Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lampard meiddur Fréttir herma að Frank Lampard, leikmaður Englands sé meiddur og verði líklega ekki með liði sínum þegar það mætir Portúgal á morgun í 8-liða úrslitum. Sagt er frá því að hann hafi snúið sér ökklann á æfingu liðsins við Baden-Baden. 30.6.2006 11:55
Við brotnum ekki gegn Þjóðverjum Hernan Crespo, leikmaður Argentínu er á því að sagan endurtaki sig eins og á HM árið 1990 þegar Maradona og félagar gerðu sér lítið fyrir og slógu Ítali út úr HM í 4ja liða úrslitum. En þá var HM haldin á Ítalíu og líkt og nú spilar Argentína við gestgjafana. 30.6.2006 11:48
Shevchenko hlakkar til að mæta Ítalíu Andriy Shevchenko, fyrirliði Úkraínu hlakkar mikið til að mæta Ítölum en leikmaðurinn spilaði sjö ár með Milan en eins og kunnugt þá hefur hann ákveðið að færa sig um set og mun hann spila með Chelsea næsta vetur. Margir félagar Sheva (eins og hann er kallaður) hjá Milan eru í Ítalska hópnum. 30.6.2006 11:39
Hvað nú, mein herr? "The world cup magic is back'' sagði Blatter blessaður í viðtali í gær, foringi FIFA er ánægður með mótið fram til þessa, og réttilega. Ég er ennþá þeirrar skoðunar að úrslitaleikurinn á HM sé í dag, klukkan þrjú, Argentína og Þýskaland eru þau tvö lið sem hafa sýnt jafnbestu tilþrifin til þessa, sagan segir reyndar að það sé engin trygging fyrir titlinum sjálfum. 30.6.2006 11:25
Ronaldo ekki með gegn Englendingum? Cristiano Ronaldo, leikmaður Portúgal sleppti æfingu liðsins í morgun en leikmaðurinn er búinn að vera að jafna sig af meiðslum sem hann varð fyrir í leiknum við Hollendinga í 16-liða úrslitum. 30.6.2006 11:04
8-liða úrslitin byrja í dag 8-liða úrslit HM byrjar í dag og eru tveir leikir í dag og tveir á morgun. Heimamenn Þjóðverjar taka á móti Argentínu í Berlín. Seinni leikur dagsins er leikur Ítala og Úkraínu. 30.6.2006 10:47
Figo telur að Ronaldo sé lykilinn að sigrinum Luis Figo, fyrirliði Portúgala segir að Cristiano Ronaldo sé lykilinn að því að liðið leggji Englendinga að velli í 8-liða úrslitum á laugardaginn á HM. 30.6.2006 01:38
Perreira vill meira frá Ronaldinho Landsliðsþjálfari Brasilíu, Carlos Alberto Parreira segir að hann vilji sjá meira af Ronaldinho í leikjum liðsins á HM. Ronaldinho hefur hingað til ekkert verið mjög áberandi í leikjum Brasilíu á HM og verið langt frá því sem við þekkjum til hans eins og í vetur með Barcelona. 29.6.2006 15:44
Rooney var alltaf viss um að spila á HM Wayne Rooney hefur viðurkennt að hann hafði aldrei í hyggju að vera heima á Englandi í sumar og að hann var viss um að hann myndi vera með á HM. Veröld Rooney var við það að hrynja þegar að hann braut bein í ökkla undir lok tímabilsins á Englandi og allt útlit var fyrir að hann myndi missa af HM. 29.6.2006 15:37
Portúgalar æfir út í bresku pressuna Knattspyrnusamband Portúgal hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að breskt götublað hafi birt falsað viðtal við framherja portúgalska landsliðsins Pauleta þar sem hann á að hafa sagt að markvörður Englendinga væri veiki hlekkurinn í enska liðinu. 29.6.2006 12:49
Illa slasaður eftir hátt fall Gianluca Pessotto, leikmaður Juventus til 11 ára og núverandi yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Tórínó eftir að hafa dottið út um glugga og fallið 15 metra til jarðar. 28.6.2006 13:42
Metin falla hjá Brössunum Hinn sókndjarfi bakvörður Brasilíu, Cafu, sem einnig er fyrirliði landsliðsins, setti 3 met í gær þegar Brasilíumennunnu unnu Ghanamenn 3-0 á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. 28.6.2006 11:00
Zidane varð 100. leikmaðurinn til að skora á HM Frakkinn Zinedine Zidane varð í gærkvöld hundraðasti leikmaðurinn til að skora mark fyrir lið sitt á HM í Þýskalandi. 132 mörk hafa verið skoruð í 56 leikjum til þessa eða 2.36 að meðaltali í leik. 28.6.2006 10:52
Er þetta ekki bara fullkomnað 16 liða úrslitin búin og liðin átta fá tveggja daga hvíld til föstudags, þá fjórir leikir, svo tveir, og svo úrslit, keppninnar vegna þá verða vonandi Þjóðverjar heimamenn í úrslitum, en margir aðrir kostir álitlegir. 28.6.2006 00:35
Torres ákveðinn í að slá Zidane út Fernando Torres framherji spænska landsliðsins gerir fastlega ráð fyrir því að hafa betur í viðureigninni við Zinedine Zidane þegar frakkar mæta spánverjum í 16 liða úrslitum á HM í dag. 27.6.2006 14:57
Carrick vill spila áfram Michael Carrick vill ólmur halda stöðu sinni í enska landsliðinu eftir að hann fékk tækifæri í leiknum gegn Ekvador í 16 liða úrslitunum á HM. Carrick sem að spilaði stöðu djúps miðjumanns gegn Ekvador var lítið í boltanum í fyrri hálfleiknum í þeim leik, en hann var mun meira inni í spilinu í seinni hálfleik. 27.6.2006 14:50
Cafu nálgast met Cafu sem að nýtur einskis jafn mikið og að slá met stefnir á að slá met í dag, þegar Brasilía mætir Ghana í 16 liða úrslitum. Cafu sem að leikur sinn 19 leik í lokakeppni HM ef að hann verður í liðinu gegn Ghana, eins og flestir gera ráð fyrir, slær þar með metið fyrir flesta leiki spilaða í lokakeppni HM. 27.6.2006 14:31
Færri mörk en fleiri spjöld Sérfræðingar eru alltaf að velta sér upp úr tölfræðinni og nú hefur verið tekin saman tölfræðin á HM í Þýskalandi til þessa. Það hafa færri mörk verið skoruð á þessu heimsmeistaramóti en oftast áður. Gulu og rauðu spjöldin hafa hins vegar farið oftar á loft en áður. 27.6.2006 14:25
Gary Neville leikfær gegn Portúgal Hægri bakvörðurinn og enski landsliðsmaðurinn, Gary Neville, hefur verið frá undanfarnar tvær vikur vegna meiðsla í kálfa. Steve McLaren, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins, sagði við fréttamenn í dag að Neville væri á góðum batavegi og myndi æfa með liðinu á morgun. 27.6.2006 13:06
Nýr Hollendingur tekur við Suður-Kóreu Landslið Suður-Kóreu hefur ráðið fyrrum aðstoðarþjálfara sinn Pim Verbeek, sem næsta landsliðsþjálfara til næstu 2 ára. 27.6.2006 13:02
Fagurfræði eða eyðileggingarfótbolti Síðustu leikirnir í sextán liða úrslitum í dag, allir vilja Brasilíumenn áfram, og svo skiptist heimurinn í tvo hluta þegar kemur að Frökkum og Spánverjum, nú skiptir fagurfræðin ekki lengur máli, heldur árangur. 27.6.2006 12:56
Kæru dómarar, ekki meir Mér leiðist að væla í dómaranum, en ég hreinlega verð, eftir að hafa horft uppá 16 gul spjöld í gær, fjögur rauð í leik Portúgala og Hollendinga, fer þetta að vera gott, ekki það að sum þeirra hafi verið verðskulduð, sannarlega, en svona mörg er bara vitleysa. 26.6.2006 19:05
Mark Beckhams 124 milljón punda virði Markið sem að David Beckham skoraði í leiknum á móti Ekvador í 16 liða úrslitunum á HM er talið vera gífurlega mikilvægt fyrir breskan efnahag. Sérfræðingar telja að markið muni bæta efnahaginn um 124 milljónir punda á næstu vikum. 26.6.2006 14:53
Van Basten æfur út í dómarana Þjálfari Hollenska landsliðsins, Marco van Basten, var mjög gagnrýnin á rússneska dómarann Valentin Ivanov eftir að lið hans datt út úr keppninni eftir tapleik gegn Portúgal í gær. 26.6.2006 13:55
Ballack missir af æfingu þýska liðsins Fyrirliði þýska landsliðsins Michael Ballack meiddist lítillega í sigurleiknum gegn Svíum og gat því ekki æft með landsliðinu í dag. Aðstoðarþjálfari Þýska landsliðsins, Oliver Bierhoff, sagði að þetta væru ekki alvarleg meiðsli og líklega yrði hann með í leiknum gegn Argentínu í 8-liða úrslitum á föstudaginn. 26.6.2006 13:47
Tíunda viðureign liðanna Portúgal og Holland hafa mæst níu sinnum áður. Portúgalar hafa unnið fimm sinnum, Hollendingar aðeins einu sini og þrisvar sinnum hafa liðin skilið jöfn. Síðast þegar liðin mættust, í undanúrslitum Evróðumótsins 2004, sigruðu Portúgalar 2-1. Tíu af ellefu manna byrjunarliðinu þá eru í hópi Portúgala nú. Leikur Portúgala og Hollendinga hefst klukkan 19 og verður leikurinn í beinni á Sýn. 25.6.2006 18:45
Bara aleinn Beckham ,,It was ugly at times'' sagið David Beckham um leik Englendinga og Ekvadora í dag, hann gerði það eina rétta, skoraði frábært mark úr aukaspyrnu og Englendingar eru komnir áfram, sannarlega bjargvætturinn rétta eina ferðina til. 25.6.2006 17:28
Klinsmann og co Hvílík sýning! Þjóðverjar áttu 26 skot á mark Svía í leiknum í 16 liða úrslitum, segir þetta ekki alla söguna um hverskonar lið þetta er? Þetta var stórkostlegur leikur framan af, 2-0 eftir tólf mínútur, og ef Isaksson hefði ekki varið einsog skepna, þá er trúlegt að leikurinn hefði verið 14-2 niðurlæging Svía. 24.6.2006 19:33
Argentína, 12 stig Í dag breytir HM um stefnu, sextán liða úrslit, búið að skilja lélegu liðin frá, sextán bestu eftir. Í Frankfurt eru menn harðir á því að Þjóðverjarnir séu með gott lið, samt er enginn sem ég hef talað við ánægður með leik sinna manna, sem er furðulegt, og Klinsmann fær trúlega ekki reista styttu af sér jafnvel þótt þeir taki dolluna. 23.6.2006 14:02
Beckham á bekkinn hjá Englandi Sven-Goran Eriksson landsliðseinvaldur Englendinga sagði við breska fjölmiðla að hann sé reiðubúinn að setja fyrirliða sinn David Beckham á bekkinn ef hann telur hann ekki vera að standa sig. 23.6.2006 12:50
Enn óvíst með þátttöku Rio Ferdinand Það er enn óvíst hvort varnarmaður Man.Utd. Rio Ferdinand verði orðinn leikfær fyrir sunnudaginn þegar England mætir Ekvador í 16-liða úrslitum HM í Stuttgart. Ferdinand meiddist í nára í jafntefli Englendinga við Svía í síðasta leiknum í riðlakeppninni. 23.6.2006 12:44
De Rossi fær 4 leikja bann á HM Aganefnd Alþjóða knattspyrnusambandsins dæmdi í morgun Ítalann Daniele De Rossi í fjögurra leikja keppnisbann fyrir að slá Bandaríkjamanninn Brian McBride í leik Ítalíu og Bandaríkjanna á HM á dögunum. 23.6.2006 12:32
HM leikir dagsins Riðlakeppninni á HM í Þýskalandi líkur í dag. Þetta eru leikir í G og H riðli, Úkraína og Túnis mætast kl. 14:00 sem og Sádí Arabía og Spánn. Frakkland mætir Tógó kl. 19:00 og á sama tíma leika Sviss og Suður Kórea. Mikið mæðir á Frökkum sem þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að komast í 16 liða úrslit. 23.6.2006 10:19
Fjögur stórlið fyrir rétt Í stuttri fréttatilkynningu frá Ítalíu í dag kemur fram að risafélögin Juventus, AC Milan, Fiorentina og Lazio hafi öll verið boðuð til að mæta fyrir rétt vegna þáttar síns í stóra knattspyrnuhneykslinu sem riðið hefur yfir ítalska knattspyrnu á síðustu vikum. 22.6.2006 17:49
