Lífið

Eldur kom upp hjá óheppnustu hljómsveit Íslands

Andri Ólafsson skrifar
Slökkviliðið var kallað í Versló til að slökkva eldinn í Gyltunni.
Mynd: Arnar Freyr Magnússon
Slökkviliðið var kallað í Versló til að slökkva eldinn í Gyltunni. Mynd: Arnar Freyr Magnússon

Eldur braust út í hljómsveitarrútu hljómsveitarinnar Dalton í morgun. Þegar eldurinn kom upp stóð rútan fyrir utan Verslunarskóla Íslands en þar inni var hljómsveitin að skemmta í morgun. Slökkviliðið kom á vettvang og náði stjórn á eldinum og forðaði því að mikill skaði yrði að völdum hans.

„Já, það kviknaði í Gyltunni í morgun,“ segir Böðvar Rafn Reynisson söngvari Dalton og útskýrir að Gyltan sé nafn rútunar. Hann segir að eldurinn hafi komið upp í miðstöðinni og að því verði kippt í liðinn hið fyrsta. Gyltan verði jafnvel klár fyrir böll á Selfossi og í Keflavík um næstu helgi.

Það virðist ekki eiga af þeim Dalton-bræðrum að ganga því Böðvar söngvari er rétt nýbúinn að jafna sig á stórhættulegri árás sem hann varð fyrir um helgina. Eins og Vísir hefur greint frá var Böðvar sleginn með glerglasi eða flösku með þeim afleiðingum að hann missti tvo lítra af blóði og þurfti fimmtíu spor. Árásin var gerð á Höfn í Hornafirði og farið var með Böðvar í bæinn með sjúkraflugi.

Böðvar ritaði hins vegar nafn sitt í rokksögubækurnar þegar hann útskrifaði sig af spítalanum daginn eftir og flaug austur á Neskaupsstað til þess að taka tónleika með hljómsveitinni. Sannarlega mikið rokk í því.

Og ekki er minna rokk í því þegar það kviknar í hljómsveitarrútunni í miðju sjói. Böðvar söngvari jánkar því. Hann tekur það hins vegar fram að þrátt fyrir þessi áföll séu Dalton alls ekki af baki dottnir því þeir ætla að troða upp á Hressó ekki seinna en í kvöld.

En verður manni óhætt að mæta. Svona miðað við það sem gengið hefur á undanfarið?

"Jájá, bara taka með sér plastglös," segir Böðvar Rafn Reynisson rokkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.