Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir hundrað og fimmtíu látnir eftir að olíuleiðsla sprakk í Nígeríu Yfir hundrað og fimmtíu eru sagðir látnir eftir að olíuleiðsla sprakk í Suðvestur-Nígeríu í morgun og þar af margir svo illa brenndir að líkin eru óþekkjanleg. Leki hafði komið að olíuleiðslunni og þorpsbúar þustu þar að, til að safna dýrmætum olíudropum í alla tiltæka dalla. 12.5.2006 15:29
Flúið undan eldgosi í Indónesíu Beita hefur þurft fortölum til þess að fá fólk til að flýja undan eldgosi í Merapi-fjalli á Indónesíu. Óttast er að eldský grandi þeim sem ekki koma sér undan, eins og gerðist í síðasta eldgosi árið 1994. Þúsundir hafast nú þegar við í flóttamannaskýlum en margir hafa þráast við að yfirgefa heimili sín, ef ekki er kostur að taka búféð með, en það er oft eina viðurværi fjölskyldna í héraðinu. 12.5.2006 13:00
Ahmadinejad segist hvergi banginn við árásir Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans segir Írana ekki vera hrædda við árásir Bandaríkjamanna og telur ólíklegt að Vesturveldin láti til skarar skríða og ráðist á Íran vegna kjarnorkuáætlunar landsins. 12.5.2006 12:45
Villta Västerås Tveir menn réðust með sjálfvirk skotvopn inn í héraðsdóm í Västerås í Svíþjóð í morgun og frelsuðu þar mann sem var fyrir rétti. Mennirnir hleyptu ekki af, heldur höfðu sig á brott um leið með sakborninginn. Maðurinn var ákærður fyrir að vera höfuðpaur stórs fíkniefnahrings, en sjö aðrir eru ákærðir vegna málsins. 12.5.2006 10:49
Clinton í Kaupmannahöfn Fjöldi fólks beið í gær í marga klukkutíma fyrir framan Hotel d´angleterre við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn í von um að berja augum Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. 12.5.2006 10:15
Hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland Einn af forystumönnum al-Qaida samtakanna hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland í nýju myndbandi sem birt var á Netinu í gær. Líbýumaðurinn Mohammed Hassan, sem slapp úr einu af fangelsum Bandaríkjanna í Afganistan í fyrra, hvetur til hefnda fyrir Múhameðsteikningarnar sem birtar voru á síðasta ári. 12.5.2006 10:00
Prestur dæmdur fyrir að myrða nunnu Bandarískur prestur var í gær dæmdur í 15 ára til lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt nunnu árið 1980. Gerald Robinson hafði lengi unnið með Margaret Ann Pahl en hún var stungin til bana alls 31 sinni. 12.5.2006 09:15
Bandaríkjamenn hafna beinum samskiptum við Írana Bandaríkjastjórn hafnar öllum beinum samskiptum við yfirvöld í Íran og segir Írana hafa ýmsa möguleika til að komast í samband við yfirvöld vilji þau nýta sér þá. 12.5.2006 08:45
Upprættu mikla kókaínframleiðslu Fíkniefnalögreglan í Kólumbíu réðst í gær til atlögu á kókaínframleiðslufyrirtæki þar sem hvorki meira né minna en þrjú tonn af kókaíni eru framleidd í hverjum mánuði. 12.5.2006 08:30
Hugmyndir um kaup Fly Me á Sterling Hugmyndir eru uppi um að sænska lággjaldaflugfélagið Fly Me kaupi Sterling flugfélagið sem er í eigu FL Group og jafnvel norska flugfélagið Norwegian. Ager Hansen, sem er næststærsti hluthafi í Fly Me, segir í viðtali við Finansavisen að Finnair komi líka til greina, en það á lágjaldaflugfélagið Fly Nordic. 12.5.2006 07:45
Bush neitar að tjá sig um hleranir Bandaríkjaforseti neitar að tjá sig um staðhæfingar bandarískra fjölmiðla þess efnis að Bandaríkjastjórn hafi safnað upplýsingum um símtöl tuga milljóna Bandaríkjamanna frá árinu 2001. Dagblaðið USA Today staðhæfir að þrjú stærstu símafyrirtæki landsins hafi afhent yfirvöldum upplýsingar um símtöl fólksins. 12.5.2006 07:30
