Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Katrín þriðja stigs fellibylur Miðja fellibylsins Katrínar er nú aðeins um þrjátíu kílómetra austsuðaustur af New Orleans, en áhrifa hans er þegar farið að gæta óþyrmilega í borginni. Vindurinn sem fylgir bylnum finnst í allt að tvö hundruð kílómetra fjarlægð frá miðju hans, en vindhraðinn næst miðjunni er um 200 kílómetrar á klukkustund. 29.8.2005 00:01
Rúmenar hraði umbótum Ef rúmensk stjórnvöld hraða ekki umbótum í landinu verður inngöngu þess í Evrópusambandið seinkað um ár, fram til 2008. Það er ýmislegt sem vantar upp á en embættismenn segja að meðal þess sem verði að batna sé dómskerfið, samkeppnislögin, skipulag landbúnaðarins og umhverfismál. 29.8.2005 00:01
Rændu peningabíl í Stokkhólmi Fjórir vopnaðir og hettuklæddir menn rændu peningaflutningabíl á hraðbraut í suðurhluta Stokkhólms um hádegisbilið í dag. Ekki er ljóst hvort og þá hversu mikið þeir höfðu á brott með sér. 29.8.2005 00:01
Samstaða um lagabreytingar Þverpólitísk samstaða er um það að breyta lögum um ríkiserfðir í Danmörku þannig að fyrsta barn Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprisessu verði erfingi krúnunnar hvort sem það verður stelpa eða strákur. Frá þessu greindi Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í dag eftir fund með leiðtogum annarra þingflokka. 29.8.2005 00:01
Rafmagnsleysi víða í New Orleans Áhrifa fellibylsins Katrínar er nú farið að gæta óþyrmilega í New Orleans. Tveggja metra djúpt vatn flæðir nú um hluta borgarinnar, stór hluti er rafmagnslaus og þakplötur og allt lauslegt fýkur á ofsahraða um göturnar. 29.8.2005 00:01
Fundu lík af 13 mönnum í Írak Íröksk lögregla greindi frá því í dag að hún hefði fundið lík af 13 mönnum í þremur bæjum í vesturhluta landsins, Falluja, Saqlawiya og Karma. Hún greindi hins vegar ekki frá því af hverjum líkin voru eða hvernig fólkið hefði dáið. Fjölmörg lík hafa fundist í Írak undanfarna mánuði, flest þeirra af fólki sem hefur verið tekið af lífi, og óttast sumir að það sé undanfari borgarastríðs milli ólíkra trúarhópa í landinu. 29.8.2005 00:01
Vilja verða þrettánda eiginkonan Fimmtíu þúsund konur dönsuðu í dag berar að ofan fyrir framan Mswati III, konung Svasílands, allar í von um að verða valdar sem þrettánda eiginkona konungsins. Ein dansmeyjanna, Zodwa Mamba, sextán ára, sagðist vilja lifa þægilegu lífi, eiga peninga, BMW-bifreið og farsíma. Hver og ein eiginkvennanna tólf á einmitt sérhöll og BMW. 29.8.2005 00:01
Dregur úr krafti Katrínar Hlutar New Orleans eru á kafi í vatni eftir að fellibylurinn Katrín gekk þar yfir í dag. Hún brunar nú sem leið liggur í átt að Austurströndinni og er orðin fellibylur af stærðargráðu tvö. 29.8.2005 00:01
Þónokkrir Íslendingar á svæðinu Á þessu svæði, þar sem Katrín veldur usla, búa þónokkrir Íslendingar. Flestir sem búa í New Orleans eru flúnir en aðrir halda kyrru fyrir þó að Katrín sé á leiðinni til þeirra. 29.8.2005 00:01
15 flugfélög á svartan lista Frakkland og Belgía hafa birt lista yfir þau flugfélög sem fá ekki að lenda þar. Svissnesk yfirvöld hyggjast birta sambærilega lista í dag. Tilgangurinn er að róa almenning vegna fimm alvarlegra flugslysa undanfarið. Í einu þeirra létust 160 manns í Venesúela, flestir þeirra franskir ríkisborgarar. 29.8.2005 00:01
