Viðskipti innlent

Glitnir stöðvar innlausnir úr sjóðum sínum

Glitnir Sjóðir hf. segir að ekki verði komist hjá því að fresta innlausnum úr sjóðum sínum.

Um er að ræða sjóði sem innihalda fjármálagerninga félaga þar sem viðskipti hafa verið stöðvuð í Kauphöllinni í dag. Þetta eru Sjóður 1 - skuldabréf, Sjóður 10 - úrval innl. hlbr. , Sjóður 11 - fyrirtækjabréf, Sjóður 6 - aðallistinn og Sjóður 9 - peningamarkaðsbréf

Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félaganna.

Í tilkynningu um málið segir að Fjármálaeftirlitið hafi ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga útgefnum af Glitni , Kaupþingi, Landsbanka, Existu, Straumi og SPRON. Ákvörðunin er tekin þar sem það sé mat Fjármálaeftirlitsins að jafnræði fjárfesta verði ekki tryggt með öðrum hætti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×