Boðað til neyðarfundar með Tamíltígrum vegna árásar Yfirstjórn friðargæslunnar á Sri Lanka hefur boðað til neyðarfundar með uppreisnarmönnum Tamíltígra. Friðargæslan sakar tígrana um gróf brot á vopnahléssamkomulaginu frá 2002, nú síðast í gær, með sjálfsmorðsárás á herskip í sem leiddi til dauða 57 manns, að sögn yfirvalda. 12.5.2006 07:24
Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn hóf útsendingar í Bandaríkjunum í dag. Þetta er fyrsta stöð sinnar tegundar en markhópurinn er börn yngri en tveggja ára. 11.5.2006 23:30
Valdamenn spila fótbolta Það voru valdamiklir menn sem spörkuðu á milli sín knetti til styrktar góðu málefni í Vín í Austurríki í dag. Þá var efnt til góðgerðarleiks í knattspyrnu þar sem sjö evrópskir forsætisráðherrar og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, létu ljós sitt skína. 11.5.2006 23:15
Börn mótmæltu við höfuðstöðvar SÞ á Gaza Tugir palestínskra barna reistu tjald fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæðinu í dag til þess að mótmæla því sem þau kalla efnahagslegt umsátur um palestínskt land. 11.5.2006 23:00
Breska leyniþjónustan þekkti árásarmennina Tveir þeirra fjögurra hryðjuverkamanna sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Lundúnir í fyrra voru undir takmörkuðu eftirliti fyrir árásirnar auk þess sem breska leyniþjónustan hafði hlerað síma þess þriðja. Þetta kemur fram í skýrslu þingnefndar um árásirnar sem birt var í dag. 11.5.2006 22:45
Kona og barn myrt í Antwerpen Svo virðist sem kynnþáttafordómar hafi ráðið ferð þegar 18 ára piltur varð svartri konu og barni í hennar gæslu að bana í miðborg Antwerpen í Belgíu í dag. 11.5.2006 22:25
Norrænir friðargæslumenn í hættu Vopnahlé, sem norrænir eftirlitsmenn fylgjast með á Sri Lanka, er í uppnámi eftir bardaga á sjó og landi í dag. Talið er að minnst 45 hafi fallið. Íslenskur upplýsingafulltrúi norrænu eftirlitssveitanna segir að tveir norrænir eftirlitsmenn hafi verið í hættu, en þá hafi ekki sakað. 11.5.2006 19:45
Eldsneyti aftur flutt á sjálfsstjórnarsvæðin Ísraelska orkufyrirtækið Dor Alon ætlar að hefja aftur flutning á eldsneyti til sjálfsstjórnarsvæða Palestínumanna á morgun. Fyrirtækið ákvað að hætta eldsneytisflutningum í gær vegna skulda heimastjórnar Palestínumanna. 11.5.2006 15:15
Breskur tölvuhakkari á yfir höfði sér allt að sjötíu ára fangelsi Breskur tölvuhakkari, hinn fjörtíu ára Gary McKinnon, á yfir höfði sér langan fangelsisdóm vegna skemmdarverka á tölvukerfum Bandaríkjahers og NASA sem hann komst sig inn á. 11.5.2006 07:19
50 manns drepnir í Bagdad Allt að 50 manns eru drepnir í Bagdad, höfuðborg Íraks á hverjum sólarhring. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks, í gær og bað um að blóðbað landinu yrði stöðvað. Árásum hefur fjölgað mikið að undanförnu í Írak en hryðjuverkasamtökin Al Qaida hafa lýst því yfir að þannig verði það uns Bandaríkjamenn eru á bak og burt og samtökin hafa náð fullum völdum. 11.5.2006 07:05
Börn á munaðarleysingjahælum í Rúmeníu vanrækt og misnotuð Bandarísk mannréttindasamtök segja börn á munaðarleysingjahælum í Rúmeníu, sem skipta þúsundum, vera vanrækt og misnotuð í miklum mæli. Rúmensk stjórnvöld viðurkenna að eiga í miklum vandræðum með allan þann fjölda barna sem skilin eru eftir við dyr munaðarleysingjahæla og þær aðstæður sem þau búa við en neita þó ásökunum um misnotkun. 11.5.2006 06:59
