Fleiri fréttir

Icesave viðræður á viðkvæmu stigi

Fjármálaráðherra segir að viðræður um lausn Icesave deilunnar séu á viðkvæmu stigi. Enn séu bundnar vonir við að hægt sé að leiða málið til lykta með samkomulagi.

Afgangur af rekstri Reykjavíkurborgar

Um 3,7 milljarða afgangur var á rekstri A og B hluta borgarsjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins, samkvæmt uppgjöri sem lagt var fram í borgarráði Reykjavíkurborgar á fimmtudag.

Europol rannsakar starfsemi Kaupþings

Europol hefur hafið rannsókn á starfsemi Kaupþings. Þá er rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar á bankanum enn í gangi.

Fréttaskýring: Pandóra eykur við gjaldeyrisforðann

Mikil umfjöllun hefur verið um komandi markaðsskráningu skartgripafyrirtækisins Pandóru í dönskum fjölmiðlum í liðinni viku. Seðlabanki Íslands og skilanefnd Kaupþings eiga mikið undir, eða allt að 20 milljörðum kr., að skráningin heppnist vel. Flest bendir til að svo verði og er áhugi fjárfesta á Pandóru gríðarlegur í augnablikinu.

Vonar að niðurstaðan gagnist í samningum

Hreiðar Már Sigurðsson vonar að niðurstaðan úr rannsókn Breska fjármálaeftirlitsins (FSA) á starfsemi Kaupþings Singer & Friedlander í aðdraganda hrunsins geti nýst í samningaviðræðum stjórnvalda um uppgjör hrunsins.

Almenningur tapaði 80 milljörðum króna

Tap 56 þúsund einstaklinga vegna glataðrar hlutabréfaeignar í bönkunum og nokkrum öðrum almenningshlutafélögum sem fóru í þrot í framhaldi bankahrunsins nam samtals 183 milljörðum króna.

Aflétting gjaldeyrishafta í kortunum á næstu vikum

Fyrstu skref í afléttingu gjaldeyrishaftanna eru í kortunum og verða líklega stigin á næstu vikum eða mánuðum ef marka má orð Seðlabankastjóra á vaxtaákvörðunarfundi bankans sem fram fór síðastliðinn miðvikudag.

Arion banki býður 79 íbúðir til sölu í Skuggahverfinu

101 Skuggahverfi býður til sölu 79 íbúðir sem staðsettar eru á einum eftirsóttasta stað höfuðborgarsvæðisins. Um er að ræða þyrpingu íbúðabygginga í miðborg Reykjavíkur á einum fegursta útsýnisstað borgarinnar.

Kolbrún Jónsdóttir í stjórn Íslandsbanka

Breytingar urðu í stjórn Íslandsbanka á hluthafafundi bankans í dag þegar Kolbrún Jónsdóttir tók sæti í stjórn. Hún leysir af hólmi Mörthu Eiríksdóttur sem hóf nýlega störf sem framkvæmdastjóri Kreditkorta.

Úttekt að undirlagi sjóðanna í gangi

Að öllu óbreyttu gætu tvær úttektir eða rannsóknir farið fram samhliða á starfsemi lífeyrissjóðanna í landinu. Í þingsályktun þingmannanefndarinnar, undir formennsku Atla Gíslasonar, er lagt til að starfsemi lífeyrissjóðanna verði rannsökuð.

Mest notað yfir sumartímann

Sala á 3G nettenglum fyrstu átta mánuði ársins hefur þrefaldast hjá Vodafone frá sama tímabili í fyrra. Nettenglarnir hafa einnig verið nefndir 3G-pungar, en um er að ræða háhraðanettengingu fyrir tölvur um þriðjukynslóðar farsímanet.

Hugmyndir um stækkun ekki lagðar til hliðar

Rúmlega 40 milljörðum króna verður varið í að auka framleiðslugetu álversins í Straumsvík um fimmtung á næstu tveimur árum. Framkvæmdin kallar á 470 ársverk. Forstjóri Alcan á Íslandi segir að með þessu sé ekki búið að leggja til hliðar hugmyndir um stækkun.

Betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, er talsvert betri en áætlun gerði ráð fyrir. Hún var jákvæð um rúma þrjá milljarða en áætlun gerði fyrir að hún yrði neikvæð um 1,3 milljarð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra.

Langflestir Íslendingar selja fasteign sína áður en ný er keypt

Langflestir Íslendingar, eða upp undir 80%, eru líklegri til þess að selja fasteign sína áður en þeir kaupa nýja. Hið sama á við um Finna og Dani. Norðmenn og Svíar eru hins vegar líklegri til að kaupa nýja fasteign áður en þeir selja þá gömlu. Þetta kemur fram í tölum sem norski vefurinn E 24 hefur frá Norges Eiendomsmeglerforening.

Álverið í Straumsvík stóreykur framleiðslugetu sína

Rio Tinto Alcan mun verja 347 milljónum dollara, eða sem nemur 40,6 milljörðum íslenskra króna, til að uppfæra búnað og auka framleiðslugetu álversins í Straumsvík í kjölfar þess að endanlega hefur verið gengið frá nýjum raforkusamningi við Landsvirkjun sem samkomulag tókst um fyrr á þessu ári.

