Fleiri fréttir

Ungir íslenskir námsmenn styrktir um 70 milljónir

Áfram verður styrkur til Íslendinga í fjárhagsáætlun norrænu samstarfsráðherranna fyrir næsta ár. Um er að ræða 3 milljónir danskra kr. eða rúmlega 70 milljónir kr. sem varið verður til styrkja unga íslenska námsmenn á Norðurlöndum.

FME skipar nefnd til að meta hæfi stjórnarmanna

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sett á stofn þriggja manna ráðgjafarnefnd um mat á hæfi stjórnarmanna. Nefndin er skipuðr sérfróðum mönnum en þeir eru Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur sem er formaður, Einar Guðbjartsson, dósent hjá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Rúnar Guðmundsson, sviðsstjóri hjá Fjármálaeftirlitinu.

Gylfi: Ríkið gæti mótmælt

Viðskiptaráðherra segir að ríkið gæti mótmælt of háum launum skilanefndarmanna sem einn af kröfuhöfum bankanna. Hann vill þó ekki fullyrða um að slíkt sé í burðarliðnum.

Gjaldeyristekjur af ferðamönnum áætlaðar 155 milljarðar

Talið er að gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum hafi numið 155 milljörðum króna í fyrra. Það er liðlega tuttugu prósenta aukning , að teknu tilliti til gegnisþróunar. Álíka margir koma til landsins um Reykjavíkurflugvöll og með Norrænu um Seyðisfjörð.

Securitas sett í söluferli

JP Lögmönnum hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að sölu á Securitas hf. Á heimsíðu lögmannsstofunnar segir að söluferlinu eigi að ljúka þann 20. mars n.k.

Starfsmannalán Kaupþings færð á núlli yfir í Arion

Þegar Kaupþing féll námu lánveitingar bankans til 130 starfsmanna hans vegna hlutabréfakaupa 47,3 milljörðum króna. Þau lán voru færð yfir til Arion. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að þau hafi verið færð þangað á 0 krónur.

Launamunur karla og kvenna hefur minnkað nokkuð

Í nýju hagtíðindahefti kemur meðal annars fram að á árunum 2000-2007 eru konur með lægri laun en karlar en hlutfallslegur launamunur hefur lækkað á tímabilinu. Árið 2000 voru konur með 24,8% lægra reglulegt tímakaup en karlar en munurinn var kominn í 15,9% árið 2007.

Geir Haarde og krimmar sem strjúka hvítum köttum

„Síðasti stjórnmálamaðurinn sem notaði skuldatryggingaálag sem blóraböggul fyrir erfiðleika þjóðar sinnar var Geir Haarde þáverandi forsætisræaðherra Íslands sjö mánuðum áður en hagkerfi landsins hrundi. Hann óskar þess sennilega núna að hafa einbeitt sér meir að grundvallaratriðunum en leit sinni að krimmum sem strjúka hvítum köttum."

Seðlabankastjóri í formennsku fyrir eignaumsýslu bankans

Seðlabanki Íslands hefur komið á fót sérstöku eignaumsýslufélagi sem ber heitið Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. Már Guðmundsson seðlabankastjóri mun verða stjórnarformaður þess félags til að byrja með.

Atvinnulífið brást fyrir hrun

„Þegar atvinnurekendur fengu 2-300-föld árslaun þá var eitthvað að,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri olíufélagsins N1.

Starfsfólk skilanefnda fékk 4,3 milljarða í laun

Skilanefndir gömlu bankanna greiddu rúma 4,3 milljarða í laun og tengd gjöld á síðasta ári. Launakostnaður var mestur í gamla Landsbankanum, eða 3,4 milljarðar króna. Lægstur var hann í Glitni, eða þrjú hundruð milljónir króna. Hjá skilanefndum bankanna störfuðu um 260 manns í fyrra. Flestir unnu hjá gamla Landsbankanum eða 143. Um helmingur þeirra, eða sjötíu, var hér á landi en 65 í Bretlandi.

Misdýr uppgjör

Í samanburði við uppgjör á erlendum bönkum þykir rekstrarkostnaður íslensku skilanefndanna lágur sem hlutfall af eignum í stýringu. Þeir sem rætt hefur verið við vegna málsins telja að það skrifist á að hér hafi FME tilnefnt marga einstaklinga frá nokkrum lögfræðiskrifstofum og endurskoðendafyrirtækjum í skilanefndir og slitastjórnir, sem greiði þeim laun. Erlendis hafi ákveðin fyrirtæki verið fengin til að stýra uppgjörum fallinna banka.

Færri vilja borga

Einstaklingar sem ekki tóku þátt í uppsveiflunni heldur lifðu á meðallaunum og eiga íbúðir og bíla sem þarf að greiða af er ekki eins viljugt og áður að greiða reikningana sína. Þetta segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hún var á meðal þeirra sem sátu fyrir svörum í pallborði á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í gær.

Mikilvægt að standast ágang sérhagsmunahópa

Skattastefna stjórnvalda og útþensla hins opinbera var harðlega gagnrýnd á Viðskiptaþingi í gær. Forsætisráðherra segir ríkið verða að taka á sig stærri hlut til að koma efnahagslífinu á réttan kjöl.

Byr bútaður niður

Mikil uppstokkun stendur nú yfir á Byr sparisjóði, útibú verða sameinuð, deildir lagðar niður og starfsfólk flutt til. Að hagræðingaraðgerðum loknum mun ríkið væntanlega leggja honum til nýtt eigið fé upp á tæpa ellefu milljarða króna.

Hugleiða að byggja hér lyfjaverksmiðju

Bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Alvogen leitar að stað fyrir nýja verksmiðju sem fyrirhugað er að reisa. Að sögn Róberts Wessman, starfandi stjórnarformanns Alvogen, stendur valið helst á milli Austur-Evrópu og Íslands.

Bankaráð Landsbankans samþykkti tillögu um jafnan hlut kynja

Bankaráð Landsbankans samþykkti á fundi sínum í dag 17. febrúar 2010, tillögu þess efnis að fyrirtækið skuli tryggja fyrir árslok 2013 að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40 prósent í forystusveit bankans og dótturfélaga hans.

Fékk risalán til að kaupa Fons út úr Iceland

Landsbankinn lánaði félagi í eigu Stoða og annarra, rúmlega fimmtíu milljarða til að kaupa Fons, félag Pálma Haraldssonar, út úr Iceland verslanakeðjunni rétt fyrir hrun. Skuldin stendur nú í níutíu milljörðum og þarf skilanefnd bankans væntanlega að taka yfir hlutinn áður en árið er úti. Þessi eign er hluti þess sem á að ganga upp í Icesave.

Róbert Wessman opnar einkasjúkrahús

Félag í eigu Róbert Wessman opnar einkasjúkrahús á gamla hersjúkrahúsinu að Ásbrú á næsta ári, en endurbætur á húsinu hefjast í mars. Sjúklingarnir verða sóttir til útlanda í liðskipta- og offituaðgerðir. Allt að 300 störf munu skapast í Reykjanesbæ, segir bæjarstjóri.

Stjórnvöld hagræði meira í rekstri ríkissjóðs

Tómas Már Sigurðsson formaður Viðskiptaráðs segir að það sé ljóst að stjórnvöld ættu að leggja mun ríkari áherslu á hagræðingu í rekstri ríkissjóðs. Viðskiptaráð hafi ítrekað bent á hversu illa hefur tekist að hemja útþenslu hins opinbera á undanförnum árum.

Gamma hækkaði um 0,05%

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,05% í dag í 11,1 milljarða viðskiptum.

Dótturfélag Samherja kaupir rækjutogara í Færeyjum

Onward Fishing Company, dótturfélag Samherja í Bretlandi, hefur fest kaup á rækjutogaranum Fríðborg frá Færeyjum. Skipið er systurskip Polonus, sem er í eigu dótturfélags Samherja í Póllandi. Skipið er ísstyrkt og sérútbúið til rækjuveiða.

Fjárfestingastofa Íslands veit ekki af kreppunni

Ef trúa skal heimasíðu Fjárfestingarstofu Íslands, www.invest.is, þar sem ætlunin er að laða erlenda fjárfesta til landsins virðist sem kreppan hafi aldrei skollið á Íslandi. Þar er talað um, á einum sjö tungumálum, að viðskiptaumhverfi landsins sé á hraðri hreyfingu, einbeitt og vinalegt fyrirtækjum.

Þokkaleg sala á mjólkurafurðum í janúar

Þokkaleg sala var á mjólkurafurðum í janúar sl., lítils háttar aukning var í sölu á ostum og góð sala á dufti, talsverður samdráttur í jógúrt og rjóma en aðrar afurðir í jafnvægi.

Segir lántöku fyrir arði eðlilega

Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor og sérfræðingur í félagarétti við Háskóla Íslands, segir að lántaka til að greiða út arð til hluthafa sé í ákveðnum tilfellum eðlileg. Hann segist hins vegar ekki vita um nein dæmi um slíkt hér á landi þótt slíkt sé vel þekkt erlendis.

Vonast til að bætt verði við loðnukvótann

Loðnu verður nú vart um allan sjó, eins og sjómenn orða það, eða allt frá Hornafirði og vestur í Faxaflóa. Skip eru að fá afla hér og þar og eru miklar vonir bundnar við að verulega verði bætt við kvótann.

Greining MP Banka spáir 6,8% verðbólgu

Greining MP Banka segir að útlit sé fyrir að verðlag hafi hækkað töluvert milli mánaða nú í febrúar. Líklegt er að vísitalan hækki um 0,7% milli mánaða sem þýðir að ársverðbólgan eykst aðeins, úr 6,6% í 6,8%.

Greining: Spáir 6,9% verðbólgu í febrúar

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,8% í febrúar eftir óvænta 0,3% lækkun í janúar. Gangi spáin eftir hækkar ársverðbólga úr 6,6% í 6,9%.

Fyrsta hækkun íbúðaverðs í borginni frá ágúst í fyrra

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% í janúar frá fyrri mánuði. Þessi hækkun kemur í kjölfar mikilla lækkana undanfarna mánuði en íbúðaverð hefur ekki hækkað milli mánaða síðan í ágúst síðastliðnum.

Skeljungi og Atlantsolíu veitt undanþága til samstarfs

Samkeppniseftirlitið hefur veitt Atlantsolíu ehf. og Skeljungi hf. undanþágu til samstarfs um flutning og dreifingu á olíu milli Reykjavíkur og Akureyrar. Er undanþágan tímabundin og gildir til 14. maí 2010.

Íslandsbanki tekur upp persónuleikapróf

Íslandsbanki og Capacent hafa undirritað samkomulag um að Íslandsbanki verði sjálfstæður notkunaraðili á OPQ32 (Occupational Personality Questionnaire 32), sem er persónuleikapróf sniðið að ráðningum og þróun stjórnenda og sérfræðinga.

Átta fá tæpar 8 milljónir úr Hönnunarsjóði Auroru

Átta hönnuðir og arkitektar fá úthlutað 7.880.000 kr. úr Hönnunarsjóði Auroru í dag við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands kl. 16:30. Að þessu sinni bárust sjóðnum 62 umsóknir á sviði arkitektúrs, grafískrar hönnunar, fatahönnunar, vöruhönnunar og landslagsarkitektúrs.

Aflaverðmæti jókst um 15 milljarða milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 106 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2009, samanborið við 91 milljarð yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða kr. eða 16,6% á milli ára. Aflaverðmæti í nóvember nam 10,4 milljörðum króna en var 11,3 milljarðar í nóvember 2008.

Félag að baki kísilmálmverksmiðju í miklum fjárhagserfiðleikum

Undirbúningur að byggingu kísilmálmverksmiðju við Þorlákshöfn virðist skammt á veg kominn, miðað við upplýsingar á vef kanadíska fyrirtækisins Timminco, eins aðila verkefnisins. Fram kemur í uppgjöri fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung 2009 að það eigi í miklum erfiðleikum og framtíð þess sé óviss.

Tóku lán fyrir arðgreiðslunni

Rúmlega fjögurra milljarða króna arðgreiðsla sem Pálmi Haraldsson greiddi sér útúr fjárfestingarfélaginu Fons vegna góðs hagnaðar rekstrarárið 2006 var fengin að láni hjá Landsbankanum.

Erlendar eignir Seðlabanka minnka um 10 milljarða

Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 475 milljörðum kr. í lok janúar samanborið við 485 milljarða kr. í lok desember 2009. Þær minnkuðu því um 10 milljarða kr. milli mánaða.

Sjá næstu 50 fréttir