Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Huntley dæmdur í 40 ára fangelsi Hæstiréttur Bretlands hefur dæmt Ian Huntley í fjörutíu ára fangelsi fyrir morðið á hinum tíu ára gömlu Jessicu Chapman og Holly Wells. Stúlkurnar hurfu haustið 2002, en illa farin líkin af þeim fundust í skóglendi hálfum mánuði síðar. Fyrrverandi unnusta Huntleys, Maxine Carr, hafði áður fengið þriggja og hálfs árs dóm fyrir að tefja rannsókn málsins. Hún var látin laus í fyrra og fer nú huldu höfði. 29.9.2005 00:01
Byggðir að sökkva vegna hlýnunar Byggðir í Alaska eru hreinlega að sökkva vegna hlýnunar á norðurslóðum og lífverur eru í vanda á svæðinu vegna breytts umhverfis. 29.9.2005 00:01
Fá að snúa aftur til New Orleans Íbúar New Orleans mega fara að snúa aftur til borgarinnar á morgun, en margir þeirra hafa ekki að neinu að hverfa. 29.9.2005 00:01
Auglýsingar dragi úr sjálfstrausti Þrír af hverjum fjórum foreldrum í norrænu ríkjunum telja að auglýsingar sem beint er til barna og ungmenna veiki sjálfstraust þeirra. 29.9.2005 00:01
Mæla með viðræðum við Serba Sendimenn á vegum Evrópusambandsins gáfu í dag grænt ljós á að hefja undirbúningsviðræður við Serba og Svarfellinga um inngöngu þeirra í sambandið. Áður en viðræðurnar hefjast verða þó utanríkisráðherrar Evrópusambandslandanna að samþykkja þær en búist er við að þeir geri það á mánudaginn, en þá verða hér um bil liðin fimm ár frá því að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, var komið frá völdum. 29.9.2005 00:01
Wolfgang snýr aftur á flokksþing Walter Wolfgang, öldungurinn sem var hent út af þingi Verkamannaflokksins í Bretlandi í gær fyrir að grípa frammi í fyrir Jack Straw utanríkisráðherra, mætti aftur sigurreifur á ráðstefnuna í dag eftir að bæði Verkamannaflokkurinn og Tony Blair höfðu beðið hann afsökunar. Wolfgang, sem er 82 ára, var hent út af þinginu eftir að hann greip frammi fyrir Straw þegar hann var að verja innrásina í Írak og sagði orð ráðherrans kjaftæði. 29.9.2005 00:01
Biðjast afsökunar á aðild sinni Forráðmenn hollenska lestarkerfisins hafa í fyrsta sinn beðist afsökunar á því að hollenskar lestir skyldu hafa verið notaðar til að flytja gyðinga í útrýmingarbúðir nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Talið er að um hundrað þúsund gyðingar hafi verið sendir með hollenskum lestum í búðir í Austur-Evrópu en margir þeirra áttu ekki afturkvæmt. 29.9.2005 00:01
Ahtisaari er líklegur Miklar getgátur eru nú uppi um hver mun hreppa Friðarverðlaun Nóbels, en tilkynnt verður um hverjir tilnefndir eru 7. október næstkomandi. 29.9.2005 00:01
Kjósa um friðarsamkomulag Íbúðar Norður-Afríkulandsins Alsír kusu í gær um friðarsamkomulag, sem ríkisstjórnin trúir að muni hjálpa landinu við að rétta úr kútnum eftir 13 ára uppreisn heittrúaðra íslamstrúarmanna. Andstæðingar segja hins vegar að samkomulagið muni einungis hvítþvo glæpina sem áttu sér stað á þessum árum. 29.9.2005 00:01
Hollensku lögin rýmkuð Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því. 29.9.2005 00:01
Hollensku lögin rýmkuð Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því. 29.9.2005 00:01
Hlaut afgerandi kosningu Tilnefning John Roberts í stöðu hæstaréttardómara í Bandaríkjunum, var staðfest í öldungadeild Bandaríkjaþings í dag. Ákvörðun Georg Bush um að tilnefna Roberts var mjög umdeild á sínum tíma en hann fékk engu að síður afgerandi kosningu. 29.9.2005 00:01
50 látnir - 100 særðir Að minnsta kosti 50 manns eru sagðar látnir og 100 særðir eftir að röð bílsprengna sprakk norður af Bagdad fyrir stundu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um ódæðið að svo stöddu. 29.9.2005 00:01
Fóstur í póstsendingu Lögreglumönnum rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar þrjú fóstur fundust í póstsendingu á leið til Miami í gær. </font /> 29.9.2005 00:01
Brjótast milli heimsálfa Í það minnsta tveir létust þegar um sex hundruð manns reyndu að brjóta sér leið til Spánar yfir landamæri Marokkós. 29.9.2005 00:01
Fá að snúa til baka Fleiri íbúar New Orleans mega snúa aftur til borgarinnar á morgun, en margir þeirra hafa ekki að neinu að hverfa. Sum hverfi hafa hreinlega þurrkast út. Íbúar átta tiltekinna póstnúmerasvæða mega vitja heimila sinna snemma í fyrramálið. 29.9.2005 00:01
Huntley-dómur staðfestur Hæstiréttur Bretlands hefur staðfest fjörutíu ára fangelsisdóm yfir Ian Huntley sem myrti vinkonurnar Jessicu Chapman og Holly Wells. 29.9.2005 00:01
Skógareldar í Kaliforníu Miklir skógareldar geisa nú við Los Angeles. Þrettán hundruð slökkviliðsmönnum gengur lítið sem ekkert að ráða við þá. 29.9.2005 00:01
Bretum blöskrar óhollustan Bretum blöskrar óhollustan í grunnskólum landsins og vilja hamborgara og pítsur burt úr mötuneytunum með lögum hið snarasta. Sælgæti, snakk og gos í skólastofunni mun einnig heyra sögunni til 29.9.2005 00:01
Töf á aðildarsamningum við Tyrki? Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, segir að samninganefnd Tyrklands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði ekki send til að hefja viðræðurnar nema henni berist fyrst skjalið sem geymir samningsumboð ESB. "Auðvitað er hugsanlegt að viðræðurnar hefjist ekki," sagði hann, en áformað var að þær hæfust á mánudag. 29.9.2005 00:01
Yfir 60 manns sprengdir í Írak Þrír sjálfsmorðssprengjumenn sprengdu í gær nær samtímis bílsprengjur í bæ norður af Bagdad, þar sem flestir íbúar eru sjía-múslimar. Að minnsta kosti sextíu manns létu lífið og um 70 særðust, að því er sjúkrahúslæknir greindi frá. Fimm bandarískir hermenn féllu í sprengingu í bæ í vesturhluta landsins. 29.9.2005 00:01
Abu Ghraib-myndir skulu afhentar Aðgangur skal veittur að áður óbirtum ljósmyndum af misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad. Þetta var niðurstaða bandarísks alríkisdómara í New York, en hann gekk þvert á vilja bandarískra stjórnvalda sem segja dreifingu myndanna skaða ímynd Bandaríkjanna. 29.9.2005 00:01
Lögregla ásökuð um gripdeildir Talsmenn lögreglunnar í New Orleans greindu frá því í gær að hafin væri rannsókn á því hvað hæft væri í ásökunum um að á annan tug lögreglumanna hefðu gerst sekir um þátttöku í gripdeildum í ringulreiðinni í kjölfar fellibylsins Katrínar. 29.9.2005 00:01
Kanadaher haldið á horriminni Kanadíski herinn er "veiklaður" og allt of litlu fjármagni er varið til varna landsins. Þetta er niðurstaða skýrslu sem unnin var á vegum öldungadeildar kanadíska þingsins og birt var í gær. 29.9.2005 00:01
Næstæðsti maður al-Qaida drepinn Bandarískar og íraskar öryggissveitir hafa ráðið annan valdamesta yfirmann innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Bagdad af dögum. Abdullah Abu Azzam er talinn hafa skipulagt fjölda sjálfsmorðsárása í borginni síðan í apríl sem orðið hafa hundruðum að bana en fimmtíu þúsund dollarar voru settir honum til höfuðs eða rúmlega þrjár milljónir króna. 28.9.2005 00:01
