Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Erlendu félögin féllu mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, féll um 22,8 prósent í dag. Á eftir fylgdi færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum, sem féll um 22,13 prósent. 6.10.2008 15:34
Segja að Nordea sé með FIH-bankann í sigtinu Sænskir greinendur telja að Nordea hafi áhuga á að kaupa FIH-bankann danska af Kaupþingi. Fyrr í dag komu fréttir um að Nordea gæti hugsað sér að kaupa eitthvað af eigum Kaupþings á Norðurlöndunum. 6.10.2008 14:45
Tvö félög falla um 20 prósent í Kauphöllinni Gengi færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum og bandaríska álfélagsins Century Aluminum, móðurfélags álversins á Grundartanga hefur fallið um rúm 20 prósent í dag. Þá hefur Bakkavör fallið um tæp 15 prósent. Gengi bréfa í fyrirtækinu stendur nú í 14, krónum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan í enda ágúst árið 2003. 6.10.2008 14:39
Kaupþing stöðvar innlausnir úr sínum sjóðum Kaupþings hefur eins og hinir bankarnir ákveðið að frestað innlausnum í sjóðum bankans tímabundið. Ástæðan er ströðvun viðskipti með alla fjármálagerninga útgefnum af Glitni, Kaupþingi, Landsbankann, Exista, Straum og SPRON en sjóðir Kaupþings innihalda fjármálagerninga þessara félaga. 6.10.2008 14:32
Dow Jones ekki lægri í fimm ár Dow Jones-hlutabréfavísitalan hefur fallið um 3,39 prósent í dag og stendur vísitalan í 9.974 stigum. Hún hefur ekki verið lægri síðan seint í nóvember árið 2003 þegar hún var að rísa upp eftir að netbólan sprakk og hryðjuverkaárásir á Bandaríkin. 6.10.2008 14:20
Landsbankinn stöðvar öll viðskipti með sjóði sína Landsbankinn hefur ákveðið að stöðva tímabundið öll viðskipti með sjóði sína. 6.10.2008 14:17
Glitnir stöðvar innlausnir úr sjóðum sínum Glitnir Sjóðir hf. segir að ekki verði komist hjá því að fresta innlausnum úr sjóðum sínum. 6.10.2008 14:08
Enn einn skellurinn í Bandaríkjunum Enn einn skellurinn var á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfestar telja björgunaraðgerðir stjórnvalda, sem fulltrúaþing Bandaríkjaþings samþykkti í síðustu viku, hvergi duga til að koma fjármálakerfinu aftur á réttan kjöl. 6.10.2008 13:52
Bretar í vandræðum með að taka út af Icesave-reikningum Bretar hafa átt í vandræðum með að taka út af Icesave reikningum sínum í gær og í dag. Talsmenn Icesave, sem er netbanki Landsbankans í Bretlandi, segja að bilun í tölvukerfi þeirra sé um að kenna. 6.10.2008 13:34
DeCode fellur um fimmtung Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féll um 21,18 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag. Hlutabréfaverðið fór niður í 26 sent á hlut og hefur aldrei verið lægra. 6.10.2008 13:31
FME í Svíþjóð kannar áhættuna af Íslandi í sænska bankakerfinu Fjármálaeftirlit (FME) Svíþjóðar hefur um helgina kannað áhættuna af Íslandi í sænska bankakerfinu. Niðurstaðan er sú að áhættan sé minni en af gjaldþroti Lehman Brothers. 6.10.2008 13:09
Danske Bank þarf að afskrifa 2 milljarða kr. á Íslandi Danske Bank bætist nú í hóp þeirra norrænu banka sem byrjaðir eru að upplýsa um áhættu sína af lánum og skuldbindingum á Íslandi. Danske Bank segir að hann þurfi að afskrifa um 100 milljónir danskra kr. eða rúma 2 milljarða kr. á Íslandi. 6.10.2008 12:59
deCode á athugunarlista Nasdaq deCODE genetics, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, á það á hættu að vera hent út úr Nasdaq Global markaðnumþar sem gengi bréfanna hefur lækkað mikið. 6.10.2008 12:52
Sænskir bankar upplýsa um litla áhættu sína á Íslandi Tveir sænskir bankar, Carnegie og Handelsbanken hafa séð ástæðu til að upplýsa markaðinn um áhættu sína fjárfestingum á Íslandi. 6.10.2008 12:47
Nordea gæti haft áhuga á að kaupa eignir af Kaupþingi Nordea gæti haft áhuga á því að kaupa eignir af Kaupþingi á Norðurlöndunum. Þetta kemur fram á vefsíðunni E24.no í dag. 6.10.2008 11:58
Evran fjórtán krónum dýrari hjá Landsbankanum miðað við hina bankana Landsbankinn seldi evruna á tæpar 183 kr. í morgun á meðan að opinbert gengi evrunnar hjá Seðlabankanum er 155 kr., nú rétt fyrir hádegið. Á heimasíðu bankans var um tíma ekki hægt að sjá gengi gjaldmiðla og sagt að villa hafi komið upp í kerfinu. Úr því hefur verið bætt og kostar evran nú 169 krónur. Glitnir selur evruna á 155 krónur og Kaupthing er með svipaða verðlagningu. Ekki fengust upplýsingar um málið hjá Landsbankanum. 6.10.2008 11:28
Norrænir seðlabankar á fullu í aðgerðum, SÍ gerir ekkert Norrænir seðlabankar hafa verið á fullu í morgun við að dæla fé í banka sína og fjármálastofnanir. Hér heima gerir Seðlabanki Íslands ekkert til að létta undir með markaðinum. 6.10.2008 10:59
Lokað fyrir viðskipti með Kaupþing í Svíþjóð Lokað hefur verið fyrir viðskipti með Kaupþing í kauphöllinni í Svíþjóð eins og hér heima. 6.10.2008 10:37
Fjárfestar sækja í öryggi ríkistryggðra bréfa Mikill áhugi var fyrir innistæðubréfum þeim sem Seðlabankinn bauð út á föstudaginn var. Samþykkt voru tilboð upp á rúmlega 84 milljarða kr. Greinilegt er að fjárfestar sækja nú í öryggi ríkistryggðra bréfa. 6.10.2008 10:29
Krónubréf fyrir 29 milljarða kr. á gjalddaga í dag Krónubréf að nafnvirði 29 milljarða kr. falla á gjalddaga í dag að viðbættum vöxtum. Um er að ræða flokk krónubréf sem Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) gaf út. 6.10.2008 10:20
Upplýsingafulltrúi Glitnis sleit viðtali við norskan sjónvarpsmann Már Másson, forstöðumaður samskiptasviðs Glitnis, stöðvaði viðtal sem hann var í við norska ríkissjónvarpið þegar fréttamaður spurði hann út í kaupréttarsamninga sem stjórnendur bankans hafa grætt á undanfarin ár. 6.10.2008 10:13
Stöðvar viðskipti með bréf sex fjármálastofnana Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með bréf allra stóru bankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbanka og einnig Exista, Straums og SPRON. 6.10.2008 10:10
Sex fjármálafyrirtæki á athugunarlista Kauphallar Sex fjármálafyrirtæki í Kauphöll Íslands voru sett á athugunarlista hallarinnar. 6.10.2008 10:06
Century Aluminum fellur í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, féll um 10,6 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag og er það mesta fall dagsins. 6.10.2008 10:04
Krónan veikist lítillega Krónan veiktist um 0,12 prósent við opnun gjaldeyrisviðskipta í morgun og stóð gengisvísitalan í 206,3 stigum. 6.10.2008 09:27
Danske Bank tapar 36 milljörðum kr. á útlánum Danske Bank mun tapa 36 milljörðum kr. eða 1,8 milljarði danskra kr. á útlánum sínum á þriðja ársfjórðungi ársins. 6.10.2008 09:07
Kauphöllin opnuð - Fjármálafyritæki líklega sett á athugunarlista Kauphöllin mun opna klukkan tíu eins og venjulega en reiknað er með því að fjármálafyrirtækin í höllinni verði sett á athugunarlista. Þetta segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar. 6.10.2008 09:03
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og í morgun var Brent-olían komin í 86,7 dollara á tunnuna sem er 5 dollurum lægra en s.l. föstudag. 6.10.2008 08:40
Kaupþing fær einnig skell í sænska blóðbaðinu Kaupþing hefur nú lækkað um tæp 5% prósent í kauphöllinni í Svíþjóð flestir bankar á þeim markaði hrynja nú eftir opnunina í morgun. 6.10.2008 08:07
Hlutabréf á niðurleið í Asíu Hlutabréf lækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun og telja greiningaraðilar að meðal annars megi rekja lækkunina til vantrúar markaðsaðila á því að 700 milljarða bankabjörgunaráætlun Bandaríkjastjórnar nægi til að koma í veg fyrir að verulega hægist á hagvexti í heiminum. 6.10.2008 08:03
Fjallað um fundarhöld og erfiðleika í helstu blöðum heims Fjallað er um hin stífu fundarhöld í Ráðherrabústaðnum um helgina í öllum helstu blöðum Bretlands í morgun og sömuleiðis í hinu bandaríska Wall Street Journal. 6.10.2008 08:00
Innistæður að fullu tryggðar, segir Glitnir Glitnir hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að eftir yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá því í gærkvöldi sé ljóst að allar innistæður viðskiptavina Glitnis hér á landi verði tryggðar að fullu. 6.10.2008 07:47
Kauphöllin í Kaupmannahöfn opnaði með blóðbaði Kauphöllin í Kaupmannahöfn opnaði með blóðbaði í morgun eins og það er orðað í dönskum fjölmiðlum. C20-vísitalan féll um sex prósent og eru það bankarnir Danske Bank og Nordea sem leiða lækkunina. 6.10.2008 07:38
Yfirtaka og uppskipting eigna bankanna ræddar í dag Heimildir Vísis herma að tvær hugmyndir séu uppi á borðinu um framtíð viðskiptabankanna þriggja, Glitnis, Landsbankans og Kaupþings. Annars vegar er rætt um yfirtöku Kaupþings á Landsbankanum og hins vegar er rætt um aðkomu Landsbankans og Kaupþings á eignauppskiptingu Glitnis. 5.10.2008 18:32
Næststærsta banka Þýskalands bjargað Stjórnvöld í Þýskalandi hafa komist að samkomulagi við samtök þýskra fjármálafyrirtækja um að bjarga íbúðabankanum Hypo Real Estate, næststærsta banka landsins. Frá þessu var greint í kvöld. 5.10.2008 22:47
Unnið að björgunarpakka fyrir nauðstadda banka í Danmörku Það er víðar en á Íslandi sem unnið er að björgunarpökkum fyrir fjármálakerfið því danskir miðlar greina frá því að ríkisstjórnin þar í landi og bankarnir séu að komast að samkomulagi um sérstakan sjóð upp á 35 milljarða danskra króna, jafnvirði um 700 milljarða íslenskra króna, fyrir banka í neyð. 5.10.2008 21:24
Ekki búið að virkja gjaldmiðlaskiptin við seðlabanka Svíþjóðar Blomberg-fréttaveitan hefur það eftir upplýsingafulltrúa sænska seðlabankans að Seðlabanki Íslands hafi enn ekki beðið um að gjaldmiðlaskiptasamningurinn milli bankanna verði virkjaður. 5.10.2008 13:35
Til greina kemur að skipta bönkunum upp í íslenska og erlenda Pétur Blöndal alþingismaður segir að til greina komi að skipta bönkunum upp í íslenska og erlenda banka. Við það myndu erlendar skuldir og skuldbindingar bankana flytja úr landi. 5.10.2008 13:03
Hættir að tryggja viðskipti Baugs við birgja í Bretlandi Euler Hermes einn af stærstu lánatryggjendum í Bretlandi hefur hætt að tryggja viðskiptaskuldir birgja við nokkur fyrirtækja Baugs í Bretlandi. Þetta kemur fram í breska blaðinu Independent on Sunday í dag. 5.10.2008 11:52
Karl Svíakóngur tapar miklu á fjármálakreppunni Karl Svíakóngur hefur ekki farið varhluta af fjármálakreppunni. Samkvæmt frétt í Aftonbladet hefur Karl tapað um 10 milljónum sænskra króna eða nær 160 milljónum kr. á síðustu vikum. 5.10.2008 11:18
Kaupþing í ábyrgð fyrir 600 milljörðum kr. í Bretlandi Samkvæmt grein í breska blaðinu The Indepedtent er talið að Kaupþing sé í ábyrgð fyrir 3 milljörðum punda, eða 600 milljörðum kr. í Bretlandi. Alls vinni 700 manns á vegum Kaupþings í fjármálalífi landsins. 5.10.2008 11:01
Lífeyrissjóðirnir geta lagt fram um 200 milljarða „Tvö hundruð milljónir er tala sem hefur verið rætt um. Það er svona um það bil sú upphæð sem hægt yrði að losa með tiltölulega skömmum fyrirvara," segir Grétar Þorsteinsson, formaður ASÍ í samtali við Vísi. 5.10.2008 10:39
Næst stærsti banki Þýskalands á leið í gjaldþrot Hypo Real Estate, næst stærsti banki Þýskalands, rambar nú á barmi gjaldþrots eftir að snurða hljóp á þráðinn í viðræðum um björgun bankans. 5.10.2008 09:59
Guðbjörg seldi Glitnishlut korteri fyrir þjóðnýtingu Athafnakonan Guðbjörg Matthíasdóttir seldi lungann úr 1,71% hluti sínum í Glitni á fimmtudaginn 25. eða föstudaginn 26. september korteri áður en bankinn var þjóðnýttur. Hún var sú eina af tuttugu stærstu hluthöfum bankans sem seldi hlut sinn í vikunni fyrir þjóðnýtingu. 5.10.2008 09:51
Fjármálakreppan á Íslandi gæti haft áhrif á Skota Skoska blaðið Sunday Mail segir í morgun að fjármálakreppan á Íslandi geti haft áhrif á stærstu verslunakeðjur Skotlands. Sérstaklega er vísað til búða á vegum keðjanna Iceland og Jenners og einnig House of Fraser sem er sameiginlega í eigu Baugs og skoska auðjöfursins Tom Hunter. 5.10.2008 09:47