Viðskipti innlent

Innistæður að fullu tryggðar, segir Glitnir

Þorsteinn Már Baldvinsson er stjórnarformaður Glitnis.
Þorsteinn Már Baldvinsson er stjórnarformaður Glitnis. MYND/E.Ól

Glitnir hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að eftir yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá því í gærkvöldi sé ljóst að allar innistæður viðskiptavina Glitnis hér á landi verði tryggðar að fullu. Á fundum forstjóra og stjórnarformanns Glitnis með fulltrúum stjórnvalda um helgina hafi ítrekað komið fram að Glitnir verði í meirihlutaeigu ríkisins eftir hluthafafund bankans og að ríkið muni styðja bankann.

„Stærstu hluthafar Glitnis hafa lýst stuðningi við tilboð ríkisins sem lagt verður fyrir hluthafafund bankans. Við höfum átt mjög gagnleg samtöl við fulltrúa ríkisstjórnarinnar og allra stjórnmálaflokka um helgina og það er ljóst að víðtækur stuðningur er við þetta samkomulag. Ég fagna yfirlýsingu forsætisráðherra um að allar íslenskar innstæður okkar viðskiptavina hér á landi, óháð upphæð, séu tryggðar," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis í tilkynningunni.

„Við munum áfram vinna að því að undirbúa sölu á eignum erlendis. Sú vinna hófst hjá Glitni snemma á þessu ári. Glitnir er í þessu sambandi í góðri stöðu enda með góðar og traustar eignir," segir enn fremur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×