sendingu á bóluefni til Ástralíu Stjórnvöld á Ítalíu komi í veg fyrir að 250.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem voru framleiddir þar í landi yrðu fluttir til Ástralíu. Ákvörðunin nýtur stuðnings framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og byggir á nýjum reglum sem leyfa ríkjum að stöðva útflutning á bóluefni ef framleiðendur þess hafa ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart sambandinu. Erlent 4. mars 2021 23:22
Flugu nýrri tegund dróna sem eiga að vinna með mönnuðum orrustuþotum Starfsmenn Boeing flugu um helgina nýrri frumgerð dróna í fyrsta sinn. Þetta er í fyrsta sinn sem herflugvél er þróuð og framleidd í Ástralíu í meira en 50 ár. Erlent 2. mars 2021 14:27
Ástralskur sauður rúinn hálfri kengúru Veikburða sauður fannst í Ástralíu á dögunum, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skepnan hafði ekki verið rúin í fjölda ára og var 35 kílóum léttari þegar snyrtingu lauk. Erlent 24. febrúar 2021 20:59
Facebook semur við yfirvöld í Ástralíu Samfélagsmiðlarisinn Facebook tilkynnti í morgun að samningar hefðu náðst við áströlsk yfirvöld sem gera það að verkum að opnað verður á ný fyrir streymi frétta á miðlinum í Ástralíu. Erlent 23. febrúar 2021 06:54
Fékk eiginhandaráritun á óléttubumbuna Novak Djokovic fékk nokkuð óvenjulega beiðni þegar hann hitti fjölmiðla og aðdáendur á Brighton-ströndinni í Melbourne eftir sigurinn á Opna ástralska mótinu í tennis. Sport 22. febrúar 2021 12:31
Djokovic vann átjánda titilinn kvalinn af meiðslum „Ég sætti mig bara við það að ég yrði að spila þrátt fyrir sársaukann,“ sagði Novak Djokovic. Serbinn viðurkenndi eftir átjánda risamótssigur sinn í tennis að hann hefði spilað meiddur í síðustu leikjunum á mótinu sem lauk í Ástralíu um helgina. Sport 22. febrúar 2021 10:00
Mótmæltu fyrirhuguðum bólusetningum Mótmælendur komu saman í borgum víða um Ástralíu í dag og mótmæltu bólusetningum gegn Covid-19, en stefnt er að því að hefja bólusetningar á mánudag með bóluefni Pfizer. Mótmælin voru að mestu friðsæl en nokkrir voru þó handteknir í Melbourne samkvæmt staðarmiðlum. Erlent 20. febrúar 2021 23:19
Osaka vann sinn fjórða risatitil með öruggum sigri fyrir framan tæplega 7500 manns Hin 23 ára gamla Naomi Osaka vann í dag sinn fjórða risatitil á ferlinum er hún vann Jennifer Brady í úrslitum Opna ástralska meistaramótsins í tennis. Er þetta í annað sinn sem hún vinnur Opna ástralska. Sport 20. febrúar 2021 10:45
Tók hálftíma að loka á alla fjölmiðla í lýðræðisríki Samfélagsmiðillinn Facebook lokaði í dag á deilingar á fréttaefni í Ástralíu eftir að stjórnvöld í landinu lögðu fram frumvarp sem myndi skylda Facebook og aðra tæknirisa til að greiða fyrir slíkar deilingar. Erlent 18. febrúar 2021 20:01
Facebook lokar á fréttir í Ástralíu Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur lokað á þann möguleika að notendur í Ástralíu geti deilt eða skoðað fréttir í gegnum miðilinn. Erlent 18. febrúar 2021 07:04
Ólympíufari og heimsmeistari handtekinn fyrir stórfelld fíkniefnabrot Scott Miller, sem var einn fremsti flugsundskappi heims á sínum tíma, var handtekinn í gær vegna gruns um selja eiturlyf og stjórna glæpasamtökum. Sport 17. febrúar 2021 13:31
Gagnrýnir Ástrali fyrir að svipta grunaðan ISIS-liða ríkisborgararétti Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur gagnrýnt áströlsk stjórnvöld harðlega fyrir að hafa einhliða svipt konu, sem handtekin var í Tyrklandi vegna gruns um tengsla við hryðjuverkasamtökin ISIS, ríkisborgararétti. Erlent 16. febrúar 2021 08:15
Fjögurra metra langur krókódíll drepinn eftir að veiðimaður hverfur Yfirvöld í Queensland í Ástralíu hafa fangað og drepið fjögurra metra langan krókódíl sem er grunaður um að hafa orðið veiðimanni að bana. Mannsins hafði verið leitað síðan á fimmtudag, eftir að hann skilaði sér ekki heim. Erlent 13. febrúar 2021 09:59
Hertar sóttvarnaaðgerðir í Melbourne Ástralska stórborgin Melbourne er á leið í fimm daga lokun vegna kórónuveirunnar en í gær kom upp smit í borginni þar sem þrettán greindust á hóteli í borginni sem notað hefur verið sem sóttvarnahús. Erlent 12. febrúar 2021 06:48
