Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ofurhugi lést í mótorhjólastökki Íranskur ofurhugi lést þegar hann var að reyna að setja heimsmet í því að stökkva á mótorhjóli yfir rútur. 27.8.2005 00:01
Blair úthúðað Múhameðstrúarmaður í útlegð frá Sádí Arabíu sem á á hættu að vera rekinn frá Bretlandi fyrir að halda úti herskárri íslamskri vefsíðu hefur nú lokað vefsíðunni. Mohammed al-Massari heldur því fram að hann hafi gert það af sjálfsdáðum og bresk yfirvöld hafi ekki haft samband við hann. 27.8.2005 00:01
Svínaveiki í Rúmeníu Svínaveiki hefur brotist út í norð-vestur Rúmeníu og hefur þurft að slátra um 30 svínum og loka kjötmörkuðum. 27.8.2005 00:01
Íhuga mál gegn Hollendingum Hollendingar eiga hugsanlega yfir höfði sér málsókn vegna ákvörðunar sinnar um að skylda bændur til að halda alifuglum sínum innan dyra vegna hættunar á fuglaflensusmiti, að því er breska blaðið The Guardian skýrir frá. 27.8.2005 00:01
Eldsvoði í París Sautján létust og minnst þrjátíu slösuðust í miklum eldsvoða sem kom upp í sex hæða íbúðarhúsi í París, höfuðborg Frakklands í nótt. Íbúarnir í húsinu voru allir afrískir innflytjendur, og meira en helmingur þeirra sem létust í eldinum voru börn. 26.8.2005 00:01
Enn frestur vegna stjórnarskrár Enn hefur samninganefnd um nýja stjórnarskrá í Írak verið gefinn frestur til að komast að endanlegri niðurstöðu. Talsmaður írakska þingsins sagði í morgun að samninganefndinni yrði gefinn frestur til miðnættis, en ef niðurstaða næðist ekki fyrir þann tíma myndi stjórnarskráin eins og hún lítur út einfaldlega fara beint í þjóðaratkvæðagreiðslu þann fimmtánda október. 26.8.2005 00:01
Ráðgera kosningar á Sri Lanka Hæstiréttur Sri Lanka ákvað í morgun að forsetakosningar skildu haldnar í landinu síðar á þessu ári. Nokkrar deilur hafa staðið um hvort valdatíma núverandi forseta, Tsjandríka Kúmaratunga, eigi að ljúka á þessu ári eða því næsta. Sjálf vildi Kúmaratúnga halda völdum í eitt ár til viðbótar, en andstæðingar hennar hafa krafist þess að kosið skuli strax á þessu ári. 26.8.2005 00:01
Sænskir jafnaðarmenn auka við sig Sænskir jafnaðarmenn sækja í sig veðrið samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir Dagens Nyheter. Fylgi flokksins var í lágmarki fyrr í sumar eða rétt yfir þrjátíu prósentum, en það er nú komið yfir þrjátíu og fjögur prósent. Stjórnin hefur enda lofað öllu fögru, bæði skattalækkunum og atvinnusköpun. 26.8.2005 00:01
Basajev staðgengill leiðtoga Sjamíl Basajev, maðurinn sem stýrði árásinni á barnaskólan í Beslan í Rússlandi fyrir réttu ári, hefur verið útnefndur staðgengill leiðtoga uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu. Þrjú hundruð og þrjátíu fórust í Beslan, meirihlutinn börn. 26.8.2005 00:01
Fleiri fóstureyðingar en fæðingar Fleiri fóstureyðingar eru í Rússlandi árlega en fæðingar, samkvæmt fréttum rússneskra fjölmiðla. Rússar lifa skemur nú en á tímum kommúnistastjórnarinnar og þeir eru líka fátækari. Ástandið er nú þannig að ellilífeyrisþegar eru mun fleiri en börn og táningar. 26.8.2005 00:01
Fjölgun Gyðinga á Vesturbakkanum Gyðingum sem búa í landnemabyggðum á Vesturbakkanum hefur fjölgað meira en sem nemur þeim fjölda landnema sem fluttir hafa verið frá hernumdum svæðum. 26.8.2005 00:01
Mið-Evrópa á floti Enn er allt á floti víða í Mið-Evrópu þó að rigningin sé að mestu hætt. Á fimmta tug hefur týnt lífi í flóðunum og í Sviss er óttast að fjöldi gamalla bygginga hrynji vegna vatnsflaumsins. 26.8.2005 00:01
