Rændu peningabíl í Stokkhólmi 29. ágúst 2005 00:01
Fjórir vopnaðir og hettuklæddir menn rændu peningaflutningabíl á hraðbraut í suðurhluta Stokkhólms um hádegisbilið í dag. Eftir því sem fram kemur á fréttavef sænska blaðsins Aftonbladet stöðvuðu mennirnir fjórir flutningabílinn, sem var á vegum Securitas, á hraðbrautinni og þvinguðu tvo verði út úr bílnum. Í kjölfarið sprengdu þeir upp læsinguna á bílnum en ekki er ljóst hvort og þá hversu mikið þeir höfðu á brott með sér. Ránið virðist hafa verið þaulskipulagt því á flóttanum kveiktu ræningjarnir í sex bílum og dreifðu nöglum á hraðbrautina svo ekki væri hægt að veita þeim eftirför. Þurfti lögregla því í fyrstu að nota vélhjól og þyrlur til þess að reyna að hafa hendur í hári þeirra. Engan sakaði í hamaganginum en hraðbrautin var lokuð í allnokkurn tíma eftir ránið. Upp úr klukkan eitt náðist einn ræningjanna en lögregla leitar enn þá hinna þriggja. Þá hefur lögreglan einnig fundið tösku á hraðbrautinni merkt orðinu sprengja og telur hún hugsanlegt að mennirnir hafi geymt þar sprengjur sem þeir notuðu til að sprengja upp peningaflutningabílinn og nokkra flóttabíla. Fyrr í dag var framið annað rán í grenndinni en lögregla veit ekki hvort ránin tengjast.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira