Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Handtökur í Birmingham Maðurinn var handtekinn í Birmingham eldsnemma í morgun. Fréttastofa BBC hefur eftir heimildarmönnum innan Skotland Yard að hann kunni að vera einn fjórmenninganna sem ákaft hefur verið leitað vegna árásarinnar á London í síðustu viku. 27.7.2005 00:01
Fjórir Svíar reknir út af hóteli Fjórum sænskum ríkisborgurum var kastað út af hóteli í Árósum í Danmörku vegna gruns um hryðjuverk. Mennirnir segjast hafa komið til borgarinnar til að sjá stjörnurnar í knattspyrnuliðinu Barcelona leika við heimamenn. 27.7.2005 00:01
Krónprinsessa lögð í einelti Rúmlega fertugur danskur maður sem hefur lagt Viktoríu krónprinsessu í einelti, hefur verið handtekinn á nýjan leik, en hann strauk af geðsjúkrahúsi í Danmörku fyrir fimm dögum. Þangað hafði hann verið skikkaður til þess að kanna geðheilsu hans. 27.7.2005 00:01
Stjórnarerindrekar myrtir í Írak Al Kaída samtökin í Írak segjast hafa myrt tvo alsírska stjórnarerindreka, sem rænt var fyrir nokkrum dögum. Fullyrðing um þetta var birt á vefsíðu samtakanna, í dag. 27.7.2005 00:01
Einn sprengjumanna sagður í haldi Breska lögreglan réðst til inngöngu í hús í Birmingham fyrir dögun í gærmorgun og beittu rafbyssu til að yfirbuga mann sem að sögn vitnis og fjölmiðla er sagður vera Yasin Hassan Omar, einn þeirra fjögurra sem reyndu að sprengja sprengjur í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum fyrir viku. 27.7.2005 00:01
Sagði íslam ekki siðmenningu Ummæli ráðherra í ítölsku ríkisstjórninni, þess efnis að íslam væri ekki siðmenning, hefur valdið mikilli hneykslan á Ítalíu. Hafa talsmenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka fordæmt ummælin og lagt áherslu á að samræður við hófsama múslima séu lykillinn að baráttunni gegn hryðjuverkum. 27.7.2005 00:01
Norður-Kóreumenn setja skilyrði Fulltrúar Norður-Kóreustjórnar sögðu í gær að hún myndi þá aðeins hætta við kjarnavopnaáætlun sína ef sú ógn sem hún telur Kóreuskaganum stafa af bandarískum kjarnavopnum er fjarlægð og samskipti við Bandaríkjastjórn færð í eðlilegt horf. Frá þessu greindi suður-kóreska fréttastofan Yonhap. 27.7.2005 00:01
Handtökur í Bretlandi Breska lögreglan handtók í morgun einn fjórmenninganna sem gerðu misheppnaða árás á London síðasta fimmtudag. Sex aðrir hafa verið handteknir í tengslum við árásirnar síðan í gærkvöld. 27.7.2005 00:01
Fækka hermönnum næsta vor Forsætisráðherra Íraks vill að Bandaríkjamenn hefji fljótlega brottfluttning herafla síns frá Írak. Æðsti hershöfðingi Bandaríkjamanna segir raunhæft að byrja að fækka hermönnum næsta vor. Ibrahim Al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks fundaði með Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Baghdad í morgun. 27.7.2005 00:01
Ekk vitað hvað datt af Discovery Tvö stykki brotnuðu af geimferjunni Discovery þegar henni var skotið á loft í Flórída í gær. Atvikinu svipar til þess sem olli því að geimferjan Columbía fórst fyrir um tveimur og hálfu ári. Discovery var loks skotið á loft í gær, eftir hálfsmánaðar töf vegna bilunar í mæli í eldsneytistanki. Þangað til í morgun var talið að allt hefði gengið snurðulaust fyrir sig. 27.7.2005 00:01
Störf dómara Saddams í hættu Sautján af starfsmönnum réttarins, sem undirbýr nú réttarhöldin yfir Saddam Hussein, gætu misst störf sín þar sem þeir voru félagsmenn í Baath-flokki Saddams Hussein. Íraska þingið greiðir atkvæði um þetta um helgina, en einhver andstaða er þó við atkvæðagreiðsluna innan þingsins. 27.7.2005 00:01
