Böddi í Dalton ber sig vel eftir árás Andri Ólafsson skrifar 26. mars 2008 11:07 Böðvar Rafn Reynisson "
Ég var útskrifaður af sjúkrahúsinu klukkan 12 á laugardeginum. Á miðnætti var ég kominn upp á svið á Neskaupstað með hljómsveitinni," segir Böðvar Rafn Reynisson, söngvari hljómsveitarinnar Dalton, sem varð fyrir hrikalegra árás aðfaranótt laugardagsins á Höfn í Hornafirði. Eins og Vísir greindi frá annan í páskum var ráðist á Böðvar aftan frá með glasi eða flösku þannig að hann hlaut djúpan skurð hægra meginn á hálsi. Hann missti um tvo lítra af blóði en 50 spor þurfti til að loka sárinu. Böðvar, eða Böddi Dalton eins og hann er oftast kallaður, ritaði nafn sitt hins vegar kyrfilega í sveitaballasöguna nú um helgina. Hann tók sig til og flaug austur á firði aðeins fáeinum tímum eftir að hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu og minni en sólarhring eftir að hann varð fyrir lífhættulegri árás og steig á stokk með hljómsveitinni sinni á dansleik á Neskaupsstað. "Ég varð reyndar að fara mér mjög hægt til að byrja með," segir Böðvar hógvær þegar hann er spurður hvernig hann hafi eiginlega farið að þessu. Hann segist hafa fengið verkjalyf frá læknum og látið bjórinn eiga sig. "Ég er náttúrulega ekki alveg bandbrjálaður," segir hann. Böðvar og félagar hans í Dalton eru einir af fáum sem enn gera sitt til þess að viðhalda íslensku sveitaballahefðinni af einhverju ráði. Strákarnir ferðast um landið þvert og endilangt í eigin langferðabíl af gamla skólanum og halda böll í plássum sem margir telja of mikið úr alfaraleið til þess að það sé þess virði að koma þar við. Böðvar segist hafa gaman af þessari rútínu og segir til dæmis frá því að apríl mánuður sé svo gott sem fullbókaður. "En varðandi það sem gerðist á Höfn, þá vil ég koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem komu mér til aðstoðar þegar þetta var hvað mest krítískt. Þó að það sé einn svartur sauður á Höfn í Hornafirði mun hann ekki koma í veg fyrir að ég fari þangað aftur og taki einn snúning," segir Böðvar Rafn léttur í bragði. Hann hefur lagt inn formlega kæru til lögreglu vegna árársarinnar á Höfn en málið er enn í rannsókn.
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira