Greining spáir því að verðbólgan minnki í 4% í september 24. september 2010 07:14
Greiningardeild Arion banka gerir ráð fyrir 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs í september og mun 12 mánaða verðbólga því lækka í 4,0%, en hún mældist 4,5% í ágúst. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að lang stærsta ástæðan fyrir því að greiningin spáir hækkun er að útsölur á fötum og skóm fjara endanlega út og hafa 0,3-0,4% áhrif til hækkunar að þessu sinni, eins og jafnan gerist á haustin. „Af öðrum áhrifaþáttum má nefna að eldsneytis- og húsnæðisverð munu lækka vísitöluna lítillega miðað við okkar spá. Enn fremur mun gengisstyrking krónunnar síðustu misserin halda niðri verðlagi einstakra vöruflokka og jafnvel valda lækkunum í einhverjum tilvikum. Loks má nefna að við gerum ráð fyrir u.þ.b. óbreyttu matvöruverði að þessu sinni," segir í Markaðspunktunum. Greiningin segir að hún sjái ekki annað en að lítil verðbólga sé framundan á næstu mánuðum og í raun fáir verðbólguhvatar að finna í hagkerfinu eins og staðan er í dag. „Við gerum ráð fyrir 1,2% hækkun verðlags fram til ársloka og vegur þar þyngst væntanleg hækkun Orkuveitunnar í nóvember nk. - eða um 0,39% til hækkunar verðlags. Af öðrum þáttum sem hugsanlega gætu ýtt við verðbólgunni má nefna að matvöruverð gæti skriðið uppávið næstu mánuði, m.a. vegna hækkana á ýmsum hrávörum," segir í Markaðspunktunum. „Við gerum aftur á móti ráð fyrir fremur stöðugu húsnæðis- og eldsneytisverði - en jafnan er þó erfitt að spá fyrir um þessa liði. Það sem helst mun spyrna gegn verðbólgu næstu mánaði er sú gengisstyrking sem orðið hefur á krónunni síðustu misseri, sem mun þá koma hægt og bítandi út í verðlagið á næstu mánuðum. Gangi spá okkar eftir mun 12 mánaða verðbólga vera nálægt 2,5% markmiði Seðlabankans í árslok."
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira