Erlent

15.000 óbreyttir Tamílar á flótta

Tamílar á flótta frá átakasvæðinu með föggur sínar við bæinn Vavuniya í gær. fréttablaðið/ap
Tamílar á flótta frá átakasvæðinu með föggur sínar við bæinn Vavuniya í gær. fréttablaðið/ap

Fleiri en fimmtán þúsund óbreyttir borgarar á átakasvæði stjórnarhersins og Tamílatígranna nyrst á Srí Lanka hafa lagst á flótta undanfarna daga, að því er talsmaður stjórnvalda í höfuðborginni Colombo greindi frá.

Svo virðist sem stjórnarherinn sé í þann mund að hrekja vopnaða liðsmenn Tamílatígra frá síðustu vígjum sínum. Að sögn hersins var að minnsta kosti 21 skæruliði felldur um helgina.

Stjórnarherinn sakar skæruliða um að beita óbreyttum borgurum fyrir sig sem „mannlegum skjöldum“. Því neita talsmenn Tamílatígra. - aa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×