Hækkar yfirborð sjávar "Það sem gerir þennan fellibyl svo frábrugðinn öðrum er kannski fyrst og fremst staðurinn þar sem hann ber að," segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 29.8.2005 00:01
Telur möguleika sína hafa aukist Mikil spenna ríkir í Noregi vegna þingkosninganna þar eftir tvær vikur, og ekki síður vegna stjórnarmyndunar í kjölfarið. Kjell Magne Bondevik segir í viðtali við Stöð 2 að möguleikar sínir til að halda velli sem forsætisráðherra séu að aukast en Jens Stoltenberg, leiðtogi jafnaðarmanna, hefur þótt líklegur til að velta honum úr sessi. 29.8.2005 00:01
Lokað vegna hótunar Flugvél var rýmd og flugvelli var lokað í Japan í gær vegna sprengjuhótunar. Vélin var að leggja af stað frá Sendai í Norður-Japan til Sapporo þegar símtal barst um að sprengja væri um borð og var vélin þá rýmd þegar í stað. 29.8.2005 00:01
Chavez vill framsal Hugo Chavez, forseti Venesúela, útilokar ekki að farið verði fram á framsal sjónvarpspredikarans Pat Robertson eftir að hann lýsti þeirri skoðun sinni að bandarísk stjórnvöld ættu að láta ráða Chavez af dögum. 29.8.2005 00:01
Schröder sigurviss Gerhard Schröder Þýskalandskanslari er bjartsýnn á að flokkur hans verði enn við völd að loknum kosningunum 18. september. 29.8.2005 00:01
Þrjátíu slösuðust í sprengingu Sprengja sprakk um borð í farþegaferju við Basilan-eyju á Filippseyjum á sunnudaginn og slösuðst þrjátíu manns. 29.8.2005 00:01
Geislavirk efni á glámbekk Ástralskir vísindamenn hafa fundið talsvert magn geislavirkra efna í tveimur Asíulöndum sem skilin hafa verið eftir á glámbekk. 29.8.2005 00:01
Enn mótmæla súnníar Þúsundir súnnía mótmæltu stjórnarskrárfrumvarpi Íraks sem afgreitt var úr þinginu á sunnudaginn þvert á vilja þeirra. Óttast er að deilurnar milli þjóðarbrotanna í landinu magnist enn. 29.8.2005 00:01
Fordæmalaust eignatjón Tjónið af völdum fellibylsins Katrínar sem gekk á land á suðurströnd Bandaríkjanna í gær er talið geta numið allt að 1.600 milljörðum króna. Manntjón vegna óveðursins virðist hins vegar óverulegt. 29.8.2005 00:01
Landnemabyggðum mun fækka á Gaza Landnemabyggðum Ísraela á Vesturbakkanum fækkar þegar gengið verður frá endanlegu friðarsamkomulagi við Palestínumenn, sagði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi. 29.8.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Ísrael Tuttugu særðust þegar palestínskur hryðjuverkamaður gerði sjálfsmorðsárás á umferðarmiðstöð í borginni Beersheba í Ísrael í morgun. Enginn hefur enn sem komið er gengist við árásinni en þetta er fyrsta hryðjuverkaárásin frá því að brotthvarfi Ísraelsmanna frá Gaza-ströndinni lauk í síðustu viku. 28.8.2005 00:01
Hertara eftirlit með flugfélögum Flugmálayfirvöld í Frakklandi, Belgíu og Sviss ætla á næstu dögum að fylgja fordæmi Breta og birta lista yfir þau flugfélög sem að mati stjórnvalda uppfylla ekki settar öryggiskröfur. 28.8.2005 00:01
