Viðskipti innlent

Guðbjörg seldi Glitnishlut korteri fyrir þjóðnýtingu

Athafnakonan Guðbjörg Matthíasdóttir seldi lungann úr 1,71% hluti sínum í Glitni á fimmtudaginn 25. eða föstudaginn 26. september korteri áður en bankinn var þjóðnýttur. Hún var sú eina af tuttugu stærstu hluthöfum bankans sem seldi hlut sinn í vikunni fyrir þjóðnýtingu.

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, sem hefur verið helsti ráðgjafi Guðbjargar í viðskiptum á undanförnum árum, sagði í samtali við Vísi að tímasetningin væri hrein tilviljun. "Það var gerður söluréttarsamningur um þennan hlut sem gilti í eitt ár þegar Glitnir keypti hlut hennar í TM í september í fyrra. Ég held að sölurétturinn hafi verið virkur í tvo daga þegar Guðbjörg nýtti sér hann á fimmtudag eða föstudag í síðustu viku," segir Gunnlaugur Sævar og bætir við að engu máli hafi skipt hvenær Guðbjörg hefði selt hlutinn vegna samningsins. Hann vill þó ekki gefa upp á hvaða gengi hluturinn var seldur.

Guðbjörg fékk hlutinn í Glitni á genginu 28,45 þegar bankinn keypti 39% hlut hennar og nokkurra annarra í Tryggingamiðstöðinni 5. september á síðasta ári. Miðað við hluthafaskrá Glitnis má sjá að Guðbjörg kemur fyrst inn í hluthafalistann vikuna 24. til 30. september í fyrra.

Róbert Wessman var ekki jafn heppinn og Guðbjörg því hann keypti 2,5% hlut í Glitni fyrir fimm milljarða á svipuðum tíma og Guðbjörg seldi sinn hlut.

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson er náinn vinur Davíðs Oddssonar Seðlabankastjóra og var til að mynda veislustjóri í fimmtugsafmæli hans. Sonur Guðbjargar, Einar Sigurðsson, vinnur í Glitni.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×