Fjármálafyrirtæki fá undanþágu frá samkeppnislögum 22. september 2010 06:00 Óvíst er hvort heimild til samstarfs fjármálafyrirtækja verður nýtt, það veltur á innihaldi boðaðra laga efnahags- og viðskiptaráðherra. Fréttablaðið/Pjetur
Fjármálafyrirtæki fá að hafa samstarf um möguleg málaferli vegna gengistryggðra lána samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem gerð var opinber í gær. Eftirlitið setur samstarfinu þó ákveðin skilyrði. „Ég tel jákvætt að þessi heimild sé komin, en hvort hún verður nýtt veltur á því sem kemur fram í boðaðri lagasetningu viðskiptaráðherra,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Samtökin sóttu um undanþágu frá samkeppnislögum vegna málsins í lok júlí. Í rökstuðningi samtakanna segir að í samstarfinu muni felast að fjármálafyrirtækin fari sameiginlega yfir lánasamninga og flokki þá þannig að fyrir liggi hvaða atriði verði nauðsynlegt að láta reyna á fyrir dómstólum. Guðjón segir að hugmyndin sé sú að aðeins eitt lánafyrirtæki höfði mál til að fá niðurstöðu dómstóla á tilteknu ágreiningsefni. Hin fyrirtækin komi að ábendingum varðandi málið og kröfugerðina. Heimild Samkeppniseftirlitsins mun væntanlega draga úr álagi á dómstóla, og flýta því að niðurstaða fáist í álitamálum, sem ætti að vera bæði lántakendum og lánveitendum til hagsbóta, segir Guðjón. Samtök fjármálafyrirtækja sóttu um undanþáguna eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að gengistryggð lán væru ólögmæt, en áður en dómurinn ákvað hvaða vaxtakjör skyldu gilda. Í kjölfar dómsins tilkynnti viðskiptaráðherra, að til stæði að setja lög sem jafna eiga stöðu þeirra sem tekið hafa gengistryggð lán. Guðjón segir að það velti á útfærslu fyrirhugaðrar lagasetningar hvort fjármálafyrirtækin muni nýta heimild Samkeppniseftirlitsins til samstarfs. Verði leyst út helstu ágreiningsmálum í lögunum sé óvíst að heimildin verði nýtt nema takmarkað. Þar skipti líka máli hvort lögin fjalli um lán til fyrirtækja jafnt sem einstaklinga. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira