Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spáð í spilin - Sunderland - Reading Hér er á ferðinni botnslagur af bestu gerð þar sem lið með nákvæmlega sama árangur mætast, en bæði hafa unniði einn, gert eitt jafntefli og tapað þremur. Sunderland hefur skorað einu marki meira en Reading. Sunderland hefur tapað fjórum síðustu leikjum sínum í deild og bikar og hefur ekki skorað mark í þessum fjórum leikjum. 15.9.2007 06:45
Spáð í spilin - Tottenham - Arsenal Í dag há þessi lið 141. grannaslag sinn í deildinni og þann 31. síðan úrvalsdeildin var stofnuð. Tottenham leitast við að ná sínum 50. sigri gegn grönnum sínum í 156. leik liðanna. Arsenal hefur unnið þrjá af fjórum leikjum sínum í deildinni til þessa á meðan Tottenham hefur aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum. 15.9.2007 05:15
Spáð í spilin - Portsmouth - Liverpool Liverpool er hér að sigla inn í helgarumferð á toppi úrvalsdeildarinnar í fyrsta sinn í fimm ár og þar með í fyrsta sinn undir stjórn Rafa Benitez. Liðið getur unnið þrjá deildarleiki í röð með sigri en það hefur ekki gerst í 17 leiki hjá liðinu. 15.9.2007 04:00
Spáð í spilin - Everton - Man Utd Sigurvegarinn í þessum grannaslag í norð-vestrinu mun fara á toppinn í úrvalsdeildinni í að minnsta kosti 45 mínútur. Everton þarf aðeins stig til að komast á toppinn og ef liðið gerir jafntefli verður það 1000. jafntefli Everton-liðsins í efstu deild. Liðið hefur ekki tapað á heimavelli í deildinni til þessa en Manchester United hefur hinsvegar ekki unnið á útivelli enn sem komið er. 15.9.2007 00:37
Markalaust á Stamford Bridge í hálfleik Chelsea hefur verið mun sterkari aðilinn það sem af er leiks gegn Blackburn í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, en þó hefur ekkert mark komið í leikinn á fyrstu 45 mínútum leiksins. Það var Michael Essien sem átti líklega besta færi Chelsea til þessa en Brad Friedel varði langskot hans meistaralega. 15.9.2007 17:05
Tottenham yfir í hálfleik gegn Arsenal Tottenham hefur yfir 1-0 gegn grönnum sínum í Arsenal þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leik liðsins gegn erkifjendunum í Arsenal. Það var velski landsliðsmaðurinn ungi Gareth Bale sem skoraði mark Tottenham beint úr aukaspyrnu. Arsenal hefur fengið nokkur góð færi í leiknum en gestirnir hafa ekki haft heppnina með sér til þessa. 15.9.2007 13:21
Jafnt á Goodison Park í hálfleik Staðan í leik Everton og Manchester United er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks á Goodison Park. Leikurinn hefur ekki verið sérlega skemmtilegur en United-liðið missti varnarmanninn Mikael Silvestre af velli meiddan á hné. Það var Nani sem tók stöðu hans í liðinu. 15.9.2007 11:51
Spenna á Spáni Litháen og Grikkland komust í kvöld í undanúrslitin á Evrópumótinu í körfubolta sem stendur yfir á Spáni. Mikil spenna var í leikjum kvöldsins en með þeim lauk átta liða úrslitum keppninnar. 14.9.2007 22:30
Útisigrar hjá Haukum og Stjörnunni Keppni í N1-deildinni í handbolta karla þetta tímabilið hófst í kvöld með tveimur leikjum. Íslandsmeistarar Vals biðu ósigur á heimavelli sínum gegn Haukum úr Hafnarfirði. Þá vann Stjarnan nauman sigur á HK. 14.9.2007 21:50
Alves var næstum farinn til Chelsea Umboðsmaður bakvarðarins Daniel Alves segir að leikmaðurinn hafi næstum verið genginn í raðir Chelsea í síðasta mánuði. Alves leikur með Sevilla á Spáni en félagið var nánast búið að komast að samkomulagi við enska stórliðið um sölu á Alves. 14.9.2007 20:30
Tekur Costacurta við QPR? Ef Flavio Briatore og Bernie Ecclestone eignast meirihlutann í Queens Park Rangers gæti farið svo að Alessandro Costacurta taki við sem knattspyrnustjóri liðsins. Hann er nú í þjálfarateymi Carlo Ancelotti hjá AC Milan. 14.9.2007 20:00
Tindastóll upp í 2. deild Tindastóll frá Sauðárkróki leikur í 2. deild að ári. Liðið tapaði á útivelli fyrir BÍ/Bolungarvík í dag í seinni úrslitaleik um að komast upp úr 3. deild. Leikurinn fór 2-1 en þar sem Tindastóll vann heimaleikinn 3-0 kemst liðið upp. 14.9.2007 19:30
Gillespie biðst afsökunar Keith Gillespie hefur beðist opinberlega afsökunar á að hafa lent í slagsmálum við liðsfélaga sinn hér á Íslandi. Atvikið gerðist eftir landsleik Íslands og Norður-Írlands á miðvikudaginn þegar leikmenn norður-írska liðsins voru á leið heim. 14.9.2007 19:00
Cahill: Everton frekar en Ástralía Tim Cahill segist taka Everton framyfir ástralska landsliðið. Honum líkar lífið vel á Goodison Park og segist aldrei hafa hugsað út í það að yfirgefa liðið. Hann er þessa stundina að vinna í því að jafna sig á meiðslum sem hann hlaut á undirbúningstímabilinu. 14.9.2007 18:30
Heskey: Ég á heima í byrjunarliðinu Emile Heskey segir að hann eigi skilið að halda sæti sínu í byrjunarliði enska landsliðsins eftir frammistöðu sína í síðustu tveimur leikjum í undankeppni EM. 14.9.2007 18:00
City vann tvöfalt fyrir ágúst Micah Richards, hinn nautsterki varnarmaður Manchester City, hefur fengið verðlaun fyrir að vera leikmaður ágústmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Sven Göran-Eriksson var valinn knattspyrnustjóri mánaðarins. 14.9.2007 17:25
Svona er að semja við djöfulinn Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, tekur undir kvartanir kollega síns Rafa Benitez hjá Liverpool um niðurröðun leikja í ensku úrvalsdeildinni. Hann segir liðunum sem ná góðum árangri refsað kerfisbundið og gagnrýnir stjórnarhætti hjá ensku úrvalsdeildinni. 14.9.2007 16:34
Eiður Smári: Hef enn ekki sýnt hvað í mér býr Eiður Smári Guðjohnsen segir það aldrei hafa komið til greina fyrir sig að fara frá Barcelona fyrir lokun félagaskiptagluggans og segist ætla að gera allt sem í hans valdi stendur til að sanna sig hjá félaginu. 14.9.2007 15:59
Laug báðar ömmur sínar í gröfina Miðjumaðurinn Stephen Ireland hjá Manchester City og írska landsliðinu hefur beðist auðmjúklega afsökunar á að hafa dregið þjóð sína og knattspyrnufélag á asnaeyrunum svo dögum skipti í vikunni. Ireland laug því að báðar ömmur hans væru dauðar til að sleppa frá Slóvakíu þar sem hann var með landsliðinu. 14.9.2007 15:26
Ásgeirs minnst í næstu umferð Einnar mínútu þögn verður fyrir alla leiki helgarinnar á Íslandsmótinu í knattspyrnu til minningar um Ásgeir Elíasson, fyrrum landsliðsþjálfara, sem lést á sunnudaginn. Mínútu þögn til minningar um Ásgeir var einnig á leikjunum í Landsbankadeild kvenna í gærkvöldi - líkt og á landsleik Íslendinga og Norður-Íra á dögunum. 14.9.2007 15:15
Mourinho: Drogba og Lampard verða ekki með Jose Mourinho, stjóri Chelsea, staðfesti í samtali við Sky-fréttastofuna í dag að þeir Frank Lampard og Didier Drogba yrðu ekki í leikmannahópi Chelsea í leiknum gegn Blackburn á morgun. "Þeir verða vonandi orðnir klárir í næstu viku," sagði stjórinn. 14.9.2007 14:57
Ballack verður ekki seldur í janúar Peter Kenyon, framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins Chelsea, segir útilokað að miðjumaðurinn Michael Ballack verði seldur frá félaginu í janúar. Mikið hefur verið slúðrað um framtíð Þjóðverjans í herbúðum Chelsea að undanförnu, en Kenyon hefur nú bundið enda á þann orðróm. 14.9.2007 14:50
Nelson verður áfram með Warriors Hinn þrautreyndi þjálfari Don Nelson hefur nú loksins náð samkomulagi við Golden State Warriors um að stýra því að minnsta kosti eitt ár til viðbótar. Fjölmiðlar í Kaliforníu greindu frá því í dag að Nelson fái umtalsverða launahækkun á síðustu tveimur árunum af gamla samningnum. 14.9.2007 14:43
Raikkönen leggur línurnar á Spa Kimi Raikkönen náði besta tíma allra á fyrstu æfingunum fyrir Spa kappaksturinn í Formúlu 1 í morgun. Ferrari-menn eru því vel stemmdir fyrir keppnina í skugga áfallsins sem McLaren liðið varð fyrir í gær, en þeir Lewis Hamilton og Fernando Alonso héldu þó haus og náðu öðrum og þriðja besta tímanum í Belgíu í morgun. 14.9.2007 13:28
Reina: Liverpool verður meistari Spænski markvörðurinn Jose Reina hjá Liverpool segir 18 ára bið stuðningsmanna Liverpool brátt á enda og segir liðið í ár nógu sterkt til að vinna enska meistaratitilinn. Liverpool hefur byrjað deildina mjög vel í haust og útlit fyrir að hópur liðsins sé sá sterkasti í háa herrans tíð. 14.9.2007 12:37
Harris framlengir við Dallas Leikstjórnandinn Devin Harris hjá Dallas Mavericks hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagð og fær í laun um 42 dollara á samningstímanum eða um 2,7 milljarða króna. Harris er 24 ára gamall og hefur með þessu verið ráðinn sem leikstjórnandi framtíðarinnar hjá Dallas. Hann skoraði rúm 10 stig að meðaltali í leik með Dallas á síðustu leiktíð. 14.9.2007 12:30
Drogba enn tæpur vegna hnémeiðsla Fílstrendingurinn Didier Drogba hjá Chelsea er enn nokkuð tæpur í leik liðsins gegn Blackburn á morgun vegna hnémeiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Aston Villa fyrir hálfum mánuði. Hann hefur enn ekki náð sér að fullu þrátt fyrir að hafa fengið frí frá landsliðinu í vikunni og er enn í endurhæfingu. 14.9.2007 12:26
Rooney kominn í hóp United á ný Framherjinn Wayne Rooney er kominn í leikmannahóp Manchester United á ný eftir fótbrot sem hann hlaut í opnunarleiknum í ensku úrvalsdeildinni. Enn hefur ekki verið ákveðið hvaða hlutverk hinn 21 árs gamli markaskorari fær í leiknum, en trúlega verður hann á varamannabekknum til að byrja með. Þá kemur Cristiano Ronaldo aftur inn í hóp liðsins eftir leikbann. 14.9.2007 12:21
Hughes: Fínt að mæta Chelsea núna Mark Hughes, stjóri Blackburn í ensku úrvalsdeildinni, segir fínt að mæta Chelsea á þessum tímapunkti í deildinni. Liðin eigast við á Stamford Bridge á morgun þar sem Chelsea hefur ekki tapað í 65 heimaleikjum í röð, sem er met. 14.9.2007 10:02
Houllier ráðinn tæknistjóri Frakka Fyrrum Liverpool-stjórinn Gerard Houllier hefur verið ráðinn tæknistjóri franska landsliðsins í knattspyrnu. Þetta segja franskir fjölmiðlar í dag. Houllier hætti hjá meisturum Lyon í lok síðasta tímabils eftir að hafa leitt liðið til sjötta meistaratitilsins í röð. Hann var áður tæknistjóri hjá landsliðinu á árunum 1989 til 1998. 14.9.2007 09:29
Curbishley tekur undir með Benitez Alan Curbishley, stjóri West Ham í ensku úrvalsdeildinni, tekur undir með Rafa Benitez hjá Liverpool og skoðanir hans á álagi á leikmenn í kring um landsleikjahlé. Hann segist alveg geta hugsað sér að fá tíma fram á sunnudag til að undirbúa lið sitt fyrir deildarleiki eftir að landsliðin spila á miðvikudagskvöldum. 14.9.2007 09:22
Almunia ver mark Arsenal áfram Manuel Almunia mun verja mark Arsenal á laugardaginn þegar lðið heimsækir erkifjendur sína í Tottenham á White Hart Lane. Arsene Wenger knattspyrnustjóri hefur staðfest þetta og segir að Jens Lehmann sé farinn að finna aftur til í olnboganum sem hefur haldið honum út úr liðinu í síðustu fjórum leikjum. 14.9.2007 09:18
Coppell: Of snemmt að örvænta Steve Coppell, stjóri Reading í ensku úrvalsdeildinni, segir sína menn ekki vera farna að örvænta þó liðið hafi aðeins fengið fjögur stig út úr fyrstu fimm leikjunum í deildinni. Reading er sem stendur á fallsvæðinu, en hefur reyndar átt mjög erfiða leiki í byrjun tímabils. 14.9.2007 09:09
