Viðskipti innlent

Launavísitalan óbreytt milli mánaða

Launavísitala í ágúst 2010 er 379,5 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,0%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala kaupmáttar launa í ágúst 2010 er 107,4 stig og lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,4%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×