Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skipi smyglara sökkt Ástralski flugherinn sökkti í morgun norðurkóresku flutningaskipi sem tekið var árið 2003 og flutt til hafnar. Skipið var notað til að smygla rúmum 125 kílóum af heróíni til Ástralíu. 23.3.2006 10:15
Svar við því af hverju fuglaflensa smitast ekki Vísindamenn í Bandaríkjunum telja sig hafa fundið skýringuna á því af hverju fuglaflensa smitast ekki milli manna. Flensuveirur leggist oftast á frumur ofarlega í öndunarvegi manna og þar með aukist líkurnar á því að venjulegar flensur berist milli manna við hósta og hnerra. Rannsóknir hafi hins vegar leitt í ljós að fuglaflensuveiran leggist á frumur lengra niðri í öndunarvegi fólks. 23.3.2006 10:00
Gíslar í Írak frelsaðir Fjölþjóðlegu liði hermanna tókst í dag að frelsa þrjá starfsmenn kristilegra hjálparsamtaka, sem hafa verið í haldi mannræningja í Írak frá í nóvember. Breska sendiráðið greindi frá þessu í morgun. 23.3.2006 09:45
Stúdentar í Belgíu mótmæla Mörg hundruð stúdentar þrömmuðu um götur Brussel-borgar í Belgíu í gær til að mótmæla lagafrumvarpi þar í landi sem gengur út á að fækka erlendum stúdentum í belgískum háskólum. 23.3.2006 09:30
Rúta hrapaði eitt hundrað metra niður fjallshlíð Að minnsta ellefu biðu bana og fimm slösuðust þegar rúta með ferðamenn innanborðs hrapaði meira en hundrað metra niður fjallshlíð í Chile í gær. Talið er að flestir hinna látnu séu Bandaríkjamenn. Ekki er vitað hvað olli slysinu en að sögn lögreglunnar á svæðinu er fjallvegurinn sem rútan ók eftir afar skrykkjóttur. 23.3.2006 09:00
Neyðarástand við Hvíta húsið í Washington í gær Neyðarástand skapaðist við Hvíta húsið í Washington í gær þegar maður henti pakka, sem talinn var innihalda sprengju, inn á lóð hússins. Sprengjusérfræðingar voru kallaðir á vettvang sem notuðust við lítið vélmenni til að athuga innihald pakkans, og um klukkustund síðar sögðust þeir hafa gengið úr skugga um að engin hætta væri á ferðum. 23.3.2006 08:45
Óþreyjufullur eftir að mál þokist í átt til friðar Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, er orðinn óþreyjufullur eftir því að mál þokist í átt til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Í viðtali við ísraelska fjölmiðla í gær sagðist hann ekki ætla að bíða endalaust eftir því að Hamas-samtökin, sem fóru með sigur af hólmi í kosningunum í Palestínu fyrr á árinu, viðurkenni Ísraelsríki svo eiginlegar friðarviðræður geti hafist. 23.3.2006 08:15
Níu menn dæmdir til dauða Dómstóll í Jórdaínu hefur dæmt níu íslamska öfgamenn til dauða fyrir þátt þeirra í óeirðum sem kostuðu sjö manns lífið í suðurhluta landsins árið 2002. Fjórir mannanna hafa ekki verið teknir höndum en voru dæmdir þrátt fyrir það. 22.3.2006 14:45
Afrískum flugfélögum bannað að lenda innan ESB Evrópusambandið hefur lagt blátt bann við því að hátt hundrað alþjóðaflugfélög fái að lenda á flugvöllum sambandaríkja. Flest flugfélögin eru afrísk, rúmlega helmingur félaganna er með aðsetur í Kongó, 14 í Sierra Leone og 7 í Svasílandi. 22.3.2006 14:30
Hagvexti spáð í Bretlandi Hagvöxtur verður á bilinu 2 - 2,5% í Bretlandi í ár. Þetta sagði Gordon Brown, fjármálaráðherra, þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár í dag. Það er lítil breyting frá mati hans í lok síðasta árs. 22.3.2006 14:15
Fuglaflensa á Gasa-ströndinni Hið banvæna H5N1 afbrigði fuglaflensu hefur greinst á Gasa-ströndinni. Talsmaður Palestínumanna í landbúnaðarmálum tilkynnti þetta í dag. 22.3.2006 14:00
Eldur í kjarnorkuveri Eldur kviknaði í kjarnorkuveri í Vestur-Japan í morgun. Stjórnendur versins segja þó enga hættu á því að geislavirk efni leki út. Tveir starfsmenn voru fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar. 22.3.2006 13:45
Kínverjar hjálpa við þróun bóluefnis Kínverjar hafa ákveðið að afhenda Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sýni úr dýrum sem sýkt eru af fuglaflensu. Stjórnvöld í Peking hafa verið sökuð um að liggja á sýnum líkt og ormar á gulli til að tryggja forskot kínverskra vísindamanna í þróun á bóluefni. 22.3.2006 13:30
Misheppnað bankarán í Þýskalandi Bankarán fór út um þúfur í Þýskalandi með eftirminnilegum hætti í morgun. Lögregla beið ræningjanna eftir að hafa fengið nafnlausa ábendingu og þeir hrökkluðust því á flótta án þess að festa hönd á nokkrum ránsfeng. 22.3.2006 13:15
ETA leggur niður vopn Frelsissamtök Baska, ETA, hafa lýst því yfir að þau munu leggja niður vopn sín fyrir fullt og allt, frá og með föstudeginum. Þetta kom fram í basknesku dagblaði í morgun en ekki er búið að staðfesta áreiðanleika yfirlýsingarinnar. 22.3.2006 12:30
Afsagnar krafist Enn er þrýst á um afsögn Thaksins Shinawatras, forsætisráðherra Tælands. Mörg þúsund mótmælendum tókst að stöðva umferð í viðskiptahverfi Bangkok í gær og sátu um sendiráð Singapor. 22.3.2006 10:45
Forsætisráðherra Frakklands sagður taka áhættu Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðalögreglu við Sorbonne-háskóla í París í gær. Tekist er á um nýja vinnulöggjöf þar í landi og telja stjórnmálaskýrendur að forsætisráðherra landsins leggi stjórnmálaferil sinn að veði með því að draga ekki í land í málinu. 22.3.2006 10:15
Æðsti klerkur Írana vill ræða við Bandaríkjamenn Ali Khamenei, æðsti klerkur í Íran, leggur blessun sína yfir hugsanlegar viðræður Bandaríkjamanna og Írana um ástandið í Írak en varar Bandaríkjamenn við því að reyna að ráðskast með Írana. 22.3.2006 10:00
Leiðsla verður lögð Rússar hafa heitið Kínverjum því að leggja rúmlega 4.000 km langa leiðslu svo hægt verði að flytja jarðgas til svæða á Kyrrahafs-ströndinni. Þetta kom fram eftir fund Hu Jintao, forset Kína, og Vladimírs Pútíns, Rússlandsforseta, í Peking snemma í morgun. 22.3.2006 09:15
Breska lögreglan rannsakar verkamannaflokkinn Breska lögreglan rannsakar nú hvort verkamannaflokkur Tonys Blairs, forsætisráðherra, hafi brotið gegn lögum um stjórnmálaflokka. 22.3.2006 09:00
Bandóðir Búddamunkar Lögreglan á Sri Lanka þurfti að loka götum til að hemja meira en hundrað æsta Búddamunka í mótmælagöngu að sendiráði Norðmanna í Colombo á Sri Lanka. Munkarnir kröfðust þess að Norðmenn drægju sig tafarlaust út úr friðarviðræðum í landinu. 21.3.2006 21:32
Um 200 manns handteknir í Hvíta-Rússlandi Lögregla í Hvíta-Rússlandi hefur handsamað yfir tvö hundruð manns síðan á sunnudag en fólkið tók þátt í að mótmæla forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudag. Talið er að um 300 manns séu enn á Októbertorgi í miðborg Minsk, höfuðborgar landsins, þar sem fólkið mótmælir framkvæmd forsetakosninganna og úrslitum þeirra. Töluvert hefur þó fækkað í hópnum vegna mikilla kulda og snjókomu. 21.3.2006 21:30