Cisse er enn á óskalista Marseille Djibril Cisse leikmaður Liverpool og franska landsliðsins er enn á óskalista Pape Diouf forseta Marseille og er leikmaðurinn enn vongóður og ákveðinn í að ganga til liðs við franska félagið. 22.6.2006 14:35
Ronaldo ætlar að sýna sitt rétta andlit gegn Japan Ronaldo sem hefur verið mikið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í leikjunum gegn Króötum og Áströlum ætlar að sína sitt rétta andlit gegn Japan í kvöld og stefnir á að kafsigla þá. 22.6.2006 14:26
Króatar þurfa sigur gegn Áströlum Ástralía mætir Króötum í kvöld í leik sem ætti að skera úr um hvort liðið fylgir Brasilíumönnum upp úr F-riðli í 16 liða úrslitin. Japanar eiga líka fræðilegan möguleika á að komast í 16 liða úrslitin en til að svo verði þurfa þeir að sigra Brassana stórt. 22.6.2006 14:15
Tékkar verða að vinna Ítali Spennandi lokaumferð er framundan í E-riðli og mæta Tékkar þar Ítölum um leið og Gana mætir Bandaríkjamönnum. Tékkar þurfa helst sigur gegn Ítölum til að tryggja sig áfram í 16 lið úrslitin þó gæti þeim nægt jafntefli ef Gana gerir jafntefli við Bandaríkin. Ítölum nægir hins vegar eitt stig úr viðureigninni við Tékka til að tryggja sig í 16 liða úrslitin. 22.6.2006 13:52
Gana og USA ætla sér bæði í 16 lið úrslit Gana og Bandaríkin sem mætast í dag í öðrum af tveimur lokaleikjum hins spennuþrungna E-riðils eiga bæði möguleika á að komast áfram í 16 liða úrslit ef allt gengur eftir. 22.6.2006 13:30
Owen er í rusli Micheal Owen er ótrúlega svekktur yfir því að hafa slasast í leiknum á móti Svíum. Honum finnst að hann hafi brugðist áhangendum Newcastle United. 22.6.2006 11:41
HM leikir dagsins Í dag klárast E og F riðill á HM í Þýskalandi. Klukkan 14:00 mætast Tékkar og Ítalir og Bandaríkin og Gana. Þessi lið leika í E-riðli þar sem ríkir mikil spenna, því öll liðin eiga möguleika á að komast í 16 liða úrslit. Klukkan 19:00 verða leikir Brasilíu og Japan og Ástralíu og Króatíu. 22.6.2006 10:01
Michel hættur með Fílabeinsströndina Henri Michel, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar er hættur með liðið og staðfesti hann það við fjölmiðla eftir síðasta leik þeirra á HM gegn Serbíu. Við vorum áður búnir að segja frá því að hann mundi hætta og nú hefur það fengist staðfest. Þessi 58 ára gamli frakki er á leiðinni til Katar þar sem hann mun taka við ónafngreindu liði. 22.6.2006 09:53
Perrotta orðinn leikfær Simone Perrotta, leikmaður Ítalska landsliðsins er orðinn leikfær en hann meiddist á læri í 1-1 jafnteflinu við Bandaríkjamenn. Marcello Lippi, þjálfari var búinn að afskrifa leikmanninn fyrir leikinn gegn Tékkum en Perrotta hefur æft með liðinu á þriðjudag og miðvikudag og farið í gengum æfingarnar án nokkurra vandræða. 22.6.2006 09:45
Silvestre byrjar inn á gegn Tógó Mikael Silvestre, leikmaður franska landsliðsins og Manchester United segir að hann muni byrja inná gegn Tógo á föstudaginn. Leikmaðurinn hefur setið á bekknum þá tvo leiki sem frakkar hafa spilað til þessa. 22.6.2006 09:42
Þýska þjóðin sameinuð með sínu liði Þýska þjóðin er sameinuð og stendur bakvið sitt lið á HM. Fram kemur í Þýskum fjölmiðlum að viðsnúningur hafi orðið en fyrir mót var almenningur á því að Þýska liðið væri ekki gott og mundi ekki gera stóra hluti á HM. 22.6.2006 09:31