Lífið

Heldur útgáfutónleika og stundar lyftingar

Björn Kristjjánsson, Borko
Björn Kristjjánsson, Borko

Tónlistarmaðurinn Borko heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói á fimmtudaginn til að fylgja eftir sinni fyrstu breiðskífu, Celebrating Life. Platan kom út í byrjun mars og hefur fengið lofsamlegar umsagnir hjá gagnrýnendum.

Hún var sögð „fyrsta íslenska snilldarplatan á árinu 2008" í Fréttablaðinu og „í heild sinni hreinasta afbragð" í Morgunblaðinu. „Já, ég er ánægður með þessar viðtökur," segir Björn Kristjánsson, öðru nafni Borko. „Ég var að koma úr tónleikaferð um Evrópu og fann þar að efnið á Celebrating Life fékk góðan meðbyr.

Fjölbreytni og húmor einkenna Celebrating Life ásamt sterkum melódíum í bland við tilraunakenndari hluti. „Það eru engin ákveðin lögmál í þessu, ég reyni þó yfirleitt að setja það saman sem mér þykir hljóma vel saman. Blásturshljóðfæri og elektróník fara til dæmis vel saman. Lögin eiga reyndar eftir að hljóma á allt annan hátt á tónleikunum heldur en á plötunni."

Borko til halds og traust verður hljómsveit sem er skipuð þeim: Núma Þorkatli Thomassyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni, Róberti Sturlu Reynissyni, Örvari Þóreyjarsyni Smárasyni, Leifi Jónssyni og Ara Braga Kárasyni.

„Þeir spiluðu flestir með mér á tónleikaferðinni og stóðu sig alveg eins og hetjur. Hljómsveitin er orðin ólgandi þétt og prógrammið vel slípað. Við erum í fínu formi eftir túrinn auk þess sem við stundum lyftingar reglulega og erum á leiðinni að gefa út Æfingabók strákanna í Borko. Ég efast ekki um að þetta á eftir að verða þrusu skemmtilegt, karlmannlegt og stútfullt af kynþokkafullum gítarmúvum".

Húsið opnar klukkan 20:30 en tónleikarnir hefjast kl. 21 og hljómsveitin Seabear hitar upp. Miðaverð er 1200 krónur og forsala fer fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.