Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Súnnítar mótfallnir stjórnarskrá Súnnítar eru enn með öllu mótfallnir drögum að stjórnarskrá Íraks sem Sjítar og Kúrdar lögðu fram í gærkvöldi. Írakska þingið gæti engu að síður samþykkt stjórnarskránna í dag og þar með greitt leiðina að þjóðaratkvæðagreiðslu í október. 28.8.2005 00:01
Utanríkisstefna styrkir öfgamenn Bresk utanríkisstefna og stríðið í Írak hafa hjálpað öfgamönnum úr röðum múslíma að safna nýliðum. Þetta kemur fram í skýrslu breska utanríkisráðuneytisins sem var lekið til fjölmiðla 28.8.2005 00:01
Danir stefna að reykleysi Síðasti danski reykingamaðurinn slekkur í síðustu sígarettunni sinni árið 2027, ef fram heldur sem horfir. Undanfarin ár hefur Dönum sem reykja fækkað jafnt og þétt og verði ekki breyting þar á verða allir hættir að reykja 2027. 28.8.2005 00:01
Íbúar New Orleans flýja Katrínu Íbúar New Orleans flýja nú unnvörpum en fellibylurinn Katrína stefnir þangað hraðbyri. Hún er kröfugusti fellibylurinn sem stefnir á borgina frá 1969. 28.8.2005 00:01
63 slasast í nautahlaupi á Spáni Sextíu og þrír slösuðust og þar af tveir alvarlega í árlegu nautahlaupi í bænum San Sebastian des los Reyes. Hlaupið er með sama sniði og nautahlaupið í Pamplona á Spáni þar sem mannýgum nautum er hleypt út á götur bæjarins innan um mannfjölda sem reynir að forða sér á hlaupum undan árásum nautanna. 28.8.2005 00:01
Mæður í Beslan fá fund með Pútin Rússneskar mæður sem misstu börn sín í umsátrinu og árásinni barnaskólann í Beslan þar sem 331 lét lífið, þar af helmingurinn börn segja að Pútin forsætisráðherra hafi boðað þær á fund annan semptember næstkomandi, næstum ári á eftir atburðinn. 28.8.2005 00:01
Schröder treystir á óákveðna Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, treystir á að óákveðnir kjósendur komi honum til bjargar en miðað við gengi jafnaðarmanna í könnunum eiga þeir litla möguleika í þingkosningum í næsta mánuði. 28.8.2005 00:01
Fréttamenn skotmörk í Írak Fleiri fréttamenn hafa verið drepnir í Írak frá því að stríðið þar hófst í mars 2003 en voru drepnir á tuttugu árum í stríðinu í Víetnam. Sextíu og sex fréttamenn og aðstoðarmenn þeirra hafa verið drepnir í Írak, samkvæmt upplýsingum frá samtökunum Blaðamenn án landamæra. 28.8.2005 00:01
Bresk kona myrt í fjölskylduveislu Kona á þrítugsaldri var skotin til bana í fjölskylduveislu í suðurhluta Lundúna í gærkvöldi. Konan mun hafa haldið á ungabarni þegar hún var skotin. 28.8.2005 00:01
Airbus risaþotan á lofti Hundrað og fimmtíu þúsund manns söfnuðust saman í Hamborg í gær til að fylgjast með fyrstu lendingu risaþotunnar Airbus A-380 þar. Vélin hringsólaði yfir borginni í tuttugu mínútur áður en hún lenti við verksmiðju Airbus í Hamborg, þar sem risavélin verður sett saman í framtíðinni. 28.8.2005 00:01
Fellibylur, skógareldar og flóð Hundruð þúsunda íbúa New Orleans hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín en í allan dag hafa verslunareigendur neglt fyrir glugga og sandpokum verið staflað til að varna skemmdum þegar fellibylurinn Katarína skellur á. 28.8.2005 00:01
Drög að stjórnarskrá lögð fram Drög að stjórnarskrá voru loksins lögð fram í Írak í dag, eftir endurteknar frestanir og langvarandi deilur. Forseti landsins bað almenning um að styðja stjórnarskrána sem öflugir hópast berjast þó gegn. 28.8.2005 00:01