Veita Palestínumönnum tímabundna neyðaraðstoð Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði á blaðamannafundi í gærkvöld að Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússar og Sameinuðu þjóðirnar, kvartettinn svokallaði, hefði ákveðið að veita Palestínumönnum tímabundna neyðaraðstoð til að koma í veg fyrir að þeir fái það á tilfinninguna að verið sé að refsa þeim fyrir að kjósa Hamas-samtökin í lýðræðislegu kosningum. 11.5.2006 06:50
Eldflaugum skotið að uppreisnarmönnum á Gaza Ísraelar skutu tveimur eldflaugum á herbúðir uppreisnarmanna í suðurhluta Gaza seint í gærkvöldi. Ekki hafa borist neinar fréttir af mannfalli. Að sögn ísraelskra stjórnvalda var F16 þota send til að eyðileggja byggingu þar sem hryðjuverkamenn eru taldir vera þjálfaðir. 11.5.2006 06:47
Goldsmith lávarður vill loka Guantanamo fangelsinu Guantanamo fangelsið á Kúbu kemur óorði á frelsishefð Bandaríkjamanna og ætti að loka. Þetta sagði Goldsmith lávarður, ríkislögmaður Breta í ræðu í gær. Hann sagði tilvist fangelsisins óásættanlega. 11.5.2006 06:43
Minnisvarði veitir upplýsingar Fornleifafræðingar í Mexíkó hafa fundið minnisvarða höggvinn úr steindranga í norður hluta landsins. Hann gæti veitt nýjar upplýsingar um eina elstu þjóðmenningu álfunnar. 10.5.2006 22:45
Sirkusfílar á vappi í Svíþjóð Það voru sirkusfílar sem mættu þeim sem áttu leið um nálægt vænum Väsby í Svíþjóð í gærkvöldi. Verið var að ferja fílana með flutningbíl þegar ökumaður missti bílinn útaf veginum þar sem hann valt síðan. 10.5.2006 22:15
Ríkislögmaður Breta vill að Guantanamo fangelsinu verði lokað Guantanamo fangelsið á Kúbu kemur óorði á frelsishefð Bandaríkjamanna og ætti að loka. Þetta sagði Goldsmith lávarður, ríkislögmaður Breta í ræðu í dag. Hann sagði tilvist fangelsisins óásættanlega. 10.5.2006 21:54
Segja nýsköpun undirstöðu norræna velferðarkerfisins Alþjóðlegir fjárfestar líta á Noðrulöndin sem svæði í samkeppni við stór lönd og svæði innan Evrópu, Asíu og Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í grein sem þeir Kjell Storvik framkvæmdastjóra og Bjørn Tiller ráðgjafa hjá Norrænu nýsköpunarmiðstöðini í grein sem birtist hjá norska dagblaðinu Dagens Næringsliv. 10.5.2006 16:30
Klekar hvetja Íraka til sameiningar Um það bil fimmtíu klerkar kúrda, súnnía og sjía hittust til fundar í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag til að ræða hvernig binda megi enda á átök trúarbrota í landinu. Íraksforseti segir að þau hafi kostað rúmlega þúsund Íraka lífið í aprílmánuði einum. 10.5.2006 16:06
Áttræður fyrrverandi kommúnisti í embætti forseta Ítalska þingið kaus í dag Giorgio Napolitano í embætti forseta landsins. Napolitano er frambjóðandi olívubandalags Romanos Prodis. Þetta var í fjórða sinn sem þingið kaus milli frambjóðenda síðan á mánudag en enginn hafði fengið tilskylinn meirihluta atkvæða sökum þess hve margir þingmenn sátu hjá í fyrstu atkvæðagreiðslunum. Napolitano er áttræður fyrirverandi kommúnisti. Nýr forseti mun veita Prodi umboð til stjórnarmyndunar, en bandalag mið- og vinstir flokka, sem hann fer fyrir vann nauman sigur í ítölsku þingkosningunum í síðasta mánuði. 10.5.2006 15:18
Börn misnotuð af háttsettum aðilum Brögð eru að því að börn í Líberíu séu kynferðislega misnotuð af hjálparsarfsmönnum, friðargæsluliðum, kennurum og ýmsum háttsettum innfæddum karlmönnum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna Save the Children eða Barnaheilla Bretlandi sem kynnt var nýverið. 10.5.2006 15:18