England dæmd í 3 ára fangelsi Lynndie England, sem í gær var fundin sek um að hafa misþyrmt og niðurlægt íraska fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi. Baðst England afsökunar á framferði sínu eftir að dómurinn var kveðinn upp en sagðist jafnframt hafa gert það að undirlagi þáverandi unnusta síns, sem einnig var hermaður. 28.9.2005 00:01
Vara við flóðum vegna fellibyls Yfirvöld í Víetnam gáfu í dag út flóðaviðvaranir í kjölfar þess að fellibylurinn Damrey reið yfir norður- og miðhluta landsins. Þegar hafa fimm látist af völdum fellibylsins í landinu. Yfirvöld höfðu komið upp sjóvarnargörðum til þess að reyna að koma í veg fyrir flóð vegna fellibylsins en skörð komu í garðana þannig að það flæddi m.a. yfir hrísgrjónaakra á svæðinu. 28.9.2005 00:01
Tilbúnir til viðræðna við Taívana Kínversk stjórnvöld segjast tilbúin hvenær sem er til að hefja viðræður við Taívan um samband þessara tveggja þjóða. Li Wei Yi, talsmaður Kína í málum Taívana, sagði í yfirlýsingu sem stjórnvöld sendu frá sér í gær að mikilvægt væri fyrir báða aðila að gott samkomulag væri þarna á milli og að unnið yrði í því að bæta þau. 28.9.2005 00:01
Rafmagn fór af Gasaborg eftir árás Allt rafmagn fór af Gasaborg eftir að Ísraelsher skaut tugum eldflauga á svæðið í gærkvöld skömmu eftir að herskáir Palestínumenn höfðu lofað að hætta árásum en síðan skotið eldflaug á Ísrael. 28.9.2005 00:01
Mannskætt rútuslys í Perú Að minnsta kosti átján manns létust og 40 slösuðust þegar tvær rútubifreiðar lentu í árekstri á hraðbraut í Perú í gærkvöld. Slysið varð 270 kílómetra suður af höfuðborginni Lima þegar önnur rútan reyndi að fara fram úr bíl en ók þá í veg fyrir aðra rútu sem kom úr gagnstæðri átt. 28.9.2005 00:01
Tekinn af lífi fyrir morð Alan Matheney var tekinn af lífi í Indiana í Bandaríkjunum í nótt að íslenskum tíma. Matheney var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni. Morðið framdi hann árið 1989 þegar hann fékk átta klukkustunda langt leyfi úr fangelsi þar sem hann afplánaði fyrri fangelsisdóm fyrir að hafa ráðist á eiginkonuna fyrrverandi, nauðgað henni og skilið eftir nær dauða en lífi. 28.9.2005 00:01
Leituðu músar í flugvél Heldur óvenjulegur laumufarþegi fannst í flugvél á vegum Qatar Airways þegar verið var að undirbúa flugtak frá flugvellinum í Maníla á dögunum. Einn úr áhöfinni kom þá auga á litla mús sem skaust á milli sæta í farþegarými vélarinnar. Flugstjórinn greip til þess ráðs að skipa öllum 250 farþegunum að fara út út vélinni á meðan reynt var að ná nagdýrinu. 28.9.2005 00:01
Margir særðir eftir sprengjuárás <font size="2"> Sjálfsmorðssprengjuárás var gerð við nýliðaskráningu í bænum Tal Afar í Írak rétt í þessu. Árásarmaðurinn lést sjálfur í árásinni og að minnsta kosti sautján manns særðust í árásinni. Engar fréttir hafa enn borist af því að aðrir en árásarmaðurinn hafi farist í árásinni. </font> 28.9.2005 00:01
Hyggjast banna ruslfæði í skólum Ruth Kelly, menntamálaráðaherra Bretlands, tilkynnir í dag á þingi Verkamannaflokksins að til standi að banna allt ruslfæði í breskum skólum innan árs í viðleitni til að bæta heilsu breskra barna. Umræða um hollari máltíðir í skólum komst í hámæli í kosningunum í Bretlandi í vor en þá vakti sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver athygli á málinu og hefur hann leitt baráttuna fram til þessa. 28.9.2005 00:01
Nýr landsstjóri í Kanada Michaëlle Jean sór í gær embættiseið sem nýr landsstjóri í Kanada en hún er fyrsti blökkumaðurinn sem gegnir þessu embætti. Skipan hennar hefur verið vel tekið víðast hvar í Kanada en var þó ekki óumdeild. Landsstjórinn er fulltrúi Bretadrottningar sem er eiginlegur þjóðhöfðingi Kanada. 28.9.2005 00:01
