Fleiri fréttir

Ástralar gefa Bretadrottningu gullvagn

Ríkisstjórn Ástralíu hefur fært Elísabetu Englandsdrottningu að gjöf viðhafnarhestvagn úr gulli að verðmæti rúmlega 100 milljónir króna.

Fæðandi konu bannað að blóta

Heilbrigðisyfirvöld í Noregi kanna nú mál hjóna sem kærðu ljósmóður fyrir að banna konunni í blóta þegar hún var að fæða barn sitt.

Slegist um hvalina

Félagar í Sea Shepherd samtökunum fá blautar móttökur þegar þeir hrella hvalveiðiskip Japana á Suður-Íshafinu.

Fundu flak af frægu orrustuskipi

Bandarískir fjársjóðsleitarmenn hafa fundið flakið af breska orrustuskipinu Victory sem fórst í fárviðri á Ermarsundi fyrir 264 árum.

Gaddafi nýr leiðtogi Afríkusambandsins

Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi var í morgun kosinn framkvæmdastjóri Afríkusambandsins á fundi þess í Eþíópíu. Gaddafí hlaut yfirgnæfandi stuðning í embættið en einhverjir fundarmenn voru áhyggjufullir vegna þess hve hann hefði verið umdeildur og væri talinn hvikull. Gaddafi hefur verið virkur innan sambandsins. Hann hefur lengi stutt hugmyndir um nánara samstarf Afríkuríkja á vettvangi þess og lagt til milljónir í stuðning við fátækari sambandsríki.

Barist í Srí Lanka

Níu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar sprengjum var varpað þrívegis á sjúkrahús á norð-austurhluta Srí Lanka. Árásirnar voru gerðar á síðasta sólahring. Uppreisnarmenn Tamíltígra hafa völdin á svæðinu. Stjórnarher landsins segist ekki hafa gert árásir á sjúkrahúsið.

Öskuregn í Tokyo

Ösku rigndi í morgun yfir úthverfi Tokyo þegar gos hófst í eldfallinu Asama. Fjallið er um hundrað og fjörutíu kílómetra norðvestur af höfuðborg Japans. Viðvörun hefur verið gefin út og fólki bannað að fara innan við fjóra kílómetra að fjallinu. Aska hefur fallið til jarðar í allt að hundrað sjötíu og fimm kílómetra fjarlægð frá fjallinu og grjóthnullungar fundist í þúsund metra fjarlægð.

Gáfust upp á að prenta peninga

Seðlabankinn í Zimbabwe reyndi í dag að hressa upp á dollara sinn með því að skera tólf núll aftan af honum.

Ísraelar vörpuðu sprengjum á Gaza í gær

Ísraelskar orrustuþotur gerðu árás á öryggismiðstöð í þorpi á Gaza-svæðinu í gærkvöldi auk þess að varpa sprengjum á munna smyglganga við egypsku landamærin. Enginn særðist í árásinni en Ísraelar hringdu á undan sér og vöruðu við árásinni. Um var að ræða hefndaraðgerð eftir að liðsmenn Hamas-samtakanna skutu flugskeytum yfir til Ísrael og særðu nokkra hermenn fyrr í gær.

Japanska eldfjallið Asama gýs

Gos hófst í japanska eldfjallinu Asama snemma í morgun en það er um 140 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Tókýó. Viðvörun hefur verið gefin út og er fólki bannað að vera á ferli nær fjallinu en fjóra kílómetra. Aska úr gosinu er tekin að falla til jarðar í allt að 175 kílómetra fjarlægð frá fjallinu. Asama, sem er eitt af 108 virkum eldfjöllum í Japan og gaus síðast árið 2004.

Sex ár frá Kólumbíuslysinu í gær

Fánar voru dregnir í hálfa stöng í gær við Kennedy-geimferðamiðstöðina til að minnast geimfaranna sjö sem fórust þegar Kólumbía splundraðist í þann mund sem hún kom til baka inn í lofthjúp jarðar eftir ferðalag sitt en þetta er í eina skiptið í bandarískri geimferðasögu sem slys hefur orðið á heimleið.