Fuglaflensa í Finnlandi Finnsk yfirvöld segja að hugsanlega hafi greinst fuglaflensa í mávum þar í landi. Mávarnir voru veikir eða dauðir við tjörn í bænum Oulu í Norður-Finnlandi þar sem yfirvöld hafa fylgst með fuglum um hríð. 26.8.2005 00:01
Tamílar hæstánægðir Hæstiréttur Srí Lanka úrskurðaði í gær að halda skyldi forsetakosningar á þessu ári. Tíðindin þykja sigur fyrir stjórnarandstöðu Tamíla en að sama skapi áfall fyrir forsetann Chandrika Kumaratunga og stuðningsmenn hennar. Að hennar mati átti kjörtímabilið að vara ári lengur en dómstóllinn komst að annarri niðurstöðu. 26.8.2005 00:01
Hittust eftir hálfa öld Um 150 Suður-Kóreumenn hittu í fyrsta skipti í gær ættingja sína sem búa í Norður-Kóreu eftir rúmlega hálfrar aldar aðskilnað. Á mánudag er svo ráðgert að 430 aðrir Suður-Kóreumenn fari norður að hitta ættingja. 26.8.2005 00:01
Sjö létust í fárviðri Að minnsta kosti sjö létust þegar fellibylurinn Katrín gekk á land á suðurhluta Flórída í fyrrinótt. Tré rifnuðu upp með rótum og yfir ein milljón heimila varð rafmagnslaus í fellibylnum. Vindhraði mældist yfir 40 metrum á sekúndu. Katarína heldur svo á haf út á Mexíkóflóa þar sem óttast er að hún geti valdið skemmdum á olíuborpöllum. 26.8.2005 00:01
Þrjú desdýr drápust Þrjú desdýr af afar sjaldgæfri tegund hafa drepist úr fuglaflensu í þjóðgarði í Víetnam. Er það í fyrsta skipti sem flensan greinist í þessari tegund dýra, að sögn forstöðumanna þjóðgarðsins. 26.8.2005 00:01
Orsaka leitað Hundruð björgunarsveitarmanna hafa síðustu daga grandskoðað hvern krók og kima í flaki Boeing 737-þotunnar sem fórst í Perú á þriðjudagskvöld. Leitað er í farangri, kringum rafleiðslur og í braki að hverri þeirri vísbendingu sem varpað gæti frekara ljósi á orsakir flugslyssins, sem varð 37 manns að bana. 26.8.2005 00:01
Mjótt á mununum Horfurnar eru tvísýnar fyrir þingkosningarnar í Þýskalandi sem haldnar verða 18. september. 26.8.2005 00:01
Stoltenberg sækir á Verkamannaflokkur Jens Stoltenberg eykur enn á forskot sitt í aðdraganda norsku þingkosninganna 12 september. Hann mælist nú með nær 35 prósent atkvæða. 26.8.2005 00:01
Fílaflutningarnir frestuðust Stærstu fílaflutningar í sögu Keníu standa nú yfir. Hlé hefur hins vegar verið gert á flutningunum þar sem bifreið sem flytja á fílana gaf sig undan þunganum. 26.8.2005 00:01
Pyntaðir til sagna Yfirvöld í Úsbekistan hafa hneppt hundruð manna í varðhald og þvingað þá til að viðurkenna tengsl við íslamska öfgamenn. 26.8.2005 00:01
Bush blandast í umræðurnar Enn er pattstaða í stjórnarskrárgerð Íraks. Sjíar og Kúrdar hyggjast leggja plaggið í dóm þjóðarinnar þrátt fyrir mikla andstöðu súnnía við inntak þess. George W. Bush Bandaríkjaforseti blandaði sér í gær í viðræðurnar. 26.8.2005 00:01
Fjórtán börn fórust í brunanum Eldur kom upp í annað sinn á stuttum tíma í húsi afrískra innflytjenda í París og í þetta sinn brunnu sautján manns inni. Aðstæður þessa þjóðfélagshóp eru afar bágbornar. 26.8.2005 00:01
Landnemum fjölgar Ísraelskum landtökumönnum á Vesturbakkanum hefur fjölgað umtalsvert undanfarin misseri. 26.8.2005 00:01
Fjórðungur of feitur Sílspikuðum Bandaríkjamönnum fjölgar hraðar en nokkru sinni fyrr og lætur nærri að fjórðungur landsmanna glími við offitu. 57 prósent íslenskra karla eru yfir kjörþyngd. 26.8.2005 00:01