Fuglaflensa í Finnlandi Yfirvöld í Finnlandi tilkynntu um helgina að líklega hefði fundist fuglaflensusmit í mávi í bænum Oulu í norðurhluta landsins. Þrátt fyrir það er talið ólíklegt að vírusinn sem fannst sé af gerðinni H5N 28.8.2005 00:01
Bretar vissu af tengslunum Stjórnvöld í Bretlandi voru vöruð við tengslum milli aukinnar öfgastefnu breskra múslima og stríðsins í Írak fyrir einu ári síðan. Þetta kemur í ljós í bréfi sem breska dagblaðið Observer hefur undir höndum 28.8.2005 00:01
Flýja undan Katrínu Íbúum New Orleans í Bandaríkjunum var í gær skipað að yfirgefa borgina vegna mikillar hættu frá fellibylnum Katrínu sem von er á að gangi yfir borgina í dag. Borgarstjórinn Ray Nagin hvatti íbúa, sem eru um hálf milljón, til að taka viðvörunum alvarlega. 28.8.2005 00:01
Flytja grafir gyðinga Ísraelski herinn hófst í gær handa við að grafa upp 48 grafir gyðinga á Gaza-svæðinu. Hinir látnu verða síðan fluttir til Ísrael og jarðsettir á ný. Þetta er hluti af brottflutningi landtökumanna af Gaza en vika er liðin frá því að lokið var við að rýma 21 byggð landtökumanna á Gaza-svæðinu. 28.8.2005 00:01
Fatlaður fíll fær gervifót Taílenski fíllinn Motola sem hoppað hefur um á þremur fótum í sex ár getur tekið gleði sína á ný því hann hefur fengið gervifót. 28.8.2005 00:01
Sonur Sharon ákærður Omri Sharon, sonur forsætisráðherra Ísraels Ariel Sharon, hefur verið ákærður fyrir spillingu. Hann er grunaður um að hafa haldið leyndum ólöglegum fjárframlögum í einn af kosningasjóðum föður síns með því að nota uppspunnin fyrirtæki. 28.8.2005 00:01
Flestir blaðamenn drepnir í Írak Fleiri blaðamenn hafa verið drepnir frá upphafi stríðsins í Írak en á þeim tuttugu árum sem átökin í Víetnam stóðu yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Blaðamenn án landamæra. 28.8.2005 00:01
Fólk til sýnis Í dýragarðinum í Lundúnum getur þú talað við dýrin, og sum þeirra svara þér líka. Um helgina voru til sýnis í dýragarðinum átta dýr af tegundinni homo sapiens. Þarna voru á ferðinni átta breskir sjálfboðaliðar, þrír karlar og fimm konur, klæddir í sundföt með fíkjulauf sem skýldu viðkvæmustu staði. 28.8.2005 00:01
Fæðir barn í beinni Framleiðendur hollenska Big Brother raunveruleikaþáttarins hafa ákveðið að einn af þátttakendunum muni fæða barn í næstu þáttaröð. Þættirnir sem njóta mikilla vinsælda víða um heim snúast um það að fylgjast með hópi af fólki sem býr í tiltekinn tíma saman í íbúð og fær ekki að fara þaðan nema vera kosið út. 28.8.2005 00:01
Súnníar ákalla alþjóðasamfélagið Íraskir þingmenn ákváðu í gær að vísa drögum að stjórnarskrá landsins til þjóðaratkvæðagreiðslu. Súnníar eru mjög ósáttir við inntak hennar og skora á alþjóðasamfélagið að koma í veg fyrir að hún verði samþykkt. 28.8.2005 00:01
Kjötkveðjuhátið í Notting Hill Kjötkveðjuhátíðin í Notting Hill í Lundúnum hófst í morgun og er búist við því að milljónir taki þátt í gleðinni um helgina. Hátíðin var fyrst haldin 1964, en var þá mestmegnis fyrir börn. Stáltunnusveit frá Trinidad hélt þá uppi gleðinni og enn þann dag í dag hefst hátíðin með stáltunnileik. 27.8.2005 00:01
