Fleiri fréttir

Dansararnir fengu að fjúka

Júróbandið vinnur þessa dagana að því hörðum höndum að fínpússa atriði sitt í Eurovision keppninni í maí. Meðal breytinga sem gerðar hafa verið er að engir dansarar verða á sviðinu með þeim Friðriki og Regínu í Serbíu, en í stað þeirra bætast við bakraddasöngvarar.

Mýrin vann í Valenciennes

Á hinni árlegu kvikmyndahátíð í Valenciennes i Frakklandi má segja að Mýrin hafi komið, séð og sigrað.

Mótmæla háu eldsneytisverði með bensínlausri vespu

„Við sáum bara fréttir af vörubílstjórunum og datt í hug að gera eitthvað,“ segir Atli Óskar Fjalarsson fimmtán ára gamall vespueigandi. Hann hefur ásamt félaga sínum Jóni Karli Einarssyni mótmælt háu bensínverði í morgun.

Stjörnulögfræðingur á blæjubíl

„Mig hefur langað í svona bíl frá því ég var krakki," segir Sveinn Andri Sveinsson, stjörnulögfræðingur, sem festi í síðustu viku kaup á forláta hvítum Mustang blæjubíl.

Ásdís byrjuð að fagna

„Ég er viss um að þetta takist núna, það er engin leið að þær nái mér eftir þetta. Forskotið er það mikið,“ segir Ásdís Rán, sem trónir í efsta sæti í fyrirsætukeppninni Is She Hot? Ásdís bætir við að hún sé eiginlega byrjuð að fagna.

Keith Richards búinn að slátra skammtímaminninu

Keith Richards hefur viðurkennt að hann reyki gras stöðugt, og eigi í stökustu vandræðum með að muna eftir megni ævi sinnar. Það kemur sér illa þegar maður er að skrifa ævisögu sína.

Síðasti dagurinn til að kjósa Ásdísi

Í dag eru síðustu förvöð þennan mánuðinn að kjósa Ásdísi Rán í fyrirsætukeppninni Is She Hot. Verði Ásdís með flest stig á miðnætti að staðartíma hefur hún unnið sér þátttökurétt í áströlskum raunveruleikaþætti þar sem sigurvegarar hvers mánaðar etja kappi.

Heldur útgáfutónleika og stundar lyftingar

Tónlistarmaðurinn Borko heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói á fimmtudaginn til að fylgja eftir sinni fyrstu breiðskífu, Celebrating Life. Platan kom út í byrjun mars og hefur fengið lofsamlegar umsagnir hjá gagnrýnendum.

Formúlu 1 stjóri í kynsvalli með nasistamellum

Max Mosley forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins er í slæmum málum þessa dagana. Formúla 1 keppnin heyrir undir hann. Blaðið News Of The World hefur birt myndband sem sýnir Max í kynsvalli með mellum sem klæddar eru eins og nasistar og fangar í útrýmingarbúðum.

Saga af armbeygjukeppni upp á milljónir

Já, já, við erum báðir keppnismenn. Höfum oft spilað skvass. En haldið okkur við það, segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss.

Fréttamaður BBC sprakk í beinni

Hlustendur BBC Radio 4 urðu frekar undrandi þegar Charlotte Green fréttamaður Today þáttarins fékk hláturkast. Þátturinn er þekktur fyrir alvarlegar fréttir og umfjöllun um helstu mál dagsins með viðeigandi alvarleika. Í miðjum fréttatíma heyrðust fliss og svo hlátrasköll og Charlotte var ómögulegt að halda áfram.

Bubbi elskar Pál Óskar út af lífinu

„Það verður seint logið upp á hann Pál óskar að hann sé mikill rokkari," segir Bubbi Morthens aðspurður um hvers sé að vænta af rokkatriði Páls Óskars í Bandinu hans Bubba í kvöld.

Rolls Royce sportbíll rokselst

Kaupendur lúxusvara hlusta svitna greinilega ekki yfir nær lóðréttu sigi hlutabréfamarkaða undanfarið. Allavega ekki ef marka má viðtökur á sportbílnum Phantom Coupe, sem Rolls Royce kynnti á dögunum. Fyrstu vikuna frá því að bíllinn var kynntur voru pantaðir alls 200 bílar. Framleiðsla á hverju eintaki af Rolls Royce er tímafrek og þetta þýðir að þeir kaupendur sem koma núna verða að bíða fram á mitt ár 2009 til að fá úthlutað bíl.

Kate Moss ákveður daginn

Kate Moss og Jamie Hince virðast hafa ákveðið daginn fyrir komandi brúðkaup sitt, en þau hafa sagt fjölskyldu og vinum að bóka vera ekki upptekin í byrjun september.

Í slóð Slömmlordanna í miðbænum

Á laugardaginn ætlar Birna Þórðardóttir að bjóða upp á göngutúr og leiðsögn um þau hverfi sem verst hafa orðið fyrir barðinu á niðurníðslutísku undanfarinna ára. „Ég hef boðið upp á gönguferðir um miðbæinn í sex ár. Mörg þessi hús hafa stungið í augun og út af umræðunni núna ákvað ég að bjóða upp á gönguferð í slóð slömmlordanna," segir Birna.

