Milljarða tekjuauki Landsvirkjunar vegna nýs samnings 22. september 2010 07:00 Hingað til hefur orkuverðið sem álverið greiðir sveiflast eftir álverði á heimsmarkaði. Framvegis mun það þróast í takt við verðbólgu í Bandaríkjunum annars vegar og orkuverð sem álver greiða hins vegar.
Tenging raforkuverðs frá Landsvirkjun við álverð á heimsmarkaði rofnar um næstu mánaðamót þegar endurskoðaður samningur um orkusölu til álversins í Straumsvík tekur gildi. Í stað álverðsins er verðið nú miðað við verðbólgu í Bandaríkjunum og þróun raforkuverðs til álvera í heiminum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins innan úr Landsvirkjun aukast tekjur fyrirtækisins um milljarða króna á ársgrundvelli miðað við núverandi álverð. Í nýja samningnum eru ákvæði um að Landsvirkjun afhendi 658 gígavattstundir af orku til viðbótar vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar í Straumsvík. Sú orka á að koma úr Búðarhálsvirkjun en sem kunnugt er hefur ekki tekist að ljúka fjármögnun virkjunarinnar. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í samtali við Fréttablaðið að nýi samningurinn bæti stöðu fyrirtækisins gagnvart matsfyrirtækjum og lánsfjármarkaði. Hann segist bjartsýnn á að fjármögnun ljúki á næstu vikum. Hörður segir mikilvægt að samningurinn feli nú í sér minni áhættu fyrir Landsvirkjun og hagstæðara orkuverð. Nú muni það verð sem álverið í Straumsvík greiðir þróast í takt við þróun raforkuverðs á alþjóðamörkuðum. Þótt erfitt sé að bera samningana saman út frá ákveðinni prósentubreytingu á orkuverði þurfi álverð á alþjóðlegum markaði að verða býsna hátt til þess að eldri aðferðin skili Landsvirkjun hagstæðari niðurstöðu en endurskoðaði samningurinn. Álverðið er nú um 2.100 dollarar tonnið en hefur á síðustu misserum sveiflast úr 1.300 dollurum og yfir 3.000 dollara. Spár flestra greiningaraðila benda, að sögn Harðar, til þess að nýi samningurinn muni skila Landsvirkjun mun hagstæðari niðurstöðu en áður: „Menn telja að raforka muni áfram hækka umfram verðbólgu en að álverð muni hins vegar ekki halda í við verðbólgu," segir hann. -pg / sjá síðu 10
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira