Fleiri fréttir

Málamiðlun í öldungadeild

Barack Obama Bandaríkjaforseti gerir sér vonir um að Bandaríkjaþing afgreiði á morgun, þriðjudag, tillögur sínar að aðgerðum gegn efnahagskreppunni vestra. Flokksbræður hans í öldungadeildinni náðu málamiðlun við kollega sína úr röðum repúblikana um að samþykkja áætlunina með vissum breytingum.

15.000 óbreyttir Tamílar á flótta

Fleiri en fimmtán þúsund óbreyttir borgarar á átakasvæði stjórnarhersins og Tamílatígranna nyrst á Srí Lanka hafa lagst á flótta undanfarna daga, að því er talsmaður stjórnvalda í höfuðborginni Colombo greindi frá.

Tugir hafa brunnið lifandi í kjarreldunum

Tugir manna hafa brunnið lifandi í bílum sínum þegar þeir reyndu að flýja kjarreldana í Ástralíu. Um eitthundrað manns hafa farist um helgina og heilu þorpin hafa fuðrað upp á nokkrum mínútum.

Fórust þegar flugvél hrapaði í Amazon

Tuttugu og fjórir fórust þegar að flugvél hrapaði í Amazon fljótið í Brasilíu. Björgunarmenn fundu lík hinna látnu í flugvélinni í dag. Á meðal hinna látnu voru sjö börn, níu konur og átta karlar. Fjórir björguðust í slysinu og á meðal þeirra var níu ára gamalt barn.

Tugir látast í kjarreldum í Ástralíu

Sjötíu og fimm hið minnsta hafa látið lífið í kjarreldum í Ástralíu um helgina. Margra er saknað. Heilu þorpin hafa fuðrað upp og eldarnir breiðst svo hratt út að fólk hefur varla haft tíma til að forða sér. Margir hinna látnu fundust í bílum sínum þar sem þeir höfðu reynt að flýja. Þetta eru mestu kjarreldar sem orðið hafa í Ástralíu í þrjá áratugi.

Danir þurfa aðstoð við að uppræta salmonellufaraldur

Það er Dönum ennþá hulin ráðgáta hvers vegna salmonellufaraldur hefur herjað á þá allt frá síðasta sumar. Talað er um að þetta sé einhver versti salmonellufaraldur sem þeir hafi séð. Fæðumálaráðherra Danmerkur, Eva Kjer Hansen, hyggst þess vegna láta fara fram rannsókn á orsökum

Biden fundar með Sergei Ivanov

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, mun funda í dag með Sergei Ivanov, varaforsætisráðherra Rússlands. Biden hét því í gær að með nýrri ríkisstjórn í Bandaríkjunum myndi kveða við nýjan tón í utanríkismálum

Tilkynningum um dýraníð fjölgar í Danmörku

Sífellt fleiri tilkynningar berast um vanrækslu eða ofbeldi gagnvart dýrum í Danmörku. Dönsku dýraverndasamtökin, Dyrenes Beskyttelse, segjast fá um 3 þúsund tilkynningar á ári og þeim hafi fjölgað um 31%

Norðmenn hætta að veiða þorsk

Eins og við Ísland er ágæt þorskveiði undan ströndum Lofoten á þessum árstíma. Engu að síður liggja bátarnir í höfn.

Biskup biður ekki afsökunar

Það vakti mikla reiði meðal gyðinga og raunar víðar þegar Benedikt páfi aflétti bannfæringu af Richard Williamson biskupi.

Hefur þreytt ökupróf 771 sinni

Sextíu og átta ára gömul amma í Suður - Kóreu hefur fallið sjöhundruðsjötíu og einu sinni á ökuprófi eftir því sem fjölmiðlar þar í landi fullyrða. Lögreglan í Suður-Kóreu segir að amman, sem er kölluð Cha hafi tekið prófið næstum því á hverjum degi frá því árið 2005. Hún féll á prófinu á mánudaginn í sjöhundruðsjötugasta og fyrsta skipti.

Líklegt að OPEC dragi úr framleiðslu

Líklegt er talið að samtök olíuríkja, OPEC muni ákveða að draga úr framleiðslu á fundi sínum í næsta mánuði til þess að koma verðinu upp fyrir sjötíu dollara fyrir fatið. OPEC ríkin sjá framá að árið 2009 verði rýrt fyrir þau þar sem talsvert muni draga úr eftirspurn. Þau ætla að reyna að mæta því að einhverju leyti með hækkuðu verði.