Súnnítar mótfallnir stjórnarskrá Súnnítar eru enn með öllu mótfallnir drögum að stjórnarskrá Íraks sem Sjítar og Kúrdar lögðu fram í gærkvöldi. Írakska þingið gæti engu að síður samþykkt stjórnarskránna í dag og þar með greitt leiðina að þjóðaratkvæðagreiðslu í október. 28.8.2005 00:01
Utanríkisstefna styrkir öfgamenn Bresk utanríkisstefna og stríðið í Írak hafa hjálpað öfgamönnum úr röðum múslíma að safna nýliðum. Þetta kemur fram í skýrslu breska utanríkisráðuneytisins sem var lekið til fjölmiðla 28.8.2005 00:01
Danir stefna að reykleysi Síðasti danski reykingamaðurinn slekkur í síðustu sígarettunni sinni árið 2027, ef fram heldur sem horfir. Undanfarin ár hefur Dönum sem reykja fækkað jafnt og þétt og verði ekki breyting þar á verða allir hættir að reykja 2027. 28.8.2005 00:01
Íbúar New Orleans flýja Katrínu Íbúar New Orleans flýja nú unnvörpum en fellibylurinn Katrína stefnir þangað hraðbyri. Hún er kröfugusti fellibylurinn sem stefnir á borgina frá 1969. 28.8.2005 00:01
63 slasast í nautahlaupi á Spáni Sextíu og þrír slösuðust og þar af tveir alvarlega í árlegu nautahlaupi í bænum San Sebastian des los Reyes. Hlaupið er með sama sniði og nautahlaupið í Pamplona á Spáni þar sem mannýgum nautum er hleypt út á götur bæjarins innan um mannfjölda sem reynir að forða sér á hlaupum undan árásum nautanna. 28.8.2005 00:01
Mæður í Beslan fá fund með Pútin Rússneskar mæður sem misstu börn sín í umsátrinu og árásinni barnaskólann í Beslan þar sem 331 lét lífið, þar af helmingurinn börn segja að Pútin forsætisráðherra hafi boðað þær á fund annan semptember næstkomandi, næstum ári á eftir atburðinn. 28.8.2005 00:01
Schröder treystir á óákveðna Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, treystir á að óákveðnir kjósendur komi honum til bjargar en miðað við gengi jafnaðarmanna í könnunum eiga þeir litla möguleika í þingkosningum í næsta mánuði. 28.8.2005 00:01
Fréttamenn skotmörk í Írak Fleiri fréttamenn hafa verið drepnir í Írak frá því að stríðið þar hófst í mars 2003 en voru drepnir á tuttugu árum í stríðinu í Víetnam. Sextíu og sex fréttamenn og aðstoðarmenn þeirra hafa verið drepnir í Írak, samkvæmt upplýsingum frá samtökunum Blaðamenn án landamæra. 28.8.2005 00:01
Bresk kona myrt í fjölskylduveislu Kona á þrítugsaldri var skotin til bana í fjölskylduveislu í suðurhluta Lundúna í gærkvöldi. Konan mun hafa haldið á ungabarni þegar hún var skotin. 28.8.2005 00:01
Airbus risaþotan á lofti Hundrað og fimmtíu þúsund manns söfnuðust saman í Hamborg í gær til að fylgjast með fyrstu lendingu risaþotunnar Airbus A-380 þar. Vélin hringsólaði yfir borginni í tuttugu mínútur áður en hún lenti við verksmiðju Airbus í Hamborg, þar sem risavélin verður sett saman í framtíðinni. 28.8.2005 00:01
Fellibylur, skógareldar og flóð Hundruð þúsunda íbúa New Orleans hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín en í allan dag hafa verslunareigendur neglt fyrir glugga og sandpokum verið staflað til að varna skemmdum þegar fellibylurinn Katarína skellur á. 28.8.2005 00:01
Drög að stjórnarskrá lögð fram Drög að stjórnarskrá voru loksins lögð fram í Írak í dag, eftir endurteknar frestanir og langvarandi deilur. Forseti landsins bað almenning um að styðja stjórnarskrána sem öflugir hópast berjast þó gegn. 28.8.2005 00:01