Hátt í 40 látnir í flóðum í Evrópu Nærri fjörutíu manns hafa látist af völdum mikilla flóða í Evrópu undanfarna fjóra daga. Björgunarsveitarmenn um alla álfuna standa nú í stórræðum vegna flóðanna sem ekki virðist ætla að linna alveg í bráð. Verst er ástandið í Rúmeníu, þar sem 1400 hús hafa eyðilagst þegar ár hafa flætt yfir bakka sína í úrhellisrigningu. Minnst 25 hafa farist þar. 25.8.2005 00:01
Dómstóll samþykkir kosningar Æðsti sambandsdómstóll Þýskalands komst í morgun að þeirri niðurstöðu að það væri lögmætt að boða til kosninga í landinu þann 18. september. Nokkrir samflokksfélagar Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, höfðu vefengt réttmæti þess að leysa upp þingið og boða til kosninganna þegar í september, en eftir úrskurðinn í morgun er nokkuð ljóst að kosningarnar verða haldnar hvað sem tautar og raular. 25.8.2005 00:01
Fjölga hermönnum í Írak Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur ákveðið að fjölga enn í herliði sínu í Írak. Fimmtán hundruð bandarískir hermenn til viðbótar verða sendir til Írak áður en þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá landsins verður haldin. Þegar eru 138 þúsund bandarískir hermenn í Írak, en þar sem óttast er að stjórnarskráin valdi enn frekari ólgu þótti réttast að bæta enn í hópinn. 25.8.2005 00:01
Átök á Vesturbakkanum Fimm manns féllu í átökum Palestínumanna og Ísraela í Jerúsalem og á Vesturbakkanum í gær. Ísraelski herinn skaut fjóra palestínska uppreisnarmenn til bana seint í gærkvöldi. Að sögn talsmanns hersins voru mennirnir fjórir allir hryðjuverkamenn, sem meðal annars stóðu nýlega fyrir tveimur sprengjuárásum í Ísrael. Fyrr um kvöldið stakk palestínskur uppreisnarmaður tvo öfgafulla gyðinga í Jerúsalem. Annar þeirra lést af sárum sínum. 25.8.2005 00:01
58 lifðu af flugslys í Perú Að minnsta kosti 58 manns komust lífs af úr flugslysinu í Perú í fyrradag. Nú hefur verið staðfest að 37 létust en ekki 41 eins og talið var í fyrstu. Þriggja er enn saknað. Orsakir flugslyssins eru enn ókunnar, en veður var slæmt og allt bendir til þess að flugmaðurinn hafi ætlað að reyna að lenda á hraðbraut en ekki náð að hitta á hana. 25.8.2005 00:01
Olíufatið yfir 67 dali í gær Olíuverð heldur áfram að hækka. Í gær fór heimsmarkaðsverðið yfir 67 dollara á fatið og hefur ekki verið hærra í mörg ár. Ástæða hækkunarinnar í gær er einkum ótti við hvirfilbyl nærri olíuverksmiðjum í Mexíkó. Þá hafa verkföll olíustarfsmanna í Ekvador og aðgerðir uppreisnarmanna í Írak einnig sitt að segja. 25.8.2005 00:01
Skutu gesti á kaffihúsi Sex óbreyttir borgarar létust og fimmtán særðust, flestir eldri karlar, þegar byssumenn réðust inn á vinsælt kaffihús í smábæ norður af Bagdad í morgun og hófu skotrhríð. Flestir gestanna sátu og borðuðu morgunmat þegar árasin átti sér stað. Ekki er ljóst hverjir stóðu á bak við árásina en þeir sem lifðu hana af töldu íslamska uppreisnarmenn hafa verið þar á ferð. 25.8.2005 00:01
Búa til svartan lista yfir félög Frakkar hyggjast búa til og birta opinberlega svartan lista yfir flugfélög og lönd sem eiga lélega sögu í flugöryggismálum. Félögunum sem rata á listann verður ekki leyft að lenda á flugvöllum í Frakklandi. 25.8.2005 00:01
Schröder hafi ekki brotið lög Æðsti dómstóll Þýskalands hefur úrskurðað að Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og flokkur hans hafi ekki brotið stjórnarskrána með því að fella eigin stjórn með vantrauststillögu á þingi. Þingkosningar verða því 18. september eins og ráð var fyrir gert. 25.8.2005 00:01