Greg Oden úr leik hjá Portland NBA lið Portland Trailblazers varð fyrir gríðarlegu áfalli í dag þegar í ljós kom að nýliði liðsins Greg Oden þarf að fara í stóran hnéuppskurð og spilar því líklega ekkert með liðinu í vetur. Oden var valinn fyrstur í nýliðavalinu í sumar og bundu forráðamenn Portland miklar vonir við piltinn. 13.9.2007 22:41
Margrét Lára: Mættum óhræddar Margrét Lára Viðarsdóttir setti í kvöld nýtt markamet í efstu deild kvenna. Þegar ein umferð er eftir hefur hún skorað 35 mörk. Fyrra metið á hún sjálf og er frá því í fyrra þegar hún skoraði 33 mörk. Hún skoraði tvö mörk í 4-2 sigri Vals á KR í Vesturbæ. 13.9.2007 22:30
Rússland og Spánn í undanúrslit Fyrri tveir leikirnir í átta liða úrslitum Evrópumótsins í körfubolta fóru fram í kvöld. Rússar eru komnir í undanúrslit á stórmóti í fyrsta sinn í tíu ár eftir sigur á Frakklandi. Þá komust heimamenn í Spáni áfram í undanúrslit með sigri á Þýskalandi. 13.9.2007 22:00
Fram vann Hauka Handboltatímabilið hér á landi fór af stað af alvöru í kvöld. Þá fóru fram þrír fyrstu leikirnir í N1-deild kvenna. Athyglisverðustu úrslit kvöldsins urðu klárlega í Safamýri þar sem Fram vann Hauka 28-26. 13.9.2007 21:39
Mancini launahæstur þjálfara á Ítalíu Roberto Mancini hjá Inter er sá þjálfari í ítölsku deildinni sem fær hæstu launin. Er hann til að mynda með þrefalt hærri laun en Claudio Ranieri, þjálfari Juventus. Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, fær næstbest borgað af þjálfurum á Ítalíu. 13.9.2007 21:30
Lehmann eða Almunia? Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, veit ekki hvort Jens Lehmann eða Manuel Almunia sé aðalmarkvörður liðsins. Lehmann gerði tvö dýrkeypt mistök í upphafi leiktíðarinnar og Almunia fékk tækifæri í markinu. 13.9.2007 21:00
Þunnskipuð vörn Inter Roberto Mancini, þjálfari Inter, er í vandræðum fyrir leik liðsins gegn tyrknesku meisturunum í Fenerbache á miðvikudag. Um er að ræða fyrsta leik Inter í Meistaradeildinni en varnarlína liðsins er ansi þunnskipuð fyrir leikinn. 13.9.2007 20:30
Ákveðinn í að halda Jaaskelainen Sammy Lee, knattspyrnustjóri Bolton, segir að framtíð finnska markvarðarins Jussi Jaaskelainen sé hjá félaginu. Leikmaðurinn hefur verið orðaður við nokkur lið á Englandi en hann hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við Bolton. 13.9.2007 20:00
Kvennalið ÍR fallið Næstsíðasta umferð Landsbankadeildar kvenna fór fram í kvöld. Ljóst er að það verður ÍR sem fellur aftur niður í 1. deild eftir árs veru í efstu deild. Breiðholtsstelpur léku gegn Þór/KA á Akureyri og vann heimaliðið öruggan 5-1 sigur. 13.9.2007 19:30
Titillinn á leið á Hlíðarenda Valsstúlkur eiga Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki vísan eftir að hafa unnið KR 4-2 á útivelli í dag. Leikurinn var úrslitaleikur um titilinn og var hann fjörugur og skemmtilegur. Ein umferð er eftir af Landsbankadeild kvenna 2007. 13.9.2007 19:00
Heskey svaraði gagnrýnendum Margir lýstu yfir undrun sinni á þeirri ákvörðun Steve McClaren, landsliðsþjálfara Englands, að notast við sóknarmanninn Emile Heskey. Sjálfur hefur Heskey svarað gagnrýnendum á réttan hátt eða með frammistöðu sinni á vellinum. 13.9.2007 18:25
Laus úr viðjum spilafíknar Matthew Etherington, vængmaður West Ham, segist vera í skýjunum með að spilafíkn sín tilheyri nú fortíðinni. Etherington fór í meðferð vegna spilafíknar en henni er nú lokið og leikmaðurinn er farinn að finna sig á nýjan leik í búningi West Ham. 13.9.2007 18:10