Obama ókyrrist

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum náði nýjum hæðum í janúar en þá töpuðust rétt tæp sex hundruð þúsund störf. Þar með hefur atvinnuleysi farið úr 4,9 prósentur fyrir ári síðan upp í 7,6 prósent. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið í Bandaríkjunum síðan árið 1992.

Herskipum í Nagasaki mótmælt

Bandaríska herskpinu Blue Ridge var ekki sérlega vel tekið þegar það kom til Nagasaki. Tilgangur heimsóknarinn var að bæta og treysta samband Bandaríkjanna og Japans.

Rússneski flugherinn meira og minna ónýtur

Það eru um 650 orrustuþotur í rússneska flughernum. Þar af eru um 290 af gerðinni MiG 29. Þær eru taldar með bestu þotum flughersins þótt þær hafi verið hannaðar á sjöunda áratugnum.

Misheppnuð ránstilraun í Nykøbing

Tveir ræningjar hurfu á brott tómhentir eftir að hafa reynt að ræna peningaflutningabíl í danska bænum Nykøbing á Sjálandi.

Rúm hálf milljón í þjónustugeiranum missti vinnu

Meira en hálf milljón starfsmanna í þjónustugeiranum í Bandaríkjunum missti vinnuna í janúar sem er svipuð tala og í desember. Atvinnuleysi mælist nú 7,3 prósent í Bandaríkjunum en hagfræðingar spá því að vinnumarkaðurinn taki að rétta úr kútnum við lok fyrsta fjórðungs ársins og staðan batni til muna á öðrum ársfjórðungi.

Óttast aukinn styrk al-Qaeda í Jemen

Bandaríkjamenn eru uggandi vegna stóraukins fjölda al-Qaeda-liða sem nú streyma frá Sádi-Arabíu til Jemen þar sem samtökin hafa orðið töluverðan liðsstyrk.

Dulbjó sig sem stúlku á Facebook

Átján ára gamall nemi í Bandaríkjunum er sakaður um að hafa dulbúið sig sem stúlku á Facebook og narrað að minnsta kosti 31

Dr. Dauði lést í Kaíró 1992

Þýski stríðsglæpamaðurinn Aribert Heim lést í egypsku borginni Kaíró árið 1992, samkvæmt nýrri rannsókn.

Segir lokun Guantanamo auka líkur á árás

Sú ákvörðun Baracks Obama Bandaríkjaforseta að loka fangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu gæti aukið líkurnar á hryðjuverkaárás á Bandaríkin til muna.

Brown hvetur til sátta í vinnudeilu

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hvatti starfsmenn Lindsey-olíuhreinsunarstöðvarinnar í Lindsey í Lincolnskíri til að ná sáttum í vinnudeilu sinni og láta af verkfalli sínu sem staðið hefur frá því í síðustu viku. Þetta gerðist í fyrirspurnartíma í breska þinginu í gær.

Unglingar grunaðir um fjölda rána

Tveir drengir, 15 og 17 ára, hafa verið handteknir í Kaupmannahöfn, grunaðir um að hafa staðið á bak við nokkur rán á götum úti auk rána á heimilum. Þá er talið að þeir tengist einnig fjölda líkamsárása.

Bréf á Asíumörkuðum hækka

Hlutabréf í Asíu hækkuðu í verði í morgun og hækkuðu bréf náma- og flutningafyrirtækja mest, til dæmis nam hækkunin hjá Billington-námafyrirtækinu tæpum sjö prósentum.

Vill minnka kjarnavopnabirgðir um 80 prósent

Áttatíu prósenta niðurskurður kjarnavopnabirgða Bandaríkjanna og Rússlands er stefna Baracks Obama Bandaríkjaforseta og mun hann ganga til viðræðna við rússnesk stjórnvöld um þetta innan skamms.