Hættir eldsneytisflutningum á Vesturbakka og Gaza-svæðið Ísraelska olíufyrirtækið Dor Energy hefur ákveðið að hætta eldsneytisflutningum á Vesturbakkan og Gaza-svæðið. Fulltrúar fyrirtækisins segja þetta gert vegna skulda Palestínumanna en palestínskir fulltrúar segja þetta auka en á vanda íbúa á þessum svæðum. 10.5.2006 15:14
Lauk 4800 kílómetra göngu frá Kaliforníu til New York. Bandarískur karlmaður lauk í gær 4800 kílómetra göngu frá Kaliforníu til New York. Gangan hófst 10 apríl árið 2005 og sagði maðurinn, Steve Vaught, ástæðuna fyrir þessum óvenju langa göngutúr vera óánægja með eigin líkama og líðan en hann hafði lengi verið þunglyndur. 10.5.2006 08:15
Dæmdur í lífstíðarfangelsi Þjóðverjinn Arwin Meiwes var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið mann sem hann kynntist stuttu áður á netinu og lagt hann sér síðan til munns. Meiwes var reyndar dæmdur fyrir verknaðinn fyrir tveimur árum og þá í átta og hálfs árs fangelsi. 10.5.2006 08:14
semja um frið Samkomulag hefur náðst á milli Hamas og Fatah fylkinganna. Leiðtogi Palestínumanna, Ismail Haniyeh, bað leiðtoga Hamas og Fatah að mæta á sinn fund í Gaza í gær og varði fundurinn í rúma fjóra klukkutíma. 10.5.2006 07:56
Palestínumenn fá hjálp Samkomulag hefur náðst um tímabundnar aðgerðir til að tryggja það að neyðaraðstoð berist til palestínsku sjálfstjórnarsvæðanna 10.5.2006 07:54
Tilbúnir að koma til móts við Írana Fulltrúar þeirra ríkja sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna náðu samkomulagi í gærkvöldi um að gera Írönum tilboð um að þeir hljóti ákveðnar hagsbætur fallist þeir á kröfur Sameinuðu þjóðanna í kjarnorkudeilunni. 10.5.2006 07:42
Ætla að veita Palestínumönnum stuðning Fjórveldin sem standa að baki vegvísinum til friðar í Miðausturlöndum ætla að koma upp alþjóðlegu kerfi svo hægt sé að veita Palestínumönnum fjárhagslegan stuðning. 9.5.2006 22:09
Mannætan fékk ævilangt fangelsi Rúmlega fertugur Þjóðverji var í dag dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða og éta jafnaldra sinn. 9.5.2006 20:00
Námaverkamönnunum loks bjargað Tveir ástralskir verkamenn sem setið höfðu fastir í gullnámu í hartnær hálfan mánuð sluppu loks úr prísund sinni í morgun. Þeir voru glorhungraðir þegar þeir komu upp úr námunni en að öðru leyti amaði ekkert að þeim. 9.5.2006 19:00
Aðeins 30 prósent styðja Verkamannaflokkinn Skiptar skoðanir eru um þá ákvörðun Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, að greina ekki frá hvenær hann hyggst láta af embætti. Skoðanakannanir benda til að Verkamannaflokkurinn hafi ekki verið óvinsælli síðan 1992. 9.5.2006 18:45
Fatah-liðar berjast við Hamas-liða Níu palestínumenn særðust í átökum milli Fatah-hreyfingar Yassers Arafats og byssumanna Hamas-hreyfingarinnar á Gaza-svæðinu í morgun. 9.5.2006 13:15
Mikill skortur á vinnuafli í Danmörku Mikill skortur er á vinnuafli í Danmörku. Þetta sýna nýjustu tölur á helstu atvinnuauglýsingasíðu Danmerkur á Netinu sem greint er frá í Politiken. Mestur er skorturinn á hjúkrunarfræðingum og byggingarverkamönnum og iðnaðarmönnum og þá er mikil barátta um sérfræðinga í fjármálageiranum. 9.5.2006 09:45
Blaine hætti við heimsmetstilraun Bandaríski töframaðurinn David Blaine hætti í gær við að reyna að halda niðri í sér andanum í níu mínútur og setja þar með heimsmet. 9.5.2006 09:15