Erlent

Segir tíma­bært að Úkraína fái sér nýjan for­seta

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Trump og Selenskí takast á um nýjan samning Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning dísilolíu. Myndin er úr safni. 
Trump og Selenskí takast á um nýjan samning Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning dísilolíu. Myndin er úr safni.  AP/Julia Demaree Nikhinson

Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa brugðist vel við harðri gagnrýni Úkraínuforseta á dísilsamning Bandaríkjamanna og Rússa og telur að tími sé til kominn að Úkraína fái sér nýjan forseta „sem kunni að gera samninga.“

Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af dísilolíu. Volódímír Selenskí Úkraínuforseti brást harðlega við samkomulaginu í gær og sagði kaup á rússneskri dísilolíu vera gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði.

Í dag sagði Trump í samtali við fjölmiðla vestanhafs að Selenskí vilji „skapa vandamál fyrir heiminn“ með áframhaldandi árásum Úkraínuhers á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar. Úkraína ætti að fá sér nýjan forseta sem gæti „gert samninga“ og bundið enda á stríðið við Rússa. 

Trump sagði að Selenskí mætti gera það sem honum sýndist utan þess að ráðast á olíuhreinsunarstöðvar Rússa en það hefði áhrif á olíuverð um heim allan. CNN hefur eftir ónefndum embættismanni að Bandaríkin hafi ítrekað biðlað til Úkraínu um að hætta árásum sínum á rússneskar dílishreinsunarstöðvar án árangurs.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ítrekaði víðtækan stuðning við Úkraínu í færslu á X fyrr í dag. 

„Þar á meðal umfangsmikla beitingu refsiaðgerða til að sporna gegn ólögmætu stríði Rússlands og ítrekuðum brotum þess á skuldbindingum sínum samkvæmt sáttmálum og alþjóðalögum. Réttlætið verður að sigra,“ skrifaði Þorgerður Katrín.

Í morgun gerðu Rússar umfangsmikla árás á úkraínsku borgina Saporíssjía. Tuttugu hið minnsta létust, þar af þrjú börn, og átján til viðbótar særðust, segir í umfjöllun Reuters.  Óttast er að fleira fólk kunni að vera fast undir rústum íbúðarhúsa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×