Franskir barnaníðingar Franskur dómstóll sakfelldi í gær 62 einstaklinga fyrir þátttöku þeirra í hring þar sem börn voru með kerfisbundnum hætti misnotuð, þeim nauðgað og sett í vændi. Málið er það stærsta af þessu tagi sem hefur komið upp í Frakklandi. Tveir sakborninganna voru dæmdir í 28 ára fangelsi. 27.7.2005 00:01
Mótmæla stefnu lögreglu Hópur mótmælenda gekk um Lundúnaborg í gær og hrópaði að lögreglunni að sú stefna hennar, að skjóta til að drepa, væri röng. Stefna lögreglunnar varð Brasilíumanninum Jean Charles de Menezes að bana en hann hljóp á brott þegar lögreglan kallaði á eftir honum að stoppa á Stockwell-lestarstöðinni í London á föstudag. 26.7.2005 00:01
17 ný tilfelli af sjúkdóminum Alls hafa nú 19 látist og 17 ný tilfelli greinst af dularfulla sjúkdóminum sem herjað hefur á bændur í suðurhluta Kína að undanförnu. Alls hafa 80 verið greindir með sjúkdóminn, sem hefur þó ekki fengið nafn, en allir virðast bændurnir hafa slátrað veikum svínum á undanförnum vikum. 26.7.2005 00:01
Morðingi Gogh í lífstíðarfangelsi Lífstíðardómur var í morgun kveðinn upp yfir Mohammed Bouyeri sem játaði að hafa drepið hollenska kvikmyndagerðarmanninn Theo van Gogh. Hann kvaðst myndu gera slíkt hið sama á ný, hefði hann til þess tækifæri 26.7.2005 00:01
Hinir raunverulegu hryðjuverkamenn Hundruð ættingja og vina mannsins sem lögreglan í Lundúnum skaut gengu um götur heimabæjar hans í Brasilíu í gær og mótmæltu afsökunarbeiðni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, sem þeir sögðu ekki vera nógu góða. Á spjöldum sem fólkið hélt á lofti stóð að breska lögreglan væru hinir raunverulegu hryðjuverkamenn. 26.7.2005 00:01
Sharm el-Sheik: Ekki Pakistanar Pakistanar voru ekki viðriðnir hryðjuverkin í Sharm el-Sheik. Þetta sögðu talsmenn egypskra yfirvalda í morgun og vísuðu þar með á bug fregnum um að hópur pakistanstra hryðjuverkamanna tengdist árásunum sem kostuðu nærri því níutíu manns lífið um helgina. 26.7.2005 00:01
Discovery skal í loftið Geimferjunni Discovery verður skotið á loft um hálfþrjú leytið í dag þó ekki hafi enn tekist að greina hvers vegna vandamál kom upp varðandi eldsneytistank þegar skjóta átti ferjunni á loft þann 13. júlí. Skynjari í eldsneytistanki bilaði þegar geimfararnir voru að ganga um borð og var þá hætt við geimskotið. 26.7.2005 00:01
2 handteknir vegna Madrídarárása Franska lögreglan handtók í morgun tvo menn sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkaárásunum í Madríd fyrir rúmu ári. Innanríkisleyniþjónustan handtók feðga í Norður-Frakklandi, skammt frá landamærunum að Belgíu, og voru þeir fluttir til Belgíu til yfirheyrslu. 26.7.2005 00:01
Lögreglumaður drap 2 og særði 4 Tveir féllu og fjórir eru sárir eftir að ríflega sextugur lögreglumaður á eftirlaunum gekk berserksgang í bænum Stade í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi í gærkvöldi. Svo virðist sem harkalegt rifrildi milli mannsins og unnustu hans á miðri götu hafi vakið athygli vegfarenda sem reyndu að skakka leikinn. Þá dró maðurinn upp byssu og skaut á fólkið. 26.7.2005 00:01
Líkur á stórslysi 1/100 Eftir um tvo tíma tekur geimskutlan Discovery á loft, að öllu óbreyttu. Það verður fyrsta ferð geimskutlu frá því að skutlan Columbia splundraðist í aðflugi fyrir tveimur árum. Líkurnar á stórslysi af því tagi í þetta sinn eru einn á móti hundrað. 26.7.2005 00:01