Áströlsk fréttakona sögð hafa ljóstrað upp kínverskum ríkisleyndarmálum Ástralski fréttamaðurinn Cheng Lei hefur formlega verið ákærð í Kína eftir marga mánuði í haldi lögregluyfirvalda. Henni er gert það að sök að hafa sagt erlendum aðilum frá kínverskum ríkisleyndarmálum. Erlent 8. febrúar 2021 11:40
Þúsundir flýja heimili sín vegna eldanna Þúsundir íbúa í áströlsku borginni Perth hafa verið hvattir til að yfirgefa heimili sín vegna mikilla elda sem brenna í grennd við borgina. Erlent 3. febrúar 2021 08:24
Mikir gróðureldar í nágrenni Perth Miklir skógar- og kjarreldar loga nú í nágrenni áströlsku borgarinnar Perth í vesturhluta landsins en þar eru allir íbúar í útgöngubanni vegna kórónuveirusmits sem upp kom á dögunum. Erlent 2. febrúar 2021 08:03
Google hótar að loka á leitarvél sína í Ástralíu Tæknirisinn Google segir að ef stjórnvöld í Ástralíu haldi því til streitu að rukka Google og Facebook sérstaklega fyrir það þegar fréttum er deilt á síðunum, muni Google einfaldlega hætta starfsemi í Ástralíu og loka á síðuna í landinu. Viðskipti erlent 22. janúar 2021 07:58
Fannst nakinn á flótta við fljót krökkt af krókódílum Ástralskur maður, Luke Voskresensky, sem talinn er hafa verið á flótta undan réttvísinni fannst fyrir tilviljun fyrr í vikunni þar sem hann sat nakinn á fenjavið við fljót nærri Darwin í Ástralíu. Erlent 6. janúar 2021 10:29
Herða sóttvarnir í Sydney fyrir áramótin Yfirvöld í Ástralíu hafa hert samkomutakmarkanir og sóttvarnir í Sydney, stærstu borg landsins, fyrir áramótin. Það var gert eftir að nýr klasi smitaðra greindist þar. Í heimahúsum mega fimm að hámarki koma saman og þrjátíu á almannafæri. Þá mega gestir ekki heimsækja íbúa dvalarheimila. Erlent 30. desember 2020 11:19
Fimm daga björgunaraðgerðir á Suðurskautslandinu Áströlskum manni sem þurfti læknisaðstoð í könnunarleiðangri hefur verið bjargað af Suðurskautslandinu eftir fimm daga björgunaraðgerðir. Skip, þyrlur og flugvélar tóku þátt í björgunaraðgerðum sem var samstarf þriggja þjóða. Erlent 25. desember 2020 15:23
Fjórir ákærðir vegna eldanna á Frasereyju Fjórir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir að hafa kveikt elda sem urðu til þess að gríðarlegir gróðureldar blossuðu upp á Fraserayju, austur af meginlandi Ástralíu, í haust. Eyjuna er að finna á heimsminjaskrá UNESCO. Erlent 22. desember 2020 08:42
Rafmagnsskortur í Kína rakinn til deilu við Ástrala Búið er að loka verksmiðjum víða í Kína og yfirvöld borga hafa gert íbúum að spara rafmagnsnotkun vegna orkuskorts í landinu. Samhliða skortinum og takmörkunum fer hitastig lækkandi. Viðskipti erlent 21. desember 2020 13:21
Umdeildur kardínáli: Trump er villimaður kristinna manna Donald Trump er villimaður en hann er „okkar villimaður,“ segir kardinálinn George Pell í bókinni Prison Journal, sem fjallar meðal annars um þá 404 daga sem honum var haldið í einangrun eftir að hann var fundinn sekur um kynferðisofbeldi gegn börnum. Erlent 17. desember 2020 12:34
Sneri aftur til jarðar með 4,6 milljarða ára gömul sýni Allt bendir til þess að hylki sem sneri aftur til jarðar með sýni úr smástirninu Ryugu í gær sé í fullkomnu lagi. Erlent 6. desember 2020 14:47
Mikil líkindi með framgöngu áströlsku sérsveitarinnar í Afganistan og kanadíska Sómalíu-hneykslinu Fyrrverandi varnarmálaráðherra Kanada segir að eina leiðin til að uppræta kerfislæg „menningarvandamál“ og endurheimta orðspor kanadíska hersins í kjölfar svokallaðs Sómalíu-hneykslis, hafi verið að leysa upp umrædda hersveit. Erlent 3. desember 2020 16:34
Bræði í Ástralíu vegna „ógeðslegrar“ myndar frá Kína Yfirvöld í Ástralíu hafa krafist afsökunarbeiðni frá ráðamönnum í Kína eftir að talsmaður utanríkisráðuneytis Kína deildi samsettri mynd sem sýna átti ástralskan hermann myrða stúlku í Afganistan. Erlent 1. desember 2020 15:35
Tíu hermenn til viðbótar reknir vegna stríðsglæpa í Afganistan Forsvarsemnn herafla Ástralíu hafa rekið minnst tíu hermenn sem sagðir eru hafa orðið vitni að morðum á óvopnuðum föngum í Afganistan. Áður hefur verið lagt til að minnst 19 hermenn verði rannsakaðir og mögulega ákærðir fyrir stríðsglæpi. Erlent 26. nóvember 2020 12:03