Stjórnarliðar gengu út af fundi franska þingsins Mikil dramatík ríkti á vikulegum fundi franska þingsins í dag en stjórnarliðar gengu út af honum þegar nýja vinnulöggjöfin var rædd. Reiði braust út þegar þingmaður sósíalistaflokksins sakaði forsætisráðherrann um sjálfselsku í þessu máli. Evrópsk málefni áttu upphaflega að vera umræða þingfundarins. Þingmenn stjórnarandstöðunnar vildu hins vegar halda áfram umræðunni um nýju vinnulöggjöfina. 21.3.2006 20:36
Neitar að tjá sig um brottför hers í Írak George Bush, Bandaríkjaforseti, vill ekkert segja til um hvenær herafli Bandaríkjanna verði farinn frá Írak. Bush var spurður um málið á blaðamannafundi í dag. Bush sagði það verða ákveðið af framtíðarforsetum og framtíðarstjórnum Íraks en Bush lætur af embætti árið 2009. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt góð tíu ár taka að koma á friði í Írak og þangað til verði Bandaríkjaher í landinu. 21.3.2006 18:15
Kynskiptiaðgerð ekki viðurkennd Hæstiréttur í Kúvæt hefur staðfest dóm undirréttar þar í landi sem viðurkennir ekki breytt kyn manns sem gekkst undir kynskiptiaðgerð fyrir tæpum sex árum. Maðurinn lét þá breyta sér í konu. 21.3.2006 15:30
Flugvöllur nefndur eftir George Best Flugvellinum í Belfast á Norður Írlandi verður gefið nafnið George Best, eftir norður-írska knattspyrnukappanum sem lést í nóvember síðastliðnum. 21.3.2006 15:15
10 handteknir eftir bílaeltingaleik Ísraelska lögreglan hefur handtekið tíu menn sem grunur lék á að væru að skipuleggja sjálfsvígsárás. 5 kíló af sprengiefni fundust í bíl þeirra og belti sem notuð eru við sjálfsvígssprengjuárásir. 21.3.2006 15:00
Fuglar bólusettir í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi hafa byrjað að bólusetja fjölda fugla við fuglaflensu. Vonast er til að aðgerðirnar komi í veg fyrir að flensan breist frekar út í Rússlandi. Sjúkdómurinn hefur nú greinst í átta héruðum Rússlands. 21.3.2006 14:45
Enn þungt haldinn Maður sem slasaðist alvarlega í mótmælaaðgerðum vegna nýrrar vinnulöggjafar í Frakklandi um helgina liggur en meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í París. Hann er sagður þungt haldinn. 21.3.2006 14:38
Fjölmargir mótmæla í Minsk Fjölmargir mótmælendur hafa ákveðið að tjalda í nokkrar nætur í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, svo halda megi út sólarhringsmótmælum gegn niðurstöðu forsetakosninganna þar í landi á sunnudag. Eitthvað virðist þó vera að draga úr eldmóð andstæðinga forsetans. Þrír háttsettir stjórnarandstæðingar voru handteknir í gærkvöldi. 21.3.2006 13:00
Grunaðir um stríðsglæpi Tólf bandarískir landgönguliðar í Írak sæta nú rannsókn en þeir eru grunaðir um stríðsglæpi. Þeir eru sakaðir um að hafa myrt fimmtán óbreytta borgara, þar á meðal þriggja ára stúlku, í bænum Haditha í Vestur-Írak í nóvember í fyrra. 21.3.2006 12:45
Tekinn af lífi fyrir að hafna islam Afganskur karlmaður verður líklega tekinn af lífi fyrir að hafa hafnað islam og snúið til kristninnar. Maðurinn var handtekinn í Afganistan í síðasta mánuði eftir að fjölskylda hans sagði til hans. 21.3.2006 10:30
Enn mótmælt í Minsk Mörg hundruð mótmælendur komu saman í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, í nótt til að mótmæla niðurstöðu forsetakosninga þar í landi á sunnudag. Alexander Lúkasjenko var þá endurkjörinn forseti með rúmum 80% atkvæða. 21.3.2006 09:30
Utanríkisráðherra Svía segir af sér Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur sagt af sér. Freivalds er sökuð um ritskoðun og mistök í starfi. 21.3.2006 09:15
Fellibylur kostaði engin mannslíf Svo virðist sem enginn hafi látið lífið þegar fellibylurinn Larry fór yfir strandsvæði í norðaustur Ástralíu í fyrrinótt. Miklar skemmdir urðu í veðurofsanum en aðeins um þrjátíu manns slösuðust. 21.3.2006 09:00
Landgönguliðar sakaðir um morð Tólf bandarískir landgönguliðar í Írak sæta nú rannsókn en þeir eru grunaðir um að hafa framið stríðsglæpi. Þeir eru sakaðir um að hafa myrt fimmtán óbreytta borgara, þar á meðal þriggja ára stúlku, í bænum Haditha í Vestur-Írak í nóvember í fyrra. 21.3.2006 08:15
Tuttugu skæruliðar drepnir í Nepal Nepalskir hermenn drápu að minnsta kosti tuttugu skæruliða maóista í Nepal í morgun. Yfirmaður hersins segir mennina hafa fallið í aðgerðum hersins í vesturhluta landsins, um 80 kílómetra vestur af höfuðborginni, Katmandu. 21.3.2006 08:00
Föst í brunni daglangt Kona þurfti að dúsa daglangt í tæplega tuttugu metra djúpum brunni í bænum Xintai í Kína í gær eftir að hún féll ofan í hann. Á meðan björgunaraðgerðum stóð var súrefni dælt niður til konunnar. 21.3.2006 07:30
Lofar vist í himnaríki ef fólk les Rukhnama þrisvar Forseti Túrkmenistans, hefur lofað unga fólkinu í landinu að það komist til himna, lesi það bók hans „Rukhnama“ þrisvar sinnum. Þetta sagði forsetinn sem gengur undir nafninu Túrkmenbashi, eða faðir allra Túrkmena, á tónleikum sem haldnir voru í tilefni af árlegri vorhátíð þjóðarinnar 20.3.2006 16:55
Dauðadómur vegna kristni Afganskur maður gæti átt yfir höfði sér dauðadóm í heimalandi sínu verði hann fundinn sekur um að hafa hafnað múhameðstrú með því að snúast til kristni. Siðaskipti sem slík teljast glæpur samkvæmt sharia-lögum. 20.3.2006 15:48
Átök í Gasa-borg Vopnaðir liðsmenn Fatah-samtaka Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, tóku um tíma yfir orkuver og lögðu undir sig fjölfarinn veg á Gasa-ströndinni í dag. Aðgerðirnar valda enn meiri gludroða á landsvæði Palestínumanna nú þegar Hamas-liðar búa sig undir að taka við völdum í heimastjórn Palestínumanna. 20.3.2006 14:30
Ekki frjálsar kosningar Framkvæmd forsetakosninganna í Hvíta-Rússlandi í gær fullnægir ekki viðurkenndar kröfur alþjóðasamfélagsins og voru kosningarnar ekki frjálsar og óvilhallar. Þetta er niðurstaða kosningaeftirlistmanna Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. 20.3.2006 13:57
Refsiaðgerðir mögulegar gegn Hvíta-Rússlandi Evrópusambandið segir afar líklegt að gripið verði til einhverra refsiaðgerða gegn Hvíta-Rússlandi í ljósi úrslita forsetakosninga þar í landi í gær. Alexander Lúkasjenko, sitjandi forseti, var endurkjörinn með yfirburðum. Andstæðingar forsetans segja brögð hafa verið í tafli og vilja að boðað verði til nýrra kosninga. 20.3.2006 13:15
Íraksstríðið ástæða brotthvarfs varnarliðsins Bandarískur sérfræðingur um alþjóðasamskipti segir að stríðið í Írak sé ástæða þess að Bandaríkjastjórn leggi svo mikla áherslu á að kalla sveitir og búnað heim frá Íslandi. 20.3.2006 13:00
Aðgerðum í Samarra framhaldið Umfangsmiklar aðgerðir bandarískra og írakskra hersveita nálægt borginni Samarra í Írak halda áfram en þær hófust í síðustu viku. Leiðtogar súnnímúslíma í landinu eru afar reiðir vegna þessa og segja aðgerðirnar varla geta komið á verri tíma þegar verið er að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn í landinu. 20.3.2006 12:45