Fríríki ekki lausnin

„Mér finnst alltaf gaman þegar fólk stofnar félög, það er öllum frjálst," segir Grímur Atlason, bæjarstjóri í Bolungarvík aðspurður um skoðanir sínar á nýstofnuðu félagi bloggara til bjargar Vestfjörðum - BBV. Meðal hugmynda félagsins er að firðirnir verði aðskildir frá meginlandinu með skipaskurði, og að þeir verði fríríki.

50 listamenn koma fram í Kaaber húsinu

Helgina 4 - 6 apríl mun veftímaritið www.Getrvk.com standa fyrir listasýningu í gamla Kaaber húsinu. Á sýningunni munu koma fram allir þeir listamenn sem komið hafa fram í blaðinu ásamt fleirum en alls er gert ráð fyrir að um 40-50 listamenn komi fram.

Eldur kom upp hjá óheppnustu hljómsveit Íslands

Eldur braust út í hljómsveitarrútu hljómsveitarinnar Dalton í morgun. Þegar eldurinn kom upp stóð rútan fyrir utan Verslunarskóla Íslands en þar inni var hljómsveitin að skemmta í morgun. Slökkviliðið kom á vettvang og náði stjórn á eldinum og forðaði því að mikill skaði yrði að völdum hans.

Ásdís með meteinkunn

Ásdís Rán hefur nú nokkra forystu yfir næstu skvísu í keppninni Is she hot?

Vilja gera Vestfirði að sjálfstæðri eyju

Í mogganum í gær var áhugaverð aðsend grein um nýstofnuð samtök, BBV, eða Bloggarar bjarga Vestfjörðum. Samtökin berjast fyrir uppbyggingu Vestfjarða, og telja sjálfstæði þeirra vænlegast til árangurs.

Íslensku tónlistarverðlaunin vinsælasta sjónvarpsefnið

Í vikulegri könnun Capacent sem birt er í dag fyrir vikuna 17.-23.mars eru Íslensku tónlistarverðlaunin með mesta áhorf. 55,3% þjóðarinnar á aldrinum 12-80 ára horfðu á útsendingu Sjónvarpsins frá verðlaununum.

Ný plata frá Garðari Thor

Ný plata er væntanleg úr smiðju Garðars Thors Cortes. Platan hefur hlotið nafnið „When You Say You Love Me“, og hefur verið í vinnslu frá því í haust. Þetta er önnur plata Garðars, en sú fyrri, Cortes, seldist í um 70 þúsund eintökum, og er Garðar meðal annars tilnefndur til Bresku tónlistarverðlaunanna fyrir hana. Þá hafa gagnrýnendur hlaðið tenórinn unga lofi, og blöð á borð við Newsweek og The Independent líkt honum við Luciano Pavarotti.

Brangelina gæti fengið tíu milljónir dollara fyrir barnamyndir

Það er arðsamt að eignast börn í Hollywood, og hafa nýjustu mömmurnar í kvikmyndaborginni fengið dágóðar fúlgur fyrir myndir af börnunum sínum. Á árinu hefur Christina Aguilera hirt tæpar tvær milljónir dollara fyrir sínar barnamyndir, Nicole Richie eina og Jennifer Lopez heilar sex milljónir, enda tvöfalt barnalán á því heimilinu.

Siggi Stormur heldur tryggð við Land Rover

„Þetta eru svona viss vonbrigði. Þegar maður ekur um á Land Rover þá er maður svo sannfærður um að maður sé á eðal breskum bíl með allri þeirri sérvisku og sjarma sem því fylgir," sagði Sigurður Þ. Ragnarsson, þegar fregnir af kaupum hins indverska Tata Motors á Land Rover voru borin undir hann.

Hlýddu á tónleika um MAXIMÚS MÚSÍKÚS

700 leikskólabörn hlýddu hugfangin á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í morgun um hann MAXÍMÚS MÚSÍKÚS, sem er sögupersóna í nýútkominni bók eftir Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara hljómsveitarinnar.

Ciccolina vill milljónir í meðlag

Þingmaðurinn fyrrverandi og klámstjarnan Ciccolina hefur stefnt fyrrverandi fyrrverandi eiginmanni sínum, listamanninninum Jeffrey Koons, og krefur hann um milljónir dollara vegna vangreiddra meðlagsgreiðslna.

Eiginkonan farin frá Robin Williams

Eiginkona Robin Williams til nítján ára, Marsha Garces Williams, hefur sótt um skilnað frá leikaranum vegna ósættanlegs ágreinings. Parið kynntist þegar Marsha var barnfóstra fyrir Robin og þáverandi eiginkonu hans. Hún varð svo aðstoðarmaður hans þar til þau giftu sig árið 1989. Þau stofnuðu seinna framleiðslufyrirtækið Blue Wolf Productions, og framleiddi Marsha meðal annars kvikmyndina Mrs. Doubtfire.