Ósátt við að sleppa úr fangelsi Sylvia Hardy, 73 ára ensk kona á eftirlaunum, var allt annað en sátt þegar henni var sleppt úr fangelsi, tveimur dögum eftir að hún hóf afplánun vikulangs fangelsisdóms. Hardy neitað að borga andvirði tæpra 6000 króna í skatta í mótmælaskyni við skattahækkanir sveitarfélagsins síns. 28.9.2005 00:01
Lögreglustjóri New Orleans hættir Lögreglustjórinn í New Orelans hefur sagt starfi sínu lausu, fjórum vikum eftir að fellibylurinn Katrín reið þar yfir. Samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins gaf hann engar skýringar á brotthvarfi sínu og þá neitaði hann að svara spurningum fréttamanna um málið. 28.9.2005 00:01
Skortur á iðrun kostnaðarsamur Reiði og streita í kjölfar bílslysa kostar bresk tryggingfélög og bíleigendur miljónir punda á hverju ári. Nýleg bresk rannsókn bendir til þess að skortur á iðrun og þá afsökun ökumanna sem valda umferðaslysum leiði til þess að ökumenn ýkja bæði líkamlega áverka og tjón á farartækjum. 28.9.2005 00:01
Aftur ráðist á ráðningarstöð Að minnsta kosti sjö létust og 37 særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við ráðningarstöð írakska hersins í bænum Tal Afar nærri landamærum Sýrlands í dag. Nokkur fjöldi manna var á staðnum að skrá sig í herinn þegar árásin var gerð, en sams konar árás var gerð við ráðningarstöð í bænum Bakúba í gær. Þar létust tíu og 30 særðust. 28.9.2005 00:01
Birgja sig upp af fuglaflensulyfi Yfirvöld á Taílandi hafa komið sér upp miklum birgðum af lyfinu Tamiflu sem er eina þekkta lyfið sem hægt er að nota gegn fuglaflensu í mönnum. Með þessu vilja stjórnvöld vera við öllu búin ef veikin verður að faraldri í landinu, en fuglaflensa greindist í fólki í landinu á síðasta ári. 28.9.2005 00:01
Viðræður hefjast á ný í Þýskalandi Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtog Kristilegra demókrata, hefja í dag aftur viðræður um myndun samsteypustjórnar í Þýskalandi í kjölfar kosninga til þýska sambandsþingsins 18. september síðastliðinn. Viðræður hófust í síðustu viku en upp úr þeim slitnaði þar sem bæði Merkel og Schröder gerðu bæði tilkall til kanslaraembættisins, en fylkingar þeirra fengu svipað fylgi í kosningunum. 28.9.2005 00:01
Írakar reiðir vegna dóms Reiði braust út meðal almennings í Írak þegar kunnugt varð að Lynndie England fengi aðeins þriggja ára fangelsisdóm fyrir að misþyrma og niðurlægja írakska fanga í Abu Ghraib fangelsinu. 28.9.2005 00:01
Hryllingssögur hafi verið ýktar Komið hefur í ljós að hryllingssögur frá New Orleans í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín reið yfir suðurströnd Bandaríkjanna voru orðum auknar eða jafnvel uppspuni frá rótum. Þetta þykir áfall fyrir bandaríska fjölmiðla. 28.9.2005 00:01
Járnaldarfrú finnst í Danmörku 1600 ára gamalt lík af konu fannst í Taastrup í Danmörku á mánudag. Konan, sem hefur nú hlotið hefur nafnið Járnaldarfrúin, hefur að líkindum verið öldruð þegar hún lést, en líkið hefur varðveist mjög vel. Það sama gildir um dýrindis perluklæði hennar og skartgripi sem þykja benda til að hún hafi verið af háum stigum. 28.9.2005 00:01
Ráðist á hersveitir í Kabúl Níu létust og 27 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás á afganskar hersveitir í Kabúl fyrir stundu. Ekki hafa enn borist fregnir af því hver ber ábyrgð á árásinni. Hermennirnir sátu í rútu á leið frá þjálfunarbúðum í útjarðri borgarinnar. Þrjár aðrar rútur skemmdust í sprengingunni. 28.9.2005 00:01