Stjórnarskrá hafi verið samþykkt Búið er að leggja lokahönd á stjórnarskrá Íraks og verður hún samþykkt síðar í dag. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir Laith Kubba, talsmanni ríkisstjórnar Íraks. Upphaflega átti stjórnarskráin að liggja fyrir á mánudaginn í síðustu viku en þar sem ekki hafði náðst samkomulag meðal ólíkra þjóðarbrota í landinu um hana fékk samninganefnd vikufrest til þess að ljúka málinu. 25.8.2005 00:01
Reynt að ráða ráðherra af dögum Ibrahim Malsagov, forsætisráðherra Ingúsetíu í Suður-Rússlandi, særðist í dag þegar sprengja sprakk nærri bifreið hans í bænum Nazran í héraðinu. Einn lífvarða forsætisráðherrans lést í tilræðinu og þá særðust tveir til viðbótar. 25.8.2005 00:01
Lögreglumenn látast við leit Tveir egypskir lögreglumenn létust í dag þegar tvær jarðsprengjur sprungu á svæði á Sínaískaga þar sem lögregla leitar þeirra sem stóðu að sprengjutilræði í Sharm el-Sheikh í síðasta mánuði. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem jarðsprengja springur á svæðinu en í gær skemmdist brynvarinn bíll og þrír lögreglumenn særðust í leit sinni að hryðjuverkamönnunum. 25.8.2005 00:01
Fundu 36 lík í skurði í Írak Lögreglan í Írak fann í dag lík af 36 mönnum sem teknir höfðu verið af lífi með skoti í höfuðið í skurði nærri bænum Kut. <em>BBC</em> hefur eftir talsmanni lögreglunnar að fólkið hafi verið á aldrinum 25-35 ára og hafði það allt verið handjárnað með hendur fyrir aftan bak. Þá bendir ástand líkanna til þess að það hafi verið drepið fyrir fjórum til fimm dögum. 25.8.2005 00:01
Kókabændur myrtir Skæruliðar myrtu að minnsta kosti fjórtán bændur, þrettán karla og eina konu, sem voru við að tína uppskeru af kókarunnum í Norðvestur-Kólumbíu í gær. Skæruliðarnir eru meðlimir í samtökum sem kalla sig Byltingarher Kólumbíu. 25.8.2005 00:01
Tilræði við ráðherra Tvær sprengjur sprungu við vegkant í borginni Nazran í múslimafylkinu Ingushetia í Rússlandi í gær þegar forsætisráðherra fylkisins var ekið hjá. Fylkið á landamæri að Téténíu. Bílstjóri forsætisráðherrans lést í tilræðinu og forsætisráðherran sjálfur ásamt tveimur öðrum slasaðist nokkuð við sprenginguna. 25.8.2005 00:01
Svíakóngur í árekstri Karl Gústaf Svíakonunungur lenti í árekstri á silfurlitaðri BMW-bifreið sinni í gær. Hann ók aftan á bláan Volvo utan við hamborgarastaðinn Max í miðborg Norrköping skömmu fyrir hádegið. 25.8.2005 00:01
Löglega boðað til kosninganna Hæstiréttur Þýskalands úrskurðaði í gær að fyrirhugaðar þingkosningar mættu fara fram 18. september eins og ráðgert hafði verið. Tveir þingmenn höfðu lagt fram kvörtun þar sem þeir efuðust um lögmæti þess hvernig Gerhard Schröder boðaði til kosninganna í sumar. 25.8.2005 00:01
Olíuverð hækkar enn Heimsmarkaðsverð á hráolíufatinu fór upp í 68 Bandaríkjadali í gær og hefur aldrei verið hærra. 25.8.2005 00:01
Mestu dýraflutningar sögunnar Yfirvöld í Kenía hófu í dag að flytja 400 fíla af friðlýstu svæði í landinu við strendur Indlandshafs vegna plássleysis. Um 600 fílar eru í Shimba Hills á svæði sem aðeins ber 200 fíla, en fílarnir hafa að undanförnu valdið nokkrum búsifjum hjá bændum á svæðinu. Fílarnir eru fyrst svæfðir en ætlunin er að flytja eina fjölskyldu á dag á sérstyrktum vörubílum í Tsavo East þjóðgarðinn sem er sá stærsti í landinu. 25.8.2005 00:01