Geimskotið gekk vel Allt gekk snurðulaust fyrir sig nú rétt fyrir þrjú þegar geimskutlan Discovery tók á loft frá Canaveral-höfða á Flórída. Skutlan hóf þar með fyrstu ferðina frá því að Columbia fórst árið 2003. Leiðin liggur nú að alþjóðlegu geimstöðinni á sporbraut um jörðu en þangað á að flytja mannskap og vistir. 26.7.2005 00:01
Ítalir óttast hryðjuverk Mikill meirihluti ítölsku þjóðarinnar á von á að hryðjuverkaárás verði gerð í landinu í nánustu framtíð. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London á dögunum. 26.7.2005 00:01
Mikill taugatitringur fyrir skotið Mikill taugatitringur var á Canaveral-höfða á Flórída í dag þegar niðurtalning fyrir flugtak geimskutlunnar Discovery hófst. Á þriðja tímanum síðdegis átti hún að taka á loft í fyrsta sinn frá því að geimskutlan Columbia fórst 2003 en líkurnar á stórslysi nú eru taldar einn á móti hundrað. 26.7.2005 00:01
Morðingi van Gogh dæmdur Dómstóll í Amsterdam dæmdi í gær Mohammed Bouyeri, sem játaði á sig morðið á kvikmyndagerðarmanninum Theo van Gogh, í lífstíðarfangelsi - það er hámarksrefsingu. Hið hrottalega morð á van Gogh, sem var framið um hábjartan dag í byrjun nóvember, olli mikilli reiði í Hollandi og jók áhyggjur af "heimaöldum" íslömskum öfgamönnum. 26.7.2005 00:01
Blair segir Breta hvergi hvika Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að bresk stjórnvöld myndu ekki "hvika svo mikið sem þumlung" fyrir hryðjuverkamönnum. Lögregla upplýstu að tveir mannanna sem eftirlýstir eru fyrir misheppnuðu tilræðin í síðustu viku séu löglegir innflytjendur sem fluttu á barnsaldri til Bretlands frá Sómalíu og Erítreu. 26.7.2005 00:01
Einn árásarmanna var Egypti Rannsóknarlögregla í Egyptalandi hefur borið kennsl á einn sjálfsmorðssprengjumannanna sem frömdu hryðjuverkaárásina í ferðamannabænum Sharm-el-Sheik við Rauðahaf í lok síðustu viku. Kvað hann vera Egypti að nafni Youssef Badran sem hafi verið í slagtogi við íslamskan öfgahóp. Egypska lögreglan tók í gær tugi manna til viðbótar til yfirheyrslu. 26.7.2005 00:01
Tengsl milli hryðjuverka og Íraks Kokhraustur Tony Blair blæs á kannanir sem sýna að almenningur telur tengsl á milli hryðjuverka í borginni og stríðsins í Írak. Rannsókn á árásunum heldur áfram og virðist lögreglan á hælum tilræðismannanna. 26.7.2005 00:01
Brjálaðar ömmur vilja í herinn Brjáluðu ömmurnar í Tucson létu til sín taka í rétti í dag. Þær heimta að fá að ganga í herinn. 26.7.2005 00:01
Dularfullur sjúkdómur í Kína Að minnsta kosti nítján manns hafa nú látist úr dularfullum sjúkdómi í Kína og yfir fjörutíu eru veikir. Allir hinna látnu eru bændur og koma úr tugum þorpa í suðurhluta landsins. 25.7.2005 00:01
Flóðbylgjuviðvörun afturkölluð Yfirvöld í Indónesíu og á Taílandi segja enga hættu vera á flóðbylgju og hafa afturkallað flóðbylgjuviðvörun eftir að jarðskjálfti upp á 7,2 á Richter skók Nicobar-eyjurnar í Indlandshafi í gærkvöld. Mikil skelfing greip um sig á eyjunum en engar fréttir hafa þó borist af mannfalli. 25.7.2005 00:01
Enn ein árásin í Írak Að minnsta kosti fimm féllu og tólf særðust er sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Árásarmaðurinn sprengdi upp litla rútu nálægt hótelinu Sadeer en allir þeir sem létust voru írakskir öryggisverðir sem eru taldir hafa unnið hjá hótelinu. 25.7.2005 00:01
Mótmæltu hryðjuverkaárásunum Þúsundir manna, bæði heimamenn og ferðamenn, söfnuðust saman á ferðamannastaðnum Sharm el-Sheik í Egyptalandi í gær til að mótmæla hryðjuverkaárásunum á laugardag sem urðu 88 manns að bana og særðu yfir 120. 25.7.2005 00:01