Tugir almennra borgara falla í Srí Lanka

Sameinuðu þjóðirnar segja fimmtíu og tvo almenna borgara hafa fallið í bardögum stjórnarhers og uppreisnarmanna Tamíltígra á Srí Lanka síðasta sólahring. Klasaskrpengja mun hafa skollið á sjúkrahús á bardagasvæðinu en sú bygging hefur orðið fyrir ítrekuðum árásum síðustu daga.

Loka herstöð Bandaríkjanna í Kirgistan

Stjórnvöld í Kirgistan hafa ákveðið að loka herstöð Bandaríkjamanna í Mið-Asíuríkinu. Þetta var tilkynnt í morgun eftir að Rússar höfðu heitið Kirgistönum jafnvirði ríflega tvö hundruð og þrjátíu milljörðum íslenskra króna í efnahagsaðstoð. Herstöðin hefur verið mikilvæg fyrir aðgerðir Bandaríkjamanna og Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Þaðan hafa birgðir verið fluttar til hermanna sem há baráttu við Talíbana þar.

Blagojevich harður á sakleysi sínu

Rod Blagojevich, fyrrum ríkisstjóri Illinois, kveðst saklaus af ásökunum um að hafa ætlað sér að selja öldungadeildarþingsæti Baracks Obama.

Lést þegar farsími sprakk í brjóstvasa

Þeir sem telja farsíma með öllu hættulaus fjarskiptatæki ættu að endurskoða afstöðu sína. Starfsmaður í kjörbúð í Guangzhiu í Kína fékk að reyna þetta með afdrifaríkum hætti en hann hreinlega lést þegar sími hans sprakk með látum í vasa hans á föstudaginn.

Breskir vinnuveitendur og foreldrar gramir skólum

Vinnuveitendur og foreldrar í Bretlandi lýsa gremju sinni í garð þarlendra grunnskóla en þriðjungur skólanna aflýsti kennslu annan daginn i röð í gær vegna óveðursins sem geisar í Bretlandi.

Kynferðisglæpamönnum hent út af MySpace

Aðgangi um það bil 90 þúsund skráðra kynferðisglæpamanna að samskiptavefnum MySpace hefur verið lokað í kjölfar átaks bandarískra yfirvalda í þá átt að auka öryggið á opnum samskipta- og spjallvefjum á Netinu.

Sleðaferð endaði með banaslysi

Sextán ára stúlka lést og þrjár slösuðust mismikið eftir að hafa rennt sér á fullri ferð á sleða í gegnum eina girðingu og stöðvast á þeirri næstu í Rotherham í Bretlandi.

Flugstjórinn gat varla talað

Farþegum í rússnesku Aeroflot vélinni leist ekki á blikuna þegar þeir sáu flugstjórann sem átti að fljúga með þá frá Moskvu til New York í desember síðastliðnum.

Angela Merkel sendir páfa tóninn

Angela Merkel kanslari Þýskalands sagði í dag að Benedikt páfi yrði að gera alveg ljóst að Páfagarður leyfi enga afneitun á helför gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni.

Hamas verða að viðurkenna Ísrael

Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Bandaríkjamenn séu reiðubúnir að vinna með öllum deilendum í Miðausturlöndum.

Enn skotið á sjúkrahús á Sri Lanka

Hundruð óbreyttra borgara á Sri Lanka flúðu í dag sjúkrahús á vígvellinum í norðurhluta landsins eftir að skotið var á það úr fallbyssum í fjórða skipti á nokkrum dögum.

Google býður í reisu um heimshöfin

Google Earth er í sífelldri endurnýjun og í gær voru kynntar nýjungar þar sem meðal annars er hægt að ferðast neðansjávar um heimshöfin.

Átök hvalveiðimanna og liðsmanna Sea Shepherd

Hvalverndarsinnar segja japanska hvalveiðimenn hafa slasað tvo úr þeirra hópi með járnplötum og golfkúlum þegar sló í brýnu milli milli þeirra í Suðuríshafi í gær. Hvalverndarsinnar voru þá að trufla veiðar. Japönsku hvalveiðimennirnir neita sök og segjast bara hafa sprautað vatni á þá.

Vinir til vinstri

Hugo Chavez forseti Venesúela er svo ánægður með að hafa setið á valdastóli í tíu ár að hann taldi ástæðu til þess að lýsa yfir þjóðhátíð og fyrirskipa skrúðgöngur.

Sjá næstu 50 fréttir