Markaðsmisnotkunarmáli áfrýjað til Hæstaréttar

Máli ákæruvaldsins gegn fyrrverandi sjóðsstjóra og verðbréfamiðlara í Kaupþingi hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Þetta kemur fram á vef dómsins. Mennirnir, þeir Daníel Þórðarson og Stefnir Agnarsson, voru hvor um sig dæmdir í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir

Dollarinn hefur fallið um 12% gagnvart krónu frá júní

Gengi Bandaríkjadollars gaf eftir í gær gagnvart öllum helstu myntum og í kjölfarið fór dollarinn niður í 115 krónur. Hefur dollarinn þá ekki verið jafn ódýr í krónum talið síðan í mars á síðasta ári. Gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar hefur nú styrkst um 4% frá því í septemberbyrjun og um 12% frá júníbyrjun.

Nokkuð um viðskipti með atvinnuhúsnæði í ágúst

Í ágúst 2010 var 30 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 39 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 1.475 milljónir króna en 602 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 8 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Arion banki fær skell vegna Haga

Hlutafjárvirði Haga hleypur á tíu til 21 milljarðs króna. Óvíst er hvernig himinháum skuldum verður breytt. Ekki er útilokað að sá fjárfestir sem kaupir félagið greiði lítið en fái ellefu milljarða króna skuldir í heimanmund.

Þurfa að sækja fé á lánsfjármarkað

Stefnubreyting og aðhald hjá Orkuveitu Reykjavíkur eftir meirihlutaskipti í borginni þarf ekki að þýða breytingar hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélagi Orkuveitunnar.

Vill fá fyrrverandi hluthafa með í hópmálssókn gegn Björgólfi Thor

Fyrrverandi hluthafi í Landsbankanum hyggst höfða mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni en hann telur að Björgólfur Thor hafi blekkt yfirvöld og fjárfesta með rangri upplýsingagjöf um eignarhald sitt á bankanum. Hann hvetur aðra fjárfesta til að hafa samband við sig til að fara í hópmálssókn.

Mesta velta frá bankahruni

Metvelta var á skuldabréfamarkaði í dag, en hún nam 35.8 milljörðum króna. Síðasta met var slegið þann 20. september, eða fyrir tveimur dögum. Þetta er mesta velta á einum degi síðan 7. október 2008.

Kaupmáttaraukningin árin 2004 til 2008 er horfin

Sú kaupmáttaraukning sem varð meðal launþega á árunum 2004 til 2008 er horfin í kreppunni. Góðu fréttirnar eru að útlit er fyrir að kaupmátturinn sé að aukast að nýju, en að vísu hóflega.

ESA rannsakar ríkisstuðning við Sjóvá

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hóf í dag formlega rannsókn á veitingu ríkisstyrks við endurfjármögnun tryggingafélagsins Sjóvár. Rannsóknin snýr að 11,6 milljarða króna eiginfjárframlagi íslenska ríkisins. Ríkisstyrkurinn kann að hafa verið veittur í andstöðu við lög að mati stofnunarinnar, samkvæmt því sem fram kemur á vef EFTA.

Landsbankinn eignast Björgun að fullu

Landsbankinn hefur eignast allt hlutafé í verktakafyrirtækinu Björgun ehf.. Í tilkynningu frá bankanum segir að Björgun hafi verið í eigu Renewable Energy Resources ehf., dótturfyrirtækis Atorku Group hf., en í tengslum við skuldauppgjör RER hefur bankinn leyst til sín þau veð sem bankinn átti í eigum félagsins.

Um 400 milljarðar bíða eftir gjaldeyrishöftunum

Um 400 milljarðar kr. í erlendum krónueignum bíða þess að gjaldeyrishöftunum verði aflétt. Þetta kom fram í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundi sem nú stendur yfir þar sem vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar í morgun er til umræðu.

Launavísitalan óbreytt milli mánaða

Launavísitala í ágúst 2010 er 379,5 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,0%.

Stýrivextir lækkaðir um 0,75 prósentustig

Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,75 prósentustig. Fara vextirnir því niður í 6,25% og hafa ekki verið lægri síðan árið 2004. Nánar verður greint frá ákvörðuninni á fundi bankastjórnar Seðlabankans klukkan 11. Lækkun er í takt við spár greiningardeild bankanna.

Rekstur Kópavogsbæjar skilaði hálfum milljarði í afgang

Rekstur Kópavogsbæjar skilaði rúmlega 500 milljóna kr. afgangi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta kemur fram í óendurskoðuðu og ókönnuðu uppgjör Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 sem sent hefur verið til Kauphallarinnar.

Icelandic Group skráð á markað hérlendis og erlendis

Ætlunin er að skrá félagið Icelandic group á hlutabréfamarkað. Í tilkynningu um málið á vefsíðu Vestia segir að Framtakssjóðurinn mun beita sér fyrir skráninguni á næstu 18 til 24 mánuðum háð markaðsaðstæðum.

Fjármálafyrirtæki fá undanþágu frá samkeppnislögum

Fjármálafyrirtæki fá að hafa samstarf um möguleg málaferli vegna gengistryggðra lána samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem gerð var opinber í gær. Eftirlitið setur samstarfinu þó ákveðin skilyrði.

Sjá næstu 50 fréttir