Discovery skotið á loft á morgun NASA hefur ákveðið að Discovery verði skotið á loft á morgun en förin verður sú fyrsta í tvö og hálft ár eða frá því Columbia fórst þegar hún undirbjó lendingu á jörðinni eftir tveggja vikna för úti í geimnum árið 2003. För Discovery er heitið að Alþjóðlegu geimstöðinni og mun ferðin taka tólf daga. 25.7.2005 00:01
Lestarstöð í New York rýmd Lestarstöð í Pennsylvaníu í New York í Bandaríkjunum var lokuð og stöðin rýmd í um klukkustund í gær eftir að pakka var hent í starfsmann stöðvarinnar og sagt að í væri sprengja. 25.7.2005 00:01
Mæta öllum skilyrðum súnníta Írakska þingið hefur mætt öllum skilyrðum súnnítaleiðtoga fyrir þátttöku í stjórnarskrárnefnd Íraks. Súnnítar hafa neitað að taka þátt í starfi nefndarinnar eftir að þeir ruku út af fundi hennar í síðustu viku. 25.7.2005 00:01
56 létust í rútuslysi í Nígeríu Fimmtíu og sex manns létu lífið og sex slösuðust þegar rúta ók út í á í Nígeríu í gær. Einungis náðist að bjarga sex manns úr rútunni en þeir voru allir fluttir á sjúkrahús með alvarleg meiðsl. 25.7.2005 00:01
60% óttast þriðju heimsstyrjöldina Sex af hverjum tíu Bandaríkjamönnum óttast þriðju heimsstyrjöldina. Þetta kemur fram í nýrri könnun. 25.7.2005 00:01
Tvö þorp umkringd í Egyptalandi Egypska lögreglan umkringdi fyrir stundu tvö þorp þar sem talið er að finna megi í það minnsta tvo hryðjuverkamenn sem tóku þátt í árásunum í Sharm el-Sheikh um helgina. 25.7.2005 00:01
Lögreglan í kappi við tímann Breska lögreglan er nú í kappi við tímann en fjögurra tilræðismanna, sem gerðu misheppnaðar tilraunir til hryðjuverka á fimmtudaginn, er nú leitað. Óttast er að þeir leggi á ráðin um frekari árásir í London og að borgin sé orðin meginskotmark alþjóðlegra hryðjuverkamanna. 25.7.2005 00:01
Landamæradeila Kanada og Danmerkur Kanadamenn og Danir eru að lenda í landamæradeilu um Hans-eyju, norðaustur af Grænlandi. Deilan tók nýja stefnu í síðustu viku eftir að Bill Graham, varnarmálaráðherra Kanada, steig þar á land og hermenn reistu kanadíska fánann, en danski fáninn var þar fyrir. 25.7.2005 00:01
Blair eyðir fúlgum í snyrtivörur Það skiptir máli að líta vel út, koma vel fyrir og snyrta sig. Púður og kinnalitur eru lykilatriði. Í það minnsta er erfitt að komast að annarri niðurstöðu þegar litið er til reikninga Tony Blairs, forsætisráðherra Bretlands. 25.7.2005 00:01
Ánægja með reykingabann í Noregi Þann 1. júní í fyrra urðu allir veitinga- og skemmtistaðir í Noregi reyklausir. Nú er komin út skýrsla þar sem kemur fram að breytingarnar hafi gengið mjög vel fyrir sig og að 10% starfsmanna hafi hætt að reykja. 25.7.2005 00:01
5 handteknir vegna sprenginganna Lögreglan í London hefur nú handtekið fimm menn í tengslum við rannsóknina á hryðjuverkaárásunum í borginni í síðustu viku. Tilkynnt var um handtöku tveggja manna nú síðdegis en þrír voru þegar í haldi lögreglu. 25.7.2005 00:01
Drepin af ásettu ráði Lögmenn fjölskyldu kanadísks ljósmyndara, sem lést í haldi yfirvalda í Íran fyrir tveimur árum, fullyrða að ljósmyndarinn, Zahra Kazemi að nafni, hafi verið drepinn af ásettu ráði. Zahra var handtekin fyrir utan fangelsi í Tehran, höfuðborg Írans, þar sem hún var að taka myndir en margir fanganna sem þar sitja inni hafa unnið sér það eitt til saka að vera andvígir stefnu stjórnvalda í landinu. 25.7.2005 00:01