Cortes enn sagður í öðru sæti í vefkosningunni

„Plata Garðars Thórs Cortes sem kom út í Bretlandi í fyrra er sögð vera í öðru sæti í vefkosningunni um plötu ársins hjá Bresku tónlistarverðlaununum,“ segir í tilkynningu frá Einari Bárðarsyni, umboðsmanni Garðars. Það virðist því vanta herslumuninn á að hann nái toppsætinu sem tryggir honum þessi eftirsóttu verðlaun.

Sambora týndur á þjóðveginum

Richie Sambora, gítarleikari bandarísku rokksveitarinnar Bon Jovi var handtekinn í dag grunaður um að keyra undir áhrifum áfengis. Lögregla tók eftir svörtum Hummer jeppa sem rásaði um veginn og þegar bíllinn var stöðvaður kom í ljós að gítarhetjan var undir stýri, ekki allsgáð.

Dýr barnamyndataka J-Lo

Sex milljón dollara myndirnar af börnunum hennar Jennifer Lopez virðast ætla að borga sig fyrir People tímaritið. Heimsóknir á heimasíðu vikublaðsins tvöfölduðust þegar fréttin fór í loftið, og börðu fjórar milljónir notenda myndirnar augum fyrsta daginn. Þá hefur tímariti rokið út, og er áætlað að það muni seljast í um tveimur og hálfri milljón eintaka í vikunni.

Heather vill meiri pening

Heather Mills er langt því frá sátt við milljarðana þrjá sem henni voru skammtaðir í skilnaðarmáli hennar og Pauls McCartney. Sú upphæð var ákveðin út frá því að eignir Pauls væru metnar á rúmar fjögur hundruð milljónir punda, en Heather vill hinsvegar meina að sú tala sé nær átta hundruð milljónum.

Paris Hilton bætir í hundasafnið

Paris Hilton hefur verið gagnrýnd fyrir að sanka að sér fleiri gæludýrum en hún getur sinnt, en hún lætur það ekkert stöðva sig í því að fjölga í safninu. Glamúrgellan heimsótti á dögunum dýraathvarfið Bobbi & The Strays á Long Island og fann þar terrier hund sem hún ætlar að taka að sér.

Tyra Banks þolir ekki Jay Emanuel

Tyru Banks semur arfailla við samstarfsmenn sína í Americas Next Top Model, og hugleiðir nú að hætta í þættinum.

Jamie Lynn trúlofuð?

Væntanlegt barn Jamie Lynn Spears var kannski getið í synd, en ef marka má heimildir People tímaritsins eru fjölskylduaðstæðurnar eitthvað á uppleið. Sést hefur til Spears yngri á heimaslóðunum í Louisiana, stærandi sig af stórum glitrandi trúlofunarhring frá unnustanum, hinum átján ára Casey Aldridge.

Obama og Hillary skyld Brangelinu

Eitt stærsta ættfræðifélag Bandaríkjanna, The New England Historic Genealogical Society, hefur fundið óvænta tengingu á milli Barack Obama og Hillary Clinton. Gegnum Brangelinu.

Böddi í Dalton ber sig vel eftir árás

"Ég var útskrifaður af sjúkrahúsinu klukkan 12 á laugardeginum. Á miðnætti var ég kominn upp á svið á Neskaupstað með hljómsveitinni," segir Böðvar Rafn Reynisson, söngvari hljómsveitarinnar Dalton, sem varð fyrir hrikalegra árás aðfaranótt laugardagsins á Höfn í Hornafirði.

Jericho eytt, fyrir fullt og allt

Heimsendasjónvarpsþátturinn Jericho hefur verið tekinn af dagskrá í Bandaríkjunum, fyrir fullt og allt. Fyrsta sería þáttanna var einnig tekin af dagskrá í fyrra en fyrir mikil mótmæli hörðustu aðdáanda þáttanna ákvað CBS sjónvarpsstöðin að gera aðra tilraun.

Blóðsugur halda Demi Moore ungri

Demi Moore kann nokkur ráð til að viðhalda æskuljómanum, og það án dropa af vélarsmurningu. Í viðtali hjá David Letterman á dögunum viðurkenndi hin 46 ára gamla leikkona að hún væri afar hrifin af óhefðbundnum yngingarmeðferðum, og hefði reyndar nýlega farið í eina slíka í Sviss.

BMV vinsæll í Kosovo og Balí

Nýjasta lag tónlistar- og útvarpsmannsins Brynjars Más Valdimarssonar, Endlessly, er að gera það gott bæði á Balí og í Kosovo. BMV eins og hann kallar sig flýgur upp vinsældalista útvarpsstöðva á þessum svæðum og eru menn greinilega yfir sig hrifnir af stráknum.

Ekki þrautalaust að birta fyrstu myndirnar af tvíburum J-Lo

Heimurinn fær loksins að berja tvíbura Jennifer Lopez og Marc Anthony augum í nýjasta hefti People tímaritsins. Þó nokkur slúðurblöð slógust um að fá að birta fyrstu myndirnar af börnunum, og hreppti People hnossið fyrir rest.

Sjá næstu 50 fréttir