Fuglaflensa í Finnlandi Yfirvöld í Finnlandi tilkynntu um helgina að líklega hefði fundist fuglaflensusmit í mávi í bænum Oulu í norðurhluta landsins. Þrátt fyrir það er talið ólíklegt að vírusinn sem fannst sé af gerðinni H5N 28.8.2005 00:01
Bretar vissu af tengslunum Stjórnvöld í Bretlandi voru vöruð við tengslum milli aukinnar öfgastefnu breskra múslima og stríðsins í Írak fyrir einu ári síðan. Þetta kemur í ljós í bréfi sem breska dagblaðið Observer hefur undir höndum 28.8.2005 00:01
Flýja undan Katrínu Íbúum New Orleans í Bandaríkjunum var í gær skipað að yfirgefa borgina vegna mikillar hættu frá fellibylnum Katrínu sem von er á að gangi yfir borgina í dag. Borgarstjórinn Ray Nagin hvatti íbúa, sem eru um hálf milljón, til að taka viðvörunum alvarlega. 28.8.2005 00:01
Flytja grafir gyðinga Ísraelski herinn hófst í gær handa við að grafa upp 48 grafir gyðinga á Gaza-svæðinu. Hinir látnu verða síðan fluttir til Ísrael og jarðsettir á ný. Þetta er hluti af brottflutningi landtökumanna af Gaza en vika er liðin frá því að lokið var við að rýma 21 byggð landtökumanna á Gaza-svæðinu. 28.8.2005 00:01
Fatlaður fíll fær gervifót Taílenski fíllinn Motola sem hoppað hefur um á þremur fótum í sex ár getur tekið gleði sína á ný því hann hefur fengið gervifót. 28.8.2005 00:01
Sonur Sharon ákærður Omri Sharon, sonur forsætisráðherra Ísraels Ariel Sharon, hefur verið ákærður fyrir spillingu. Hann er grunaður um að hafa haldið leyndum ólöglegum fjárframlögum í einn af kosningasjóðum föður síns með því að nota uppspunnin fyrirtæki. 28.8.2005 00:01
Flestir blaðamenn drepnir í Írak Fleiri blaðamenn hafa verið drepnir frá upphafi stríðsins í Írak en á þeim tuttugu árum sem átökin í Víetnam stóðu yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Blaðamenn án landamæra. 28.8.2005 00:01
Fólk til sýnis Í dýragarðinum í Lundúnum getur þú talað við dýrin, og sum þeirra svara þér líka. Um helgina voru til sýnis í dýragarðinum átta dýr af tegundinni homo sapiens. Þarna voru á ferðinni átta breskir sjálfboðaliðar, þrír karlar og fimm konur, klæddir í sundföt með fíkjulauf sem skýldu viðkvæmustu staði. 28.8.2005 00:01
Fæðir barn í beinni Framleiðendur hollenska Big Brother raunveruleikaþáttarins hafa ákveðið að einn af þátttakendunum muni fæða barn í næstu þáttaröð. Þættirnir sem njóta mikilla vinsælda víða um heim snúast um það að fylgjast með hópi af fólki sem býr í tiltekinn tíma saman í íbúð og fær ekki að fara þaðan nema vera kosið út. 28.8.2005 00:01
Súnníar ákalla alþjóðasamfélagið Íraskir þingmenn ákváðu í gær að vísa drögum að stjórnarskrá landsins til þjóðaratkvæðagreiðslu. Súnníar eru mjög ósáttir við inntak hennar og skora á alþjóðasamfélagið að koma í veg fyrir að hún verði samþykkt. 28.8.2005 00:01
Kjötkveðjuhátið í Notting Hill Kjötkveðjuhátíðin í Notting Hill í Lundúnum hófst í morgun og er búist við því að milljónir taki þátt í gleðinni um helgina. Hátíðin var fyrst haldin 1964, en var þá mestmegnis fyrir börn. Stáltunnusveit frá Trinidad hélt þá uppi gleðinni og enn þann dag í dag hefst hátíðin með stáltunnileik. 27.8.2005 00:01