Ósætti um yfirlýsingu SÞ Hundrað og áttatíu þjóðarleiðtogar hittast í næsta mánuði til að undirrita tímamótayfirlýsingu um framtíð Sameinuðu þjóðanna. Óvíst er að þeir hafi nokkuð að undirrita þar sem Bandaríkjamenn eru ósáttir við yfirlýsinguna og tilvísanir til þróunaraðstoðar og umhverfisverndar. 27.8.2005 00:01
Katarina safnar kröftum Fellibylurinn Katrina safnar nú kröftum yfir Mexíkóflóanum og býr sig undir aðra yfirreið yfir suðurströnd Bandaríkjanna. 27.8.2005 00:01
Tuttugu og fjórir létust í flóðum Hundruðir þorpa hafa orðið flóðum að bráð í Uttar Pradesh héraði á Norður Indlandi. Miklar rigningar undanfarna daga leiddu til þess að tvær ár flæddu yfir bakka sína með þeim afleiðingum að nærri 750 þorp fóru alveg undir vatn og 50 þorp til viðbótar eru einangruð og talið er að tuttugu og fjórir hafa látist í flóðunum. 27.8.2005 00:01
Fórnarlamba minnst Fyrsti varanlegi minnisvarðinn um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna í Lundúnum í síðasta mánuði var afhjúpaður við látlausa athöfn síðdegis. Minnisvarðinn er einfaldur skjöldur í garði skammt frá Thames, en í þessum garði varð til einskonar bráðabirgðaminnisvarði strax í kjölfar hryðjuverkanna. Þúsundir lögðu þar blóm og smámuni til að votta virðingu sína. 27.8.2005 00:01
Hamas þakka sér brottflutning Einhver þekktasti hryðjuverkamaður Hamas-samtakanna birtist sigri hrósandi á myndbandsupptöku sem send var fjölmiðlum í gærkvöldi. Þar segir hann brotthvarf Ísraelsmanna frá Gaza afleiðingu vopnaðrar baráttu hundraða skæruliða sem hefðu fórnað sér fyrir málstaðinn. 27.8.2005 00:01
Ofurhugi lést í mótorhjólastökki Íranskur ofurhugi lést þegar hann var að reyna að setja heimsmet í því að stökkva á mótorhjóli yfir rútur. 27.8.2005 00:01
Blair úthúðað Múhameðstrúarmaður í útlegð frá Sádí Arabíu sem á á hættu að vera rekinn frá Bretlandi fyrir að halda úti herskárri íslamskri vefsíðu hefur nú lokað vefsíðunni. Mohammed al-Massari heldur því fram að hann hafi gert það af sjálfsdáðum og bresk yfirvöld hafi ekki haft samband við hann. 27.8.2005 00:01
Svínaveiki í Rúmeníu Svínaveiki hefur brotist út í norð-vestur Rúmeníu og hefur þurft að slátra um 30 svínum og loka kjötmörkuðum. 27.8.2005 00:01
Íhuga mál gegn Hollendingum Hollendingar eiga hugsanlega yfir höfði sér málsókn vegna ákvörðunar sinnar um að skylda bændur til að halda alifuglum sínum innan dyra vegna hættunar á fuglaflensusmiti, að því er breska blaðið The Guardian skýrir frá. 27.8.2005 00:01
Eldsvoði í París Sautján létust og minnst þrjátíu slösuðust í miklum eldsvoða sem kom upp í sex hæða íbúðarhúsi í París, höfuðborg Frakklands í nótt. Íbúarnir í húsinu voru allir afrískir innflytjendur, og meira en helmingur þeirra sem létust í eldinum voru börn. 26.8.2005 00:01
Enn frestur vegna stjórnarskrár Enn hefur samninganefnd um nýja stjórnarskrá í Írak verið gefinn frestur til að komast að endanlegri niðurstöðu. Talsmaður írakska þingsins sagði í morgun að samninganefndinni yrði gefinn frestur til miðnættis, en ef niðurstaða næðist ekki fyrir þann tíma myndi stjórnarskráin eins og hún lítur út einfaldlega fara beint í þjóðaratkvæðagreiðslu þann fimmtánda október. 26.8.2005 00:01
Ráðgera kosningar á Sri Lanka Hæstiréttur Sri Lanka ákvað í morgun að forsetakosningar skildu haldnar í landinu síðar á þessu ári. Nokkrar deilur hafa staðið um hvort valdatíma núverandi forseta, Tsjandríka Kúmaratunga, eigi að ljúka á þessu ári eða því næsta. Sjálf vildi Kúmaratúnga halda völdum í eitt ár til viðbótar, en andstæðingar hennar hafa krafist þess að kosið skuli strax á þessu ári. 26.8.2005 00:01
Sænskir jafnaðarmenn auka við sig Sænskir jafnaðarmenn sækja í sig veðrið samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir Dagens Nyheter. Fylgi flokksins var í lágmarki fyrr í sumar eða rétt yfir þrjátíu prósentum, en það er nú komið yfir þrjátíu og fjögur prósent. Stjórnin hefur enda lofað öllu fögru, bæði skattalækkunum og atvinnusköpun. 26.8.2005 00:01
Basajev staðgengill leiðtoga Sjamíl Basajev, maðurinn sem stýrði árásinni á barnaskólan í Beslan í Rússlandi fyrir réttu ári, hefur verið útnefndur staðgengill leiðtoga uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu. Þrjú hundruð og þrjátíu fórust í Beslan, meirihlutinn börn. 26.8.2005 00:01
Fleiri fóstureyðingar en fæðingar Fleiri fóstureyðingar eru í Rússlandi árlega en fæðingar, samkvæmt fréttum rússneskra fjölmiðla. Rússar lifa skemur nú en á tímum kommúnistastjórnarinnar og þeir eru líka fátækari. Ástandið er nú þannig að ellilífeyrisþegar eru mun fleiri en börn og táningar. 26.8.2005 00:01
Fjölgun Gyðinga á Vesturbakkanum Gyðingum sem búa í landnemabyggðum á Vesturbakkanum hefur fjölgað meira en sem nemur þeim fjölda landnema sem fluttir hafa verið frá hernumdum svæðum. 26.8.2005 00:01
Mið-Evrópa á floti Enn er allt á floti víða í Mið-Evrópu þó að rigningin sé að mestu hætt. Á fimmta tug hefur týnt lífi í flóðunum og í Sviss er óttast að fjöldi gamalla bygginga hrynji vegna vatnsflaumsins. 26.8.2005 00:01
Fuglaflensa í Finnlandi Finnsk yfirvöld segja að hugsanlega hafi greinst fuglaflensa í mávum þar í landi. Mávarnir voru veikir eða dauðir við tjörn í bænum Oulu í Norður-Finnlandi þar sem yfirvöld hafa fylgst með fuglum um hríð. 26.8.2005 00:01
Tamílar hæstánægðir Hæstiréttur Srí Lanka úrskurðaði í gær að halda skyldi forsetakosningar á þessu ári. Tíðindin þykja sigur fyrir stjórnarandstöðu Tamíla en að sama skapi áfall fyrir forsetann Chandrika Kumaratunga og stuðningsmenn hennar. Að hennar mati átti kjörtímabilið að vara ári lengur en dómstóllinn komst að annarri niðurstöðu. 26.8.2005 00:01
Hittust eftir hálfa öld Um 150 Suður-Kóreumenn hittu í fyrsta skipti í gær ættingja sína sem búa í Norður-Kóreu eftir rúmlega hálfrar aldar aðskilnað. Á mánudag er svo ráðgert að 430 aðrir Suður-Kóreumenn fari norður að hitta ættingja. 26.8.2005 00:01
Sjö létust í fárviðri Að minnsta kosti sjö létust þegar fellibylurinn Katrín gekk á land á suðurhluta Flórída í fyrrinótt. Tré rifnuðu upp með rótum og yfir ein milljón heimila varð rafmagnslaus í fellibylnum. Vindhraði mældist yfir 40 metrum á sekúndu. Katarína heldur svo á haf út á Mexíkóflóa þar sem óttast er að hún geti valdið skemmdum á olíuborpöllum. 26.8.2005 00:01
Þrjú desdýr drápust Þrjú desdýr af afar sjaldgæfri tegund hafa drepist úr fuglaflensu í þjóðgarði í Víetnam. Er það í fyrsta skipti sem flensan greinist í þessari tegund dýra, að sögn forstöðumanna þjóðgarðsins. 26.8.2005 00:01