Viðskipti innlent

Kauphöllin opnuð - Fjármálafyritæki líklega sett á athugunarlista

MYND/GVA

Kauphöllin mun opna klukkan tíu eins og venjulega en reiknað er með því að fjármálafyrirtækin í höllinni verði sett á athugunarlista. Þetta segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar.

Aðspurður segir hann menn þar á bæ ekki búast við að þurfa að loka kauphöllinni. „Það hafa verið mjög miklar lækkanir í kauphöllum erlendis í morgun en þar hefur ekki verið gripið til þess að loka þeim. Það eru ekki rétt viðbrögð," segir Þórður.

Hann segir enn fremur að fjármálafyrirtækin verði að líkindum sett á athugunarlista Kauphalllarinnar þangað til skýrari upplýsingar fást um það hver staða þeirra verði. Félög eru sett á athugunarlista í Kauphöllinni þegar óvissa er varðandi verðmyndun vegna hættu á ójafnræði meðal fjárfesta, með öðrum orðum þegar talið er hugsanlegt að einhverjir fjárfestar viti meira um eitt fyrirtæki en aðrir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×