Fjöldi fíkniefnamála í Árósum tvöfaldast

Fjöldi fíkniefnamála í Árósum í Danmörku hefur meira en tvöfaldast síðan árið 1995. Þetta segir lögreglan á Austur-Jótlandi og bætir því við að fjöldi unglinga á aldrinum 15 til 19 ára, sem komast í kast við lögin, hafi á sama tíma fimmfaldast.

Bretar hugsanlega í samhæft verkfall

Samhæft verkfall starfsfólks í breska orkugeiranum gæti skollið á í þessari viku, fari sem horfir. Þetta segir breska blaðið Telegraph í grein um vaxandi óánægju Breta sem margir hverjir telja stjórnvöld útiloka innlenda starfskrafta og nýta sér þess í stað gloppur í Evrópulöggjöf til að ráða erlent starfsfólk gegn mun lægri launum.

Varað við fannfergi um allt Bretland

Breskir veðurfræðingar vara við mestu snjókomu í 20 ár um nánast allt Stóra-Bretland í dag. Ekki er nóg með að allt að 30 sentimetra djúpum jafnföllnum snjó sé spáð heldur gera veðurstofur landsins einnig ráð fyrir fimbulkulda alla vikuna.

London er ekki Reykjavík við Thames ána

„London er ekki Reykjavík við Thames ánna," sagði Gordon Brown forsæisráðherra Breta á Davos fundinum í gær þegar hann ræddi ástandið í efnahagsmálum heimsins.

Fagnar kosningum í Írak

Barack Obama forseti Bandaríkjanna segist fagna héraðskosningunum sem fram fóru í Írak í dag og segir þær mikilvægt skref í því að Írakar marki sér bjarta framtíð.

Þúsundir mótmæla Pútín

Þúsundir mótmælenda hafa komið saman á fjöldafundi í austurhluta Rússlands þar sem þess er krafist að ríkisstjórn landsins segi af sér vegna efnahagsvandans sem þar ríkir. Mótmælendur í Vladivostok skella skuldinni á Vladimir Pútín forsætisráðherra og vilja meina að hann hafi haldið illa á spöðunum hvað varðar efnahagsmál. Þeir vilja einnig meina að hann hafi leynt þjóðina pólitískum ágreiningi sem þar ríkir.

Hafa áhyggjur af börnum á Sri Lanka

Fjöldi barna hefur fallið eða slasast í átökum á Sri Lanka undanfarna 10 daga, segja talsmenn UNICEF. Þeir krefjast þess að stjórnvöld þar í landi og uppreisnarmenn úr röðum Tamíl Tígra gæti öryggis barna og almennum borgurum.

Þurfa að vinna sameiginlega að lausn efnahagskreppunnar

Bandaríkin og Kína verða að koma alþjóðaviðskiptum og lánamörkuðum í lag til þess að ná tökum á efnahagskreppunni sem geysar um allan heim. Þetta voru þeir Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Hu Jintao, forseti Kína, sammála um þegar þeir ræddu saman í símann í dag.

Með vel á annað hundrað vopna

Danska lögreglan hefur á síðustu dögum fundið um 150 skotvopn á mismunandi stöðum á Djursland, eftir því sem Danska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Austur-Jótlandi.

Banna Darvocet verkjalyf

Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum leggur til að Darvon, verkjalyf sem hefur verið á markaði í 50 ár, verði bannað. Kosið var um þetta hjá Lyfjaeftirlitinu í dag og greiddu 14 banninu atkvæði sitt en 12 greiddu á móti því. Lyfið var fyrst samþykkt árið 1957 þegar engin önnur verkjalyf voru í boði fyrir utan aspirin og sterk verkjalyf.

Fagnað sem þjóðhetju eftir að hafa strunsað út af fundi

Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, rauk öskureiður af ársþingi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í gær eftir snörp orðaskipti við Peres Ísraelsforseta. Deiluefnið var árásir Ísraela á Gaza. Erdogan var fagnað sem hetju við heimkomuna til Tyrklands í gærkvöldi.

Ríkisstjóri Illinois rekinn

Ríkisþingið í Illinois í Bandaríkjunum rak í gærkvöldi ríkisstjórann Rod Blagojevich fyrir brot í starfi. Allir fulltrúar á þinginu greiddu atkvæði með því að reka hann. Blagojevich er einnig bannað héðan í frá að gegna opinberu embætti í Illinois-ríki.

Skókastarinn í Írak heiðraður með bronsskó

Gríðarmikill skór úr bronsi hefur verið settur upp í bænum Tikrit í Írak til heiðurs blaðamanninum Muntader al-Zaidi sem varð þjóðhetja arabaheimsins í einu vetfangi þegar hann grýtti skóm sínum í George Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, í desember og kallaði hann hund.

Samdráttur í Valentínusargjöfum milli ára

Er það virkilega hugurinn sem gildir? Bandarískar turtildúfur komast að því í eitt skipti fyrir öll eftir hálfan mánuð en þá rennur hinn rómaði dagur elskenda upp sem kenndur er við heilagan Valentínus.

Mættu með fallbyssukúlu í skólann

Fótur og fit varð uppi í barnaskóla í borginni Naha á japönsku eyjunni Okinawa þegar tveir tólf ára drengir mættu sallarólegir með ósprungna 90 millimetra fallbyssukúlu í skólann í fyrradag.

Ráðgjafar Browns höfnuðu sögusafni hans

Áætlanir Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, um breskt sögusafn, voru blásnar af og það af hans eigin ráðgjöfum. Í stað sögusafns vilja ráðgjafarnir að rafrænum sýndarveruleikasöfnum verði komið fyrir á þeim söfnum sem þegar eru til, þar sem ýmis rafræn söguleg gögn verði höfð til sýnis, svo sem gömul gagnasöfn og vefsíður. Með því sparast stórfé, að mati ráðgjafanna.

Foreldrar Rhys litla segja fangelsisdóm móðgun

Foreldrar hins ellefur ára gamla Rhys Jones hafa lýst yfir reiði sinni með fangelsisdóm sem meðlimur glæpagengis sem útvegaði morðingja drengsins vopnið hlaut. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi.

Söfnuðu 2 milljónum punda á 10 mánuðum

Sjóður sem settur var á laggirnar til þess að hafa uppi á Madeleine McCann safnaði 2 milljónum punda á fyrstu 10 mánuðunum eftir að hún hvarf. Stjörnur á borð við JK Rowling og Sir Richard Branson ásamt þúsundum annarra lögðu sjóðnum lið eftir að stúlkan hvarf þegar fjölskyldan var í fríi í Algarve í maí árið 2007.

Gyðingar slíta sambandi við Páfagarð

Miðstjórn samtaka gyðinga í Þýskalandi hefur slitið öllu sambandi við kaþólsku kirkjuna eftir að Benedikt páfi leysti undan bannfæringu biskup sem hefur lýst efasemdum um helförina.

George Bush vel tekið

Það hefur ekki farið mikið fyrir George Bush síðan hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna. Það er enda hefð fyrir því að fyrrverandi forsetar hafi hægt um sig.

Michelle Obama í vax

Barack Obama forseti er auðvitað löngu kominn upp í vaxmyndasöfnum víðsvegar í heiminum. Nú er röðin komin að eiginkonu hans Michelle.

Flugmennirnir alltof uppteknir

Rannsóknarnefnd flugslysa í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að flugslys sem varð þegar tvær fréttastofuþyrlur rákust saman hafi orðið vegna þess að flugmennirnir voru alltof uppteknir.

Mótmælt í Moskvu

Hópur fólks kom saman í Moskvu, höfuðborg Rússlands í dag og mótmælti áformum yfirvalda um að reisa sorpbrennslustöðvar í borginni. Lögregla skarst í leikinn og handtók meðal annars mótmælanda sem hafði dulbúið sig sem endurvinnslutunnu.

Lífvörður Baggers skotinn

Lífvörður fjársvikamannsins Steins Bagger, Hells Angels liðinn Brian Sandberg, var skotinn skömmu eftir eitt í dag. Hann fékk tvö skot í bakið þar sem hann sat á kaffihúsi. Að sögn danska blaðsins Extrabladet er ekki vitað um líðan hans.

Hestar fara illa út úr kreppunni

Hestar hafa mjög fengið að finna fyrir efnahagskreppunni. Þeir eru stórir og dýrir í rekstri. Í Bretlandi og Bandaríkjunum sjá æ fleiri eigendur framá að þeir hafi ekki efni á að eiga þá lengur.

